Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ekki verðursagt aðborgarbúar séu áhugasamir um kosningar til borg- arstjórnar í vor. Sú var tíð að kosn- ingar í höfuðborg- inni þóttu barátta á borð við al- þingiskosningar og verulegur ákafi var einnig í „rétt“ úrslit í öðrum sveitarfélögum. Að þessu leyti skáru Íslendingar sig lengi vel úr, ef horft var til annarra landa. Í sumum ná- grannalöndunum hafði áhugi á sveitarstjórnarmálum minnkað mikið fyrir áratugum. Það á við bæði um Norðurlöndin og Bret- land. Í Bretlandi ná aðeins ónýtar kosningar til ESB-þings að slá út kosningar til sveit- arstjórna, þegar áhugaleysi er viðmiðunin. En þá er sjálfsagt spurt hvort það geri nokkuð til þótt lýðræðislegur áhugi á sveit- arstjórnum hrynji svona. Er ekki áhugaleysið meðal annars merki um það að svigrúm sveit- arfélaga til að bera sig öðru vísi að en gerist sé lítið. Lagarammi um sveitarfélög og verkefni þeirra verði sífellt þrengri og nákvæmar sniðinn til. Fjár- munir þeirra étist upp í óstöðv- andi vöxt svokallaðrar fé- lagslegrar þjónustu og framfærslu af margvíslegu tagi. Slíkur þáttur hefur vaxið langt umfram viðmiðunartölur um almenna þróun efnahags- lífs. Kjörnir fulltrúar hafa fyrir löngu gefist upp fyrir þessum þætti og því sést þar lítill eða enginn munur á flokkum. Það reyndar hefur gilt að mestu leyti einnig um aðra málaflokka líka í höfuðborginni um nokkra hríð. Borgaryfirvöld voru lengi mjög framtakssöm og gengust upp í að veita borgarbúum öfl- uga þjónustu. Þau litu svo á að hæst alls á hillu borgarinnar væri þjónustuhlutverk hennar. Af þessum ástæðum var höf- uðborgin löngum fyrirmynd annarra sveitarfélaga í slíkum efnum. Síðustu árin hefur þjónustu- hlutverkið verið hornreka og borgaryfirvöld leyna ekki nei- kvæðri afstöðu sinni til þess. Þau fara fram með margvíslegu offorsi gagnvart borgarbúum og hreinum geðþótta. Aft- urvirkar reglur eru settar, þótt ólögmætt sé, og þess verður ekki einu sinni vart að um það sé ágreiningur í borgarstjórn Reykjavíkur. Skyndilega var ákveðið að í grónum hverfum skyldi refsa íbúunum ef sorp- tunna stæði lengra en 15 metr- um frá stoppustað sorpbíls. Slíka reglu er hægt að setja í tengslum við skipulag nýs hverfis, sem tæki þá mið af því. En beiting hennar er hreinn yf- irgangur í fullbyggðum hverf- um þar sem hús voru staðsett og reist með fullum leyfum yfirvalda. Nú síðast hafa sorphirðumenn fengið fyrirmæli borgaryfirvalda um að róta í sorptunn- um íbúa borg- arinnar, án þess að Persónu- vernd hafi svo mikið sem rumskað af værum svefni sín- um. Síðustu áratugina hefur að- staða hjólreiðamanna smám saman verið bætt, sem er gott. En samhliða því hefur sá ágæti áhugi á síðustu árum breyst í offors gegn bifreiðaeigendum, en það er annað heiti á lang- flestum borgarbúum, sem komnir eru til vits og ára. Um þessar atlögur hefur ríkt prýði- leg sátt í höfuðborginni síðan að Sjálfstæðisflokkurinn virtist hætta þar starfsemi að öðru leyti en að nafninu til. Atlagan að bifreiðaeigendum er samofin inn í hið nýja Aðalskipulag borgarinnar og verði það leið- sögn til framtíðar munu bif- reiðaeigendur ekki sjá hvað til þeirra friðar heyrir fyrr en það verður orðið of seint. Nú hefur íslenska ríkisstjórnin, þvert of- an í eitt af fáum skýrum atrið- um í stjórnarsáttmála, fengið einn af ráðherrum Jóhönnu og Steingríms til að leita fyrir sig að nýjum flugvelli innan marka borgarlandsins. Ekki er vitað hvernig sú leit fer fram. Áður hafði mjög verið rætt um nýja flugvallargerð á Hólmsheiði og sú hugmynd nánast verið af- skrifuð. Þó er fullmikið sagt að heiðin hafi týnst. Ekki er því vitað hvar ráðherrann fyrrver- andi úr Jóhönnustjórninni er að leita. Sérstaklega er tekið fram af fulltrúum ríkisstjórnarinnar, að þegja eigi yfir öllum undir- málum í flugvallarmálinu fram yfir kosningar. Þeir Jón og Dagur eru sjálfsagt hissa að fá stóra vinninginn í happdrætti sem þeir áttu engan miða í. Fyrir fáeinum árum ákváðu borgaryfirvöld að taka af pínu- litla