Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 48
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 9. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Kölluð ljótasta kona í heimi 2. Íslendingur handtekinn í Bretlandi 3. „Ísland er þorp stofnað af nauðgurum“ 4. Þurfa nú beiðni frá lækni »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Rithöfundurinn Þórarinn Eldjárn frumflytur sögu Barónsins á Hvít- árvöllum á Sögulofti Landnámsset- urs annað kvöld kl. 20. Þórarinn skrifaði skáldsögu um baróninn sem kom út fyrir 10 árum, árið 2004. Bar- óninn, Charles Gouldrée-Boilleau réttu nafni, kom til Íslands árið 1898 með það í huga að setjast hér að, sá mikil tækifæri í landbúnaði, sjávar- útvegi og ferðaþjónustu og lét sig dreyma um stórbrotnar fram- kvæmdir. Veru hans hér á landi lýstu samtímamenn sem ævintýri, eins og segir í tilkynningu frá Landnáms- setri. Ævintýrið megi þó líka kalla harmleik þar sem baróninn hlaut sorgleg endalok. Þórarinn flytur þessa merkilegu sögu sem „talandi höfundur“, eins og því er lýst í til- kynningunni. Morgunblaðið/Kristinn Segir sögu barónsins á Hvítárvöllum  Myndasögusýning á verkum Sirrýj- ar og Smára verður opnuð á morgun kl. 16 í myndasögudeild Borgar- bókasafns við Tryggvagötu. Sirrý Margrét Lárusdóttir og Smári Pálm- arsson eru teiknarar, rithöfundar og hönnuðir og hafa m.a. myndskreytt barnabókina Askur og prinsessan og myndasöguna Vampíra. Þau halda einnig úti vefmyndasögunni Mía og Mjálmar á miaogmjalmar.is, hafa birt myndasögur á Facebook- síðu sinni og á vef þeirra, sirryandsmari.com, má nú finna nýj- an tölvuleik, Lori & Jitt- ers. Sýning á myndasög- um Sirrýjar og Smára Á föstudag Austan og síðar suðaustan 8-15 m/s. Rigning, slydda eða snjókoma sunnan- og austantil, en úrkomulítið um landið norðvestanvert. Kólnandi veður. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi austanátt, 10-18 m/s síðdegis, hvassast við suðurströndina. Dálítil él eystra, en annars þurrt og bjart að mestu. Hiti 0 til 4 stig syðra, en annars um frostmark. VEÐUR Rúnar Kárason langar ekki til að vera farþegi í íslenska landsliðinu í handknattleik en hann er einn af nýju kyn- slóðinni sem er að gera sig gildandi í landsliðinu. Rúnar og Ásgeir Örn Hallgrímsson fá það vandasama hlutverk að fylla skarð Alexanders Peterssons sem ekki getur spilað á Evrópumótinu í Danmörku vegna meiðsla. »4 Rúnar ætlar ekki að vera farþegi Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari Íslands í handknattleik, tilkynnir í dag hvaða leikmenn fara til Danmerk- ur í fyrramálið til þátttöku í Evr- ópumótinu. Patrekur Jóhannesson, landsliðsþjálfari Austurríkis, segir að þrátt fyrir að nokkuð sé um meiðsli í íslenska liðinu þá megi ekki gleyma því að margir leik- manna liðsins séu í fínu standi og jafnvel betra en stundum áður. »3 Margir í fínu standi og jafnvel betri en áður Útiliðin fögnuðu öll sigri í Dom- inos-deild kvenna í körfuknatt- leik í gær en þá fór fram fyrsta umferðin á nýju ári í deildinni. Toppliðin þrjú í deildinni, Snæ- fell, Haukar og Keflavík, fögn- uðu öll sigri og Snæfell heldur því fjögurra stiga forskoti á toppnum, liðið hefur 26 stig en Haukar og Keflavík 22. »2 Fjórir