Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 9. J A N Ú A R 2 0 1 4 Stofnað 1913  7. tölublað  102. árgangur  GERIR KVIKMYND ÁN HANDRITS OG PENINGA VAXTARVERKIR Í FERÐA- ÞJÓNUSTU MERKI UM AÐ VIÐ SÉUM RANGT STILLT VIÐSKIPTABLAÐ KLUKKUNNI SEINKAÐ? 14MARTEINN ÞÓRSSON 42 –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG Baldur Arnarson baldura@mbl.is Formenn fjölmennra stéttarfélaga opinberra starfsmanna fara fram á mun meiri launahækkanir en samið var um á almennum markaði. Kristín Á. Guðmundsdóttir, for- maður Sjúkraliðafélags Íslands, seg- ir félagsmenn sína fara fram á að greidd verði 100% laun fyrir það sem nú er skilgreint sem 80% vinna, að viðbættri almennri hækkun launa. Snorri Magnússon, formaður Lands- sambands lögreglumanna, vill stytta vinnuvikuna og hækka grunnlaun svo þau dugi til framfærslu. Vill brúa mikinn launamun Árni Stefán Jónsson, formaður SFR stéttarfélags, vill jafna kjör við almenna markaðinn og bendir á að laun hjá VR hafi mælst 17% hærri en fyrir sambærileg störf hjá SFR. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir boðaðar verðhækkanir ógna forsendum nýrra kjarasamninga. „Þetta er tilraun. Þetta er skamm- tímasamningur. Við ætlum að freista þess að ná tökum á verðbólgunni. Fyrsta rauða strikið í þessu sam- starfi er strax í febrúar vegna þess að þá eiga að hefjast viðræður um næsta kjarasamning. Ef verðbólgan í febrúar verður ekki komin niður fyrir 2,5%, sem allar forsendur eru fyrir, þá mun það leggja grunninn að þeirri viðræðu sem verður í vor. Ef atvinnulífið ætlar að mæta þessum samningum á þennan hátt er ljóst að við erum ekki að fara að gera samn- ing til lengri tíma heldur er verið að leggja upp í átök í haust. Þetta er ábyrgðarleysi hjá fyrirtækjunum, við skorum á þau að falla frá þessu og við munum beita þau þrýstingi.“ Krefjast mikilla hækkana  Ýmis stéttarfélög opinberra starfsmanna horfa til tugprósenta launahækkana  Forseti ASÍ segir stefna í átök á vinnumarkaði verði staðið við verðhækkanir MRætt um tugprósenta »6 Boða verðhækkanir » Nokkrir birgjar og fyrirtæki boða verðhækkanir á nýju ári. » Meðal þeirra eru Kaupfélag Skagfirðinga, Nói Síríus, Freyja, Lýsi, Emmess ís og Vífilfell. Allar líkur eru á að skipt verði um helsta fjármálaráðgjafa Glitnis á næstu vikum og ráðinn verði nýr í stað breska ráðgjafarfyrirtækisins Talbot Hughes & McKillop (THM), sem hefur verið helsti fjármálaráð- gjafi Glitnis og stærstu kröfuhafa bankans síðustu árin. Ástæðan er óánægja margra kröfuhafa með þann drátt sem hefur orðið á nauðasamn- ingsferlinu. Skv. áreiðanlegum heim- ildum stendur til að fá í staðinn inn- lent fjármálafyrirtæki og þykir líklegast að Straumur fjárfest- ingabanki verði ráðinn. Eigendur THM, sem hafa verið ráðgjafar Kaupþings og Glitnis og komið að öllum stærstu fjárhagslegu endurskipulagningum íslenskra fyr- irtækja frá bankahruni, fengu að meðaltali greiddar um 190 milljónir króna í formi þóknana og arðs á fjár- hagsárinu sem lauk 31. mars 2013. Skv. ársreikningum er uppsafnaður hagnaður frá árslokum 2008 tæpir 10 milljarðar. hordur@mbl.is »Viðskipti Glitnir að skipta um ráðgjafa  Straumur líklegur til að taka við af THM  Þeir sem fljúga flugmód- elum, sem eru annað fyrirbæri, en flygildi, hafa sett sér þær reglur að fljúga ekki yfir mann- fjölda, Þeir hafa af því nokkrar áhyggjur að flygildi sem flogið er yfir mannfjölda gætu bilað, fallið til jarðar og valdið slysi. Slíkt gæti leitt til þess að of stífar reglur yrðu settar. »24 Fljúgi ekki flygildum yfir mannfjölda Framkvæmdir hafa gengið vel í Stakkholti, á gamla Hampiðjureitnum, en þar á að reisa íbúðir fyrir stúdenta. Spillir væntanlega ekki fyrir framkvæmdunum að dagurinn er farinn að lengjast á ný og blæs það mönnum von í brjóst um betri tíð í vændum. Bygging stúdentagarða í Stakkholti gengur vel Morgunblaðið/Ómar Framkvæmdagleðin eykst með hækkandi sól Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Reikna má með að allt að 200 ný störf verði til í landvinnslu á fiski á þessu ári, því sjávarútvegs- fyrirtækin auka nú starfsemi í húsum sínum en draga úr vinnslu og frystingu í skipum á hafi úti. Verð á sjófrystum afurðum hefur lækkað um 14% á tveimur árum, auk þess sem kostnaður hefur aukist. Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva, segir að verði þorskkvóti aukinn á næsta fiskveiðiári, eins og margt bend- ir til, fjölgi störfum í fiskvinnslu enn meira. Hjá HB-Granda hefur landvinnslufólki fjölgað um 50 síðasta árið. Fyrirtækið hefur selt einn frystitogara og er að breyta öðrum í ísfiskskip. Svipað er uppi á teningnum hjá Þorbirni í Grindavík. Á móti þessu kemur að sjómönnum fækkar. „Við erum að endurskipuleggja rekst- urinn í samræmi við breyttar aðstæður, það er fyrst og fremst vegna ofurskattlagningar og lækkunar á verði afurða,“ segir Eiríkur Tóm- asson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar. »12 Morgunblaðið/Eggert Atvinna Fiskur og fólki í vinnslu fjölgar. Hundruð starfa verða til í landi  Breyttar áherslur í útgerð hafa áhrif á starfslið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.