Búskapur hins opinbera 1997-1998 - 01.03.1999, Síða 11
1. Inngangur
Rit þetta ijallar um búskap hins opinbera, þ.e. ríkis, sveitarfélaga og almanna-
tryggingakerfís. Ritið, sem er númer 17 í ritröð Þjóðhagsstofnunar um þjóðhagsreikn-
inga, er með sérstaka áherslu á nýtt uppgjörsár, 1997. Einnig eru kynntar bráða-
birgðatölur fyrir árið 1998 yfír helstu stærðir opinberra íjánnála. Ritið er framhald rits
um sama efni, sem kom út í nóvember 1997.
í ritinu er "hið opinbera" í meginatriðum notað sem heiti á starfsemi sem tekna er
aflað til með álagningu skatta en ekki með sölu á vöru og þjónustu á almennum
markaði. Af þessu leiðir að starfsemi fyrirtækja og sjóða í eigu ríkis og sveitarfélaga
fellur utan við efni ritsins, nema að því marki sem þessir aðilar eiga viðskipti við hið
opinbera. Að því er ríkissjóð varðar fellur þessi skilgreining að mestu að A-hluta
ríkisreiknings og hvað sveitarfélög varðar að sveitarsjóðum.
í ritinu er fylgt þeirri breyttu skilgreiningu á umfangi hins opinbera sem kynnt var í
Búskap hins opinbera 1992-1993. Eldra uppgjör um fjármál hins opinbera hefur því
verið leiðrétt til samræmis við þessa nýju skilgreiningu. Hér er um að ræða ýmsar
viðbætur við tekjur og útgjöld hins opinbera, sem nú teljast að réttu með samkvæmt
þjóðhagsreikningakerfí Sameinuðu þjóðanna.
Reikningakerfí opinbera búskaparins, eins og það birtist í þessu riti, er hluti af
stærra reikningakerfí fyrir þjóðarbúskapinn í heild og er unnið samkvæmt reglum
Sameinuðu þjóðanna um gerð þjóðhagsreikninga. Birt eru sérstök yfirlit um ríki,
sveitarfélögin í heild og almannatryggingakerfíð hvert um sig og síðan eru dregnar
saman tölur fyrir hið opinbera í heild. Þessi yfírlit eru þrískipt. í fyrsta lagi er tekju-
og útgjaldareiloiingur, sem sýnir tekjur og rekstrargjöld á hverju ári. í öðru lagi er
yfirlit um fastafjárútgjöld, en þar færast meðal annars fjármunamyndun og fjármagns-
tilfærslur ársins. Að lokum er svo fjárstreymisreikningar, sem sýna kröfu- og
hlutafjárbreytingu hins opinbera og lána- og sjóðshreyfíngar þess á hverju ári.
Ritið skiptist í átta hluta, auk töfluhluta. Að loknum inngangi er í öðrum hluta vikið
að afkomustærðum hins opinbera, i þriðja hluta umsvifum þess og í Qórða hluta
tekjum þess. Þá er í fímmta hluta fjallað um útgjöld hins opinbera. í sjötta hluta er að
fínna umfjöllun um skuldir og lánastarfsemi hins opinbera. I sjöunda hluta er gerður
stuttur alþjóðlegur samanburður á helstu stærðum opinberra fjármála. Að síðustu er í
áttunda hluta fjallað um velferðarkerfíð hér á landi. Er þar vikið að helstu málasviðum
þess; réttindum, greiðslum og þjónustu. Einnig er gerður talnalegur samanburði milli
landa.
Töfluhluti ritsins skiptist i níu flokka. Fyrst eru yfirlitstöflur, en síðan sundurliðanir
á tekjum og gjöldum, s.s. á samneyslu, framleiðslustyrkjum, fjármunamyndun o.fl. í
níunda töfluhlutanum er að finna yfírlitstöflur um útgjöld til almannatrygginga og
velferðarmál á Norðurlöndunum og í OECD ríkjum.
Heimildir um búskap hins opinbera eru að mestu leyti unnar upp úr reikningum
rikissjóðs, sveitarfélaga og Tryggingastofnunar ríkisins. Reikningar ríkissjóðs hafa
nær eingöngu verið unnir upp úr A-hluta rikisreiknings, sem nær yfír skatttekjur og
ráðstöfun þeirra. I B-hluta eru hins vegar færð ríkisfyrirtæki, ýmsar lánastofnanir o.fl.
Úrvinnsla úr reikningum sveitarfélaganna hefur fyrst og fremst miðast við hina
eiginlegu bæjarsjóðareikninga, en þar eru færðar skatttekjur og ráðstöfun þeirra. Efni
fyrir hreppana hefur verið unnið upp úr reikningum helstu hreppa, nokkuð breytilegt
eftir árum. Þessi úrvinnsla er síðan notuð til viðmiðunar við áætlun fyrir aðra hreppa
9