Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 10
Morgunblaðið/Kristinn Leiklist Stúdentaleikhúsið kynnir áhugasömum leikárið í kvöld. Háskólanemendur sem hafa áhuga á leiklist ættu endilega að líta inn á kynningarfund Stúdentaleikhússins í kvöld. Fundurinn hefst klukkan 20 í Stúd- entakjallaranum í Hinu húsinu. Verkefni annarinnar verða kynnt ásamt starfi Stúdentaleikhússins. Leikstjóri þessarar annar er Tryggvi Gunnarsson, leikstjóri, leikari og höf- undur. Tryggvi er ekki ókunnur Stúd- entaleikhúsinu því hann var formað- ur þess 2005-2007. Leikhúsið getur verið góður grunn- ur að því sem koma skal. Kynningar- fundur í kvöld Stúdentaleikhús 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014 Tökum að okkur trjáklippingar, trjáfellingar og stubbatætingu. Vandvirk og snögg þjónusta. Sími 571 2000 www.hreinirgardar.is Malín