Læknablaðið - 01.08.1959, Blaðsíða 90
84
LÆKNABLAÐIÐ
AðferSin kynni að lokum að
koma að gagni í rannsóknum
svonefndra „trace“-niálma. En
skortur á þekkingu á þeim efn-
um torveldar livað mest þessar
tilraunir.
Fyrri rannsóknir.
Sink, sem gefið er dýrum,
safnast í pancreas (1-10). Yegna
þessa var ákveðið að reyna
geislavirkan ísótóp af sinki í
þessum rannsóknum, og mun
síðar skýrt frá ástæðum þess.
Sink er mjög útbreitt í nátt-
úrunni. Það finnst i nægilega
ríkum mæli í flestri fæðu. Það
er „trace“-efni og finnst í smá-
um skömmtum í flestum
vefjum líkamans (2, 11). Ekki
er þó gjörla vitað, hvert lilut-
verk sinks er í efnaskiptunum.
Þó eru likur til þess, að það hafi
þýðingu fyrir vöxtinn (2). Það
er ómissandi fyrir þroska fóst-
ursins (10). Það fer í gegnum
fylgjuna og skilst einnig út i
mjólkinni (10-14). Sink liefur
fundizt i ríkara mæli í pancre-
as, lifur og nýrum í ungviði
heldur en í fullorðnum (10, 16).
Það er liður í sameind „car-
honic anhydrase“ enzymsins
(15,17). Margt bendir ennfrem-
ur í þá átt, að sink hafi hlut-
verki að gegna við skiptingu
frumanna (18).
Blóð inniheldur hlutfallslega
mikið af sinki, eða að jafnaði
650—900 y í 100 ml. í lieil-
brigðum fullvaxta mönnum, en
það nemur nokkurn veginn 2%
af öllu sinkinnihaldi líkam-
ans (19—22).
Meginhluti sinksins í hlóðinu,
eða 75—90%, er í rauðu hlóð-
kornunum.Hvít hlóðkorn eruþó
hlutfallslega 25 sinnum auðugri
af sinki en rauð, og getur það
magn numið allt að 3% af hlóð-
sinkinu (19). Hvít blóðkorn
innihalda töluvert meira sink
en nokkrar aðrar frumur lík-
amans.
Innihald í serum er að jafn-
aði um 125 y í 100 ml. Sam-
kvæmt rannsóknum Vikhlads
(23) getur sink myndað mism.
föst efnasambönd með ýmsum
amínósýrum og próteínum, en
fram til þessa hefur ekki verið
sýnt fram á neitt sérstakt sink
próteín. Yikblad sýndi einnig
fram á, að sink í hlóðinu er að-
allega að finna í 2 samböndum.
Annað þeirra er allstöðugt, og
i því er sinkið fast hundið. Hitt
er laust hundið og hreytist með
sveiflum á sink efnaskiptum.
Breytingar á sinkinnihaldi í
blóði geta verið töluvert mikí-
ar, sérlega við ýmis konar óeðli-
legt eða sjúklegt ástand.
Mönnum kemur yfirleitt sam-
an um að sink, sem gefið er inn,
safnist að mestu leyti í lifur,
bris, nýru og meltingarvegi.
Þegar stórum skömmmtum af
sinki er blandað í fæðu tilrauna-