þægindaþjónustu sem fyr- irrennar þeirra höfðu talið að borgarbúar hefðu greitt fyrir með útsvari sínu, sem þó var þá stillt í hóf miðað við það sem nú tíðkast. Þau sáu að gera mætti borgarbúum smá miska með því að hætta að sækja til þeirra jólatré eftir þrettándann. Þess- ir bílahatarar í borgarstjórn- inni unnu það til að láta tugi þúsunda bifreiða skutlast með tré á förgunarstað, til að mega undirstrika þá skömm sem þeir hafa á því þjónustuhlutverki sem borgaryfirvöld höfðu áður í hávegum. Kannski er sú full- yrðing ekki sanngjörn. Kannski ætluðust þau til að gamla jóla- tréð yrði almennt flutt á bögglaberanum eða tekið með í strætó. Sveitarstjórn- armenn sem hafa hafnað þjónustu- hlutverkinu hafa misst tilverurétt} Ævintýri á afturför J ón Gnarr ruglaði marga í ríminu með innkomu sinni í borgarmálin. Engir urðu þó jafnráðþrota og sjálfstæð- ismenn sem fannst þeir vera að horfa upp á borgarbúa glata skynseminni. Nú hyggst Jón Gnarr hætta pólitískum af- skiptum og sjálfstæðismenn andvarpa feg- insamlega. Þó eru þeir enn ráðþrota því ekkert bendir til þess að borgarbúar muni sjá að sér og veita hægrisinnuðum borgaralegum öflum atkvæði sitt. Nei, borgarbúar virðast einfald- lega ansi hrifnir af arfleifð Jóns Gnarrs og því líklegir til að kjósa aðstoðarmann hans og Bjarta framtíð í næstu borgarstjórnar- kosningum. Sjálfstæðismenn botna ekkert í borgarbúum. Þeir telja sig sífellt vera að reyna að koma vitinu fyrir Reykvíkinga en komast ekkert áleiðis. Í fylgisleysinu beina einhverjir sjálfstæðismenn spjót- um sínum að forystumanni Sjálfstæðisflokksins, Halldóri Halldórssyni, þeim væna manni, sem hefur unnið það sér til óhelgi hjá ákveðnum harðlínukjarna að vera frjáls- lyndur og Evrópusinnaður. Okkur vinum Evrópusam- bandsins finnst Halldór mikill fyrirmyndarmaður í pólitík og skiljum ekki ólundina í hans garð. En við skiljum nátt- úrlega ekki allt og síst af öllu þankagang allra deilda innan Sjálstæðisflokksins. Sennilega myndi litlu sem engu skipta fyrir sjálfstæð- ismenn hver væri foringi þeirra í borginni. Það virðist ein- faldlega vera ríkjandi ákveðið stemningsleysi meðal borg- arbúa þegar borgarstjórnarflokkur sjálf- stæðismanna á í hlut og ekki er ljóst fyrir hvaða baráttumál flokkurinn stendur. Þá er ekki lokkandi tilhugsun að ljá flokknum at- kvæði sitt. Stór hluti sjálfstæðismanna skilur ekki enn af hverju borgarbúar kusu Jón Gnarr. Í aug- um þessa hóps mun Jón Gnarr ætíð verða trúður sem átti ekkert erindi inn í íslensk stjórnmál. Þessum hópi finnst að borgar- stjórinn í Reykjavík eigi að vera settlegur embættismaður sem þylur tölur fyrir framan sjónvarpsvélar. Jón Gnarr var aldrei þannig borgarstjóri. Hann var mannlegur og hlýr, skapandi og frumlegur. Þess vegna tengdu borgarbúar við hann. Þvert á allar hrakspár um þær skelfingar sem myndu dynja yfir borg og borgarbúa þegar lista- mönnum væri hleypt lausum við stjórn borgarinnar stóð Besti flokkurinn sig vel. Þetta var ekki þumbaralegur stofnanaflokkur heldur hreyfing skapandi fólks sem lagði sig fram við að vanda sig. Vissulega gerði það sín mistök, en það var reiðubúið að læra og bæta sig. Besti flokkurinn var tilraun sem tókst. Sjálfstæðismenn munu örugglega halda áfram að líta á Jón Gnarr sem trúð sem átti ekkert erindi í stjórnmálin en um leið eru þeir blýfastir í einstrengingslegri pólitík sem er löngu hætt að heilla kjósendur. Kjósendur vilja skap- andi stjórnmálamenn sem afneita ekki mannlega þætt- inum, hvorki í lífinu sjálfu né í pólitíkinni. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Tilraun sem tókst STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Rúnar Pálmason runarp@mbl.is S amgöngustofa lítur svo á að um ómönnuð loftför, þar á meðal lítil fjarstýrð flygildi, gildi sömu reglur og um mönnuð loftför. Lög um loftferðir og reglugerð um flugreglur gildi því um þau eins og önnur loftför. Og þessar reglur eru bæði ítarlegar og strangar. Áhugi almennings á fjarstýrðum flygildum, einkum litlum fjarstýrðum þyrlum, fer mjög vaxandi erlendis, m.a. í Bandaríkjunum en einnig hér á landi. Samgöngustofa bendir á að um ómönnuð loftför gildi „almennt“ sömu reglur og um mönnuð loftför. Samkvæmt reglugerð um flugreglur teljist loftfar „sérhvert tæki sem haldist getur á flugi vegna verkana loftsins annarra en loftpúðaáhrifa við yfirborð jarðar. Einnig eru í gildi sérstakar regl- ur um flugvélalíkön og er það mat Samgöngustofu að þær reglur nái líka til ómannaðra loftfara. Í þeim reglum segir m.a. að ekki þurfi leyfi til klifurs flugvélalíkana sem eru minni en 5 kíló að heildarþyngd, nema þau séu knúin áfram með eld- flaugum. Ef loftfarið er þyngra en 5 kíló þarf að uppfylla alls kyns skilyrði fyrir „starfrækslu“ þeirra , m.a. senda inn lýsingu á flugleiðinni, áhættumat, það þarf leyfi frá lög- reglu o.fl. Greinargóðar upplýsingar eða samantekt um hvaða hæðartakmark- anir gilda hér á landi um flygildi eru ekki aðgengilegar á vef Samgöngu- stofu og upplýsingar um slíkar tak- markanir fengust ekki í gær. Haldi sig undir 500 fetum Sverrir Gunnlaugsson, sem er virkur í Þyt, sem er klúbbur flug- módelmanna, segir að þeir sem hafi verið að forvitnast um reglur fyrir flygildi hjá Flugmálastjórn, nú Sam- göngustofu, hafi fengið þau svör að flygildin komi stofnuninni í rauninni ekkert við. Þótt ekki séu allir sammála um að sömu reglur gildi um flygildi og flugmódel, miði margir við að svo sé. Eftir því sem hann komist næst séu ekki í gildi sérstakar reglur um þá flughæð sem flugmódel megi fara í. Flugmódelmenn verði því að taka mið af því loftrými sem ekki er frá- tekið fyrir flug mannaðra loftfara; flugvéla eða fisvéla. Utan þéttbýlis, eða við flugvelli, megi ekki fljúga slíkum vélum lægra en í 500 fetum. Loftrýmið frá 500 fetum og niður á jörðu sé því hálfgert „einskis manns land“ og þar telja flugmódelmenn að þeim sé heimilt að athafna sig. Þá hafi flugmódelmenn sett sér ýmsar reglur, s.s. að fljúga ekki yfir þéttbýli eða yfir mannfjölda, enda sé alltaf hætta á að módelið hrapi. Þó sé talið í lagi að fljúga líkönum úr frauð- plasti í þéttbýli en þau vega aðeins um 500 grömm. Svokallaðar fjölþyrlur, flygildi með marga litla þyrluhreyfla, eru all- vinsælar hér á landi og Sverrir segir að sífellt auðveldara sé að fljúga þeim – og mun auðveldara heldur en hefð- bundnum flugvélamódelum. Flug- módelmenn hafi af því nokkrar áhyggjur að flygildi sem flogið er yfir mannfjölda falli niður og valdi slysum á fólki. Slíkt gæti leitt til þess að sett- ar yrðu stífar reglur sem mundu bitna á flugmódelsportinu. Því hvetur hann alla sem eignast flygildi til að hafa sam- band við Þyt eða aðra flug- módelklúbba og leita upp- lýsinga og aðstoðar. Þá ítrekar hann nauðsyn þess að fólk kaupi sér trygg- ingar því valdi flygildi tjóni sé eigandinn eða sá sem stjórnar því annars að fullu ábyrgur. Félagsgjald í Þyt er 12.000 krónur og eru tryggingar innifaldar. Áhyggjur af flygild- um yfir mannfjölda Ljósmynd/Sverrir Gunnlaugsson Flug Í flugreglunum kemur fram að engum flugvélalíkönum má fljúga innan við 1,5 km frá flugvöllum. Á myndinni er stærsta flugmódel landsins. Fyrirtæki sem smíða flygildi virðast eiga auðvelt með að laða að fjárfesta og flygildin verða sífellt ódýrari og betri. Sem dæmi má nefna að flyg- ildið sem tók myndir af flug- eldaskothríðinni í Reykjavík á gamlárskvöld, en það mynd- band hefur farið víða, kostar 483 dali á Amazon.com (um 57.000 krónur). Flygildið vegur rúmlega eitt kíló. Bandaríska þingið fól nýverið Bandaríska loftferðaeftirlitinu (FAA) að smíða sérstakar regl- ur um flygildi fyrir árið 2015 og að reglur um flygildi sem eru léttari en 55 pund (25 kg) yrðu tilbúnar enn fyrr. Sem stendur má ekki nota flygildi í atvinnu- skyni í Bandaríkj- unum, nema með sérstöku leyfi. Um flygildin gilda sömu regl- ur og um flug- vélamódel og má ekki fljúga þeim hærra en 400 fet (122 metra). Verða ódýr- ari og betri FÁST Á AMAZON SAR eye félagar með leitarflygildi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.