útisigrar í Dominos-deild kvenna ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hinn íslenski hluti Wikipediu var stofnaður fyrir rúmum tíu árum og eru tæplega 37.000 greinar í honum. Eftir rólega byrjun var vöxturinn nokkuð samfelldur en dregið hefur úr virkni notenda frá hausti 2008 og því hefur hópur virkra Wikipediu- notenda ákveðið að blása til sóknar með vikulegum, opnum nám- skeiðum. Hrafn H. Malmquist, umsjón- armaður rafhlöðunnar.is og dokt- orsritgerðaskrár Landsbókasafns Íslands, hefur verið virkur notandi á hinum íslenska hluta Wikipediu síð- an 2006. Hann útskrifaðist nýlega með meistarapróf í bókasafns- og upplýsingafræði og fjallaði lokarit- gerðin um þennan hluta Wikipediu. „Wikipedia er, eins og flestir vita, opið samfélag sem allir geta tekið þátt í. Þetta er ekki sérfræð- ingaveldi heldur eru öll framlög metin að verðleikum,“ segir hann. Auka nýliðun Wikipedia er ein fjölsóttasta vef- síða í heimi. Enski hlutinn var stofn- aður 2001 og í kjölfarið voru Wiki- pediur á öðrum tungumálum stofnaðar, eins og til dæmis á spænsku, frönsku, þýsku, sænsku og japönsku. „Þetta breiddist mjög hratt út á netinu,“ rifjar Hrafn upp. Hann bendir á að bróðurpartur þekkingar sé almenn skynsemi, sem allir geti tekið þátt í að koma orðum að og setja inn á Wikipediu. Þekkingu þurfi þó ávallt að styðja með traustum heim- ildum. „Um leið er hlúð að ís- lenskri menn- ingu, íslenskri tungu, af því að á meðan ungt fólk, sem leitar upplýsinga á netinu, finn- ur þær ekki á íslensku heldur á öðru tungumáli verður það til þess að grafa undan íslenskri tungu og menningu,“ segir hann um mik- ilvægi íslenska hlutans. Hrafn segir ekki gott að segja hvers vegna dregið hafi úr virkni hérlendis undanfarin ár. Notendur, sem framkvæmi yfir 100 breytingar á mánuði, séu taldir mjög virkir og fámennur hópur afkasti langmestu en um 20 til 25 manns séu reglulega virkir í íslenska hlutanum í hverjum mánuði. „Íslendingar eru vel menntaðir og tæknivæddir og hafa sjálfsagt lítið fyrir því að byrja að taka þátt í Wiki- pediu,“ segir hann. „Ég hef mikla trú á Wikipediu og námskeiðin eru mín leið til að auka nýliðun.“ Hlúa að máli og menningu  Virkir notendur Wikipediu blása til sóknar Morgunblaðið/Ómar Á Landsbókasafni Íslands Hrafn Malmquist flettir fjórða bindi Britannicu sem gefin var út 1910. Í tilefni af 10 ára afmæli hins ís- lenska hluta Wikipediu var haldið málþing um frjálsa alfræðiritið fyr- ir um mánuði. Hrafn Malmquist ákvað að fylgja því eftir og hefur boðað vikuleg Wikipediu- kvöld fyrir áhugafólk um framgang ís- lensku Wikipediunn- ar og frjálsrar þekk- ingar kl. 20.00 til 22.00 á fimmtu- dögum og verð- ur það þriðja í kvöld. Vinum Wiki- pediu er stefnt í tölvuverið á 3. hæð í Þjóðarbókhlöðunni þar sem Hrafn Malmquist og aðrir vanir notendur Wikipediu leiðbeina þátttakendum um það hvernig hægt er að vinna við Wikipediu. Hrafn áréttar að öllum sé frjálst að sækja námskeiðin og framlögin geti verið af margvíslegum toga, svo sem styttri eða lengri skrif, leiðréttingar og bætt málfar, inn- setningar á myndum og fleira. Opin námskeið fyrir alla VIKULEG WIKIPEDIUKVÖLD Á FIMMTUDÖGUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.