Helgafell - 01.01.1943, Blaðsíða 146

Helgafell - 01.01.1943, Blaðsíða 146
132 HELGAFELL ist jafnframt að hugsa lestrarefnið á sinni eigin tungu, þótt slík hjálp til þess sem fullnægjandi orðabók hefði ekki kostað ríkið öllu meira á sínum tíma en umræður á Alþingi um Lax- dælumálið eða útgáfa blaðagreina í þingskjölum á þessum vetri. Að sjálfsögðu stendur næst útgáfu Menningarsjóðs og bókmenntafélögum almennings að ráða á þessu bætur, enda hefur viðleitni gætt í þá átt. Mál og menning virðist hafa haft skilning og vilja á því frá öndverðu að láta hér til sín taka, og er nú von nýrrar mann- kynssögu þaðan, en áður hefur félagið gefið út allstórt fræðirit, Ejnisheiminn, er raunar virðist ekki hafa náð tilgangi sínum. Tilraunir bókaútgáfu Menning- arsjóðs um almenn fræðirit hafa ekki verið gerðar af æskilegum stórhug, enda ávallt meira hugsað um bóka- fjölda. Þó eru bækur Jóhanns Sæ- mundssonar og Skúla Þórðarsonar þörf rit og virðingarverð, að öðru en stærð og ytra frágangi. Ekki ber það vott um hinn ákjósanlegasta skilning á hlut- verki ríkisútgáfunnar, ef þar þykir nú brýnust þörf, að gefa út kvæði Hómers með uppdráttum, handa 12—13 þús- undum kaupenda, í landi, sem ekkiátil boðlega lýsingu á sjálju sér í bó\ar- jormi fyrir börn sín, hvað þá læsilega handbók um aðra hluta heimskringl- unnar. Utgáfa alfrœðiorðabókar á íslenzku er eitt hið ótvíræðasta menningarmál, og tjáir ekki að horfa í, þótt hún kosti á við rekstur eins héraðsskóla árlega, meðan hún er í smíðum. Þarf að vinda sem allra br-áðastan bug að undirbún- ingi þess verks, og ætti Háskóli ís- lands, bókaútgáfa Menningarsjóðs og hin stærstu bókmenntafélög vor að freista samvinnu um útgáfuna, svo að friður mætti ríkja um framkvæmd og frágang verksins. Bókasöfn og skólar ,,Sjálfmenntaðir“ menn njóta hér virðulegs umtals við hátíðleg tækifæri, og „sjálfsmenntun", sem að vísu er litlu síður þarfleg skólagengnu fólki, er jafnvel talin til þjóðlegra dyggða. Hins vegar fer því mjög fjarri, að þessi réttmæta skoðun njóti sín í skiptum rík- isins af menntamálum. Hér tala örugg- ar tölur skýrustu máli. Á fjárlögum ár- ið 1943 eru um 4700000 krónur ætlaðar til skólahalds, en aðeins liðlega 1 % þeirrar upphæðar til bókasajna (utan Reykjavíkur), að meðtöldum þeim hluta, sem lestrarfélög í sveitum fá af skemmtanaskatti. í flestum öðrum menningarlöndum nýtur þó hin þjóð- lega dyggð vor, sjálfsmenntunin, stuðn- ings í samræmi við þá viðurkenningu, að bókasöfn séu hliðstæður menningar- aðili skólum og kirkju. Hér er því stað- fest djúp, sem viðeigandi og nytsam- legt væri að brúa, milli orða vorra og athafna. Nú kunna sumir að segja, að það, sem þegar hefur verið upplýst um hin miklu bókakaup og bókaútgáfu síðustu ára, sýni ótvírætt, að hér sé engin þörf aukinna opinberra aðgerða til áhrifa um útgáfu né útbreiðslu bóka. Samt verður sú röksemd að teljast þyngri á metunum, að stjórn menntamálanna beri að stuðla að því, að þaðstórfé, sem hér er varið árlega til útgáfu og kaupa á bókum, komi að sem drýgstum not- um. Þó að ríkisútgáfan og bókmennta- félög almennings geti mjög stuðlað að því að auka í tilfinnanlegustu eyðurnar, eins og að hefur verið vikið, er full ástæða til að hafizt sé handa um fram- kvæmanlegar ráðstafanir til þess að létta útgefendum þá áhættu, að gefa út fjölbreyttari, veigameiri og jafnvand- aðri bókakost en nú, svo sem þeir flest- ir mundu kjósa. Jafnframt mundu slík- ar ráðstafanir verða rithöfundum og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.