Læknablaðið - 01.08.1959, Blaðsíða 32
26
LÆKNABLAÐIÐ
-JJriótíiörn JJr
ijorn ^Jrytfrffvaóon:
W alerho use-F ridericlisens
syndrom
Þessi sjúkdómur er til allrar
hamingju lieldur sjaldgæfur, en
þó verður lians alltaf vart við
og við, svo nauðsynlegt er að
hafa hann í huga og greina sem
fyrst, því batahorfur eru nú góð-
ar, ef til sjúklinganna næst i
tíma.
Ég hefi haft til meðferðar 8
sjúklinga, þar af dóu 5. Tveir
fyrstu sjúklingarnir, sem lifðu,
voru innlagðir í Landakotsspít-
ala árið 1955, en sá 3. í Barna-
deild Landspítalans 1957.
Fyrsta l}rsing á sjúkdómi þess-
uin er gerð af Vöelker 1894.
Hans sjúklingur Iiafði útbreidd-
ar húðblæðingar og blæðingar i
báðar nýrnahettur- Áleit hann
orsökina vera bólusóttarveiru.
Nafnið Waterhouse-Friderich-
sen’s syndrom varð til 1933,
þegar Glanzmann lýsti sjúk-
dómnum og kenndi hann við þá
2 menn er mest liöfðu skrifað
um liann áður.
Hér er um að ræða bráða
sepsis og er orsökin Neisseria
meningitidis í 80—90% tilfella.
Aðrar bakteríur, sem geta vald-
ið þessu, eru Pneumoc., sta-
phyloc., hæmofil. inflúenzae og
B. difteriae. Sjúkdómsins verður
vart lijá fólki á öllum aldri, en
algengastur er hann hjá ungum
börnum, sjötíu af hundraði eru
börn undir 2 ára aldri. Hann
byrjar oftast mjög snögglega,
en dæmi eru þó til að sjúkling-
urinn hafi verið lasinn í nokkra
daga áður, með óljós einkenni,
sem ekki verða greind frá mein-
lausum kvillum. Algengast er
að barnið vakni af værum
svefni, gráti sárt og kasti upp,
verkir virðast vera í kviðarholi
og svipur ber vott um hræðslu
og angist, einkennin minna lielzt
á invagination. Útlit barnsins
verður fljótt uggvænlegt. Hiti
rýkur upp í 40—42° á skömm-
um tíma, það fær oftast krampa
og verður meðvitundarlaust, en
rankar þó við sér milli krampa-
kastanna. Samtímis koma svo
liúðblæðingar, sem byrja venju-
lega í andliti, en breiðast ört
út, renna saman og mynda stór-
ar blárauðar skellur. Blæðingar
koma einnig í slímhimnur,
munnvatn verður blóðlitað og
töluvert blóð getur komið með
hægðum, minna þessar blæð-
ingar mest á Purpura Hennoch-
Schönleini.
Sérstætt fyrir þennan sjúk-