Búskapur hins opinbera 1997-1998 - 01.03.1999, Blaðsíða 47
staðar á Norðurlöndum, i mismiklum mæli þó, að hefja töku lífeyris fyrir ofan-
greindan aldur.54
í öðru lagi eru íjárhæðir lífeyris misháar milli landanna. I töflu 8.22 sést að
meðallífeyrisgreiðsla til aldraðs einstaklings i Danmörku er um 81% hærri en á
íslandi og um 57% hærri í kaupmætti. I Finnlandi eru lífeyrisgreiðslumar 27% hærri i
krónum talið og 17% hærri í kaupmætti. Þessir tveir þættir skýra stóran hluta af
ofangreindum mismun milli landanna.55
Tafla 8.22 Lífeyrisgreiðslur til aldraðra 1996 á mánuði í íslenskum krónum1*________
Danmörk Finnland Ísland Noregur Svíþjóð
Meðallífeyrisgreiðslur til öldrunarþega á mán. 102.472 71.726 56.616 78.939 90.350
Lífeyrisgreiðslur til öldrunarþega, ísland = 100 181 127 100 139 160
Lif.gr. til öldrunarþega, Ísland = 100, PPP_______1_57_____H7_____1M_____H2_____135
1) Nálgun
Varðandi örorkulífeyrisgreiðslumar þá er staðreyndin sú að bæði íjöldi öryrkja i
hlutfalli við fólksfjölda og fjárhæðir örorkubóta em nokkuð mismunandi milli
landanna. í Finnlandi til dæmis þiggja 9% þeirra sem em á aldrinum 16 til 64 ára
örorkubætur í einhverju formi. Hér á landi er samsvarandi hlutfall um 51/2%.
8.3.1.4 Þjónusta við aldraða og öryrkja
Þjónusta við aldraða og öryrkja virðist, samkvæmt töflu 8.23, vera eilítið meiri hér á
landi en í Finnlandi eða um 2% af landsframleiðslu hér samanborið við 1,8% þar. I
Danmörku, Noregi og Svíþjóð hins vegar fara um 3,3 til 3,9% af landsframleiðslu til
þessarar þjónustu við aldraða og öryrkja. Vissa fyrirvara skal þó hafa á tölum Dana
og Svía varðandi öldrunarþjónustu þar sem inni i þeim tölum er að hluta hjúkrunar-
þjónusta við aldraða sem víðast hvar annars staðar flokkast með heilbrigðisþjónustu.
Við skoðun á þessum tölum þarf einnig að taka tillit til aldursdreifmgar svo og
mismunandi áherslna i þjónustunni. í Svíþjóð virðist til dæmis vera mikil áhersla á
heimilishjálp en aftur hlutfallslega meiri áhersla á stofnanaþjónustu hér á landi svo
eitthvað sé nefnt.
Tafla 8.23 Þjónusta við aldraða og öryrkja 1996.
Danmörk Hlutfall afVLF Finnland Ísland Noregur Sviþjóð
C. Þjórmsta við aldraða og öryrkja 3,25 1,80 1,98 3,39 3,85
1. HúsnaÆisþörf 1,29 0,64 1,35 2,60 2,25
2. Heimilishjálp o.fl. 0,42 0,47 0,14 0,23 1,13
3. Endurhæfing 0,15 0,35 0,38 0,45 0,12
4. Önnur þjónusta 1,40 0,34 0,11 0,10 0,35
8.3.1.5 Fjölskyldur og börn
Stuðningur við fjölskyldur og böm mælist um 2,4% af landsframleiðslu hér á landi á
árinu 1996 en á bilinu 31/ til 4% af landsframleiðslu annars staðar á Norðurlöndum
samkvæmt skýrslu NOSOSCO-nefndarinnar. Beinar tilfærslur til fjölskyldna mælast
til dæmis rúmlega 2,4% af landsframleiðslu í Finnlandi en um 1,4% hér á landi. Þá er
Svokölluð „förtidspension“.
55 Hafa verður í huga hér að umræddar fjárhæðir eru fyrir skatta en skattareglur eru mjög mismunandi
milli landa.
45