Helgafell - 01.01.1943, Blaðsíða 16

Helgafell - 01.01.1943, Blaðsíða 16
2 HELGAFELL kennir sig við bókmenntir og önnur menn- ingarmál. Er þar ekki annað til afsökun- ar en sú fyrirætlun vor, sem þó bíður betri tíma, að gera þinginu skil síðar í myndarlegri og minnisverði grein, er því gæti talizt samboðin. Hér mun því ekki rakin saga þingsins né fjölrætt um menn- ingargildi þeirrar listkynningar, er fram fór á vegum þess. Þó má hiklaust fullyrða, að sú kynning á verkum og vinnubrögð- um íslenzkra listamanna hafi þegar orkað miklu um aukinn skilning og velvild al- þjóðar í þeirra garð, einnig úti um strjál- býlið, þar sem lieimaríki langhundanna hafði verið mest áður. Enginn vafi er á því, að þessi kynning hefur orðið til þess, fremur öllu öðru, að þingstörfin inn á við, þau, er vissu að hagsmuna- og hugðarmál- um listamanna sjálfra, hafa þegar borið meiri og skjótari árangur en við mátti bú- ast. Sá þáttur þinghaldsins er að vonum fáum kuimur af öðru en samþykktum þeim, er birtar hafa verið, en vel má geta þess, þótt ekki sé farið lengra út í þá sálma, að allir fundir þess fóru svo vafn- ingalaust og friðsamlega fram, að slíkt mætti vera valdameiri samkundum til fyr- irmyndar. Yfirleitt má segja að ekki bæri skugga á fundarstörf þingsins, og skal ó- sagt látið, hvort vernd ríkisstjóra ein sam- an hafi verið svo mikillar náttúru, en víst er, að sú viðurkenning hins æðsta fulltrúa ríkisvaldsins var þinginu ómetanlegur stuðningur. Það verður ekki með réttu lagt þinginu til lýta, þótt þinghaldið yrði eftir á óbein orsök í Ieiðinlegum árekstri milli velsæmis og prentfrelsis, þar sem sökudólgurinn greip sitt gjald í eldi. Verða nú hér á eftir talin nokkur þeirra mála, er Listamannaþingið gerði um samþykktir og ályktanir, og þegar hafa fengið einhverja eða fulla úrlausn á Al- þingi. 1. íhlutun um f járveitingar Menntamálaráðs. Alþingi gekk hér feti framar en listamenn höfðu óskað eft- ir og veitti samtökum þeirra fullan ráð- stöfunarrétt yfir fé því, er Menntamálaráð hefur úthlutað þeim að undanförnu. Sjálf- stæðisflokkurinn skipti um báða fulltrúa sína í ráðinu. Má vel unna hinum brott- förnu þess eftirmælis, að þar hafi mætir menn og mikilhæfir orðið að gjalda ógiftu- samlegrar forustu. Formaður fyrrverandi Menntamálaráðs komst af, að þakkalausu þeim flokksmönnum hans, sem kusu ann- an lista. 2. Höfundarréttur og listvernd. Listamannaþingið samþykkti áskorun til Alþingis um setningu laga til bráða- birgða um höfundarrétt og listvemd. og var svo gert. Lög þessi eru mikil rétt- arbót í bili, en mestu varðar þó, að með þeim eru samtök listamanna viðurkennd af ríkisvaldinu í fyrsta sinn. Enn fremur hefur Alþingi orðið við þeirri áskorun listamanna að leggja fyrir ríkisstjórnina að undirbúa heildarlöggjöf um sama efni, og hefur núverandi menntamálaráðherra, Einar Arnórsson, haft góð orð um skjótar aðgerðir. 3. Endurheimt þjóðleikhússins. Alþingi hefur nú samþykkt áskorun um þetta efni í samræmi við óskir listamanna. 4. Verndun prentf relsis. Lista- mannaþingið skoraði á Alþingi að nema úr gildi „næturlögin“ svonefndu, um bann við útgáfu fornrita. Alþingi afgreiddi það með ályktun, gallaðri að vísu, en þó á þá leið, að vona má, að lögin verði end- urskoðuð við dagsbirtu. 5. Ctanfararstyrkir. Alþingi hefur nú aukið framlag til náms- og utanfarar- styrkja úr 12800 kr. upp í 100000 kr., með fjárveitingar til listamanna af þeirri upp- hæð fyrir augum. Menntamálaráð hefur nú þegar veitt 11500 kr. af þessu fé til eins rithöfundar og tveggja málara. 6. Grunnlaunauppbót á greiðsl- ur úr ríkissjóði til listamanna. Með samþykkt slíkrar þingsályktunar hef- ur nú verið viðurkennt, að hér sé um laun að ræða, og ætti hún þvi að vera mikilsvert spor í þá átt að tryggja listamönnum öryggi á fjárlögum að nýju. Má af þessu sjá, að ýmislegt hefur áunn- izt fyrir atbeina Listamannaþingsins, en fleira ber að vísu til, og þá einkum breytt hlutföll flokka á Alþingi. En þó að vissu- lega beri Alþingi þakkir fyrir það, sem það hefur vel gert í þessum efnum, er hins ekki að dyljast, að þar er enn við ramman reip að draga, eins og sjá má af því, að felldar hafa verið allar tillögur um að tryggja listamönnum öryggi á 18. grein að nýju og synjað um hækkun heildarupp- hæðar til bókmennta og lista. Þó vannst það á að þessu sinni, að tekin var upp
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.