Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014 20-50%afsláttur af öllum bókum og öðrum vörum í verslununum daga 10. - 12. janúar! Útsala hefst í IÐU í dag! Bæði í Lækjargötu og IÐU Zimsen Vesturgötu Lækjargata 2a og Vesturgata 2a 101 Reykjavík. Opið frá 9 - 22 alla daga Snjóflóðavakt Veðurstofunnar ákvað síðdegis í gær að aflétta óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Fyrr um daginn var aflýst hættustigi á svæði á Ísafirði þar sem rýmt var vegna snjóflóðahættu. Ný snjóflóð af stærri gerðinni sáust ekki í gær. Þó voru skráð á snjóflóðavef Veðurstofunnar sex minni flóð utan Ytra-Bæjargils við Flateyri. Þau höfðu fallið á um einni klukkustund en náðu rétt út úr gilk- jöftum. Veðurstofan gat þess í tilkynn- ingu að mikill snjór væri til fjalla á Vestfjörðum, Norðurlandi og Aust- fjörðum. Stór snjóflóð gætu því enn fallið, þótt óvissustigi hefði verið aflétt. Ferðalangar voru beðnir að hafa varann á í fjöllum, sér í lagi þegar farið væri um brattlendi. Á Vestfjörðum var þæfingsfærð í gærkvöldi og skafrenningur á Klettshálsi en snjóþekja og skaf- renningur á Þröskuldum. Hálka er á öðrum fjallvegum á Vestfjörðum og víða um land en auk þess skaf- renningur á Steingrímsfjarð- arheiði. Veðurstofan spáir vaxandi aust- anátt á landinu í dag og að vindurinn verði 10 til 18 metrar á sekúndu síð- degis, hvassast við suðurströndina. Dálítil él geta fallið austanlands. Víða þykknar upp í kvöld. Hiti verð- ur að fimm stigum sunnanlands en annars um frostmark. Spáð er kóln- andi veðri á morgun með rigningu, slyddu eða snjókomu sunnan- og austantil, en úrkomulitlu annars staðar um landið. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Ísafjörður Ekki urðu neinar skemmdir í snjóflóðum á Vestfjörðum. Óvissustigi vegna snjóflóða aflýst  Ferðamenn hafi varann á í bratta Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Í vinningstillögu í samkeppni um hönnun göngu- og hjólabrúa yfir El- liðaárvoga kom fram að kostnaður við þær næmi 95 milljónum króna, að meðtöldum göngustíg á milli brúnna en ekki tengingu við stíga- kerfi borgarinnar, samkvæmt upp- lýsingum frá Reykjavíkurborg. Sú áætlun var metin óraunhæf af dómnefnd sem lét gera sína eigin áætlun, áður en hún tók ákvörðun um hvaða tillögu hún myndi mæla með og hljóðaði sú kostnaðaráætlun upp á 160 milljónir, samkvæmt upp- lýsingum frá borginni. Í kynningu frá framkvæmda- og eignasviði frá í október 2012 kemur fram að þótt „frumkostnaðaráætl- un“ hafi hljóðað upp á 160 milljónir gerði kostnaðaráætlun II ráð fyrir að heildarkostnaður yrði 230 millj- ónir. „Helstu ástæður hækkunar á kostnaði eru vegna vanáætlunar á umfangi fyllinga við vestari brúna, vanáætlunar á lýsingu og umfangi grundunar vegna endastöpla ásamt aukningu á stálmagni vegna brúar- gólfs,“ segir í kynningunni. Þar var ekki gert ráð fyrir kostnaði við án- ingarstað. Í svari sem Morgunblaðið fékk frá Reykjavíkurborg í september kom fram að kostnaður væri áætl- aður 250 milljónir. Nú í janúar er talið að kostnaður verði 264 millj- ónir, þar af verði framkvæmda- kostnaður 228 milljónir og hönnun- ar- og eftirlitskostnaður verði 36 milljónir. Ekki óhagkvæmt Formaður dómnefndarinnar sem valdi vinningstillöguna var Ámundi V. Brynjólfsson, skrifstofustjóri skrifstofu framkvæmda og viðhalds hjá Reykjavíkurborg. Hann segir að nefndin hafi aldrei miðað við kostn- aðaráætlun hönnuða heldur áætlun sem sérfræðingar hefðu gert fyrir nefndina. Kostnaður við brýrnar réðist einkum af lengd brúargólfanna en þau hefðu ekki getað verið styttri þar sem ekki hefði mátt þrengja ár- farveginn. Hvorki byggingarefnið né form burðarvirkisins væri óhag- kvæmt í sjálfu sér. Hefði önnur til- laga orðið fyrir valinu, s.s. sú í 2. sæti, hefði kostnaður við fram- kvæmdina orðið svipaður. Kostnaður vó 30% í mati dóm- nefndar en Ámundi sagði að nið- urstaða dómnefndar hefði orðið sú sama hefði heildarkostnaður við brýrnar legið fyrir þegar ákvörðun var tekin um vinningstillöguna. Aðspurður sagði hann að hönn- unar- og eftirlitskostnaður, 36 millj- ónir, væri ekki óeðlilega hár, miðað við framkvæmd af þessum toga. Frumáætlun var upp á 160 milljónir króna  Úr 95 milljónum í 160, síðan í 230, 250 og loks í 264 millj. Morgunblaðið/Þórður Upp Í maí 2012 var tilkynnt að Teiknistofan Tröð hefði unnið samkeppnina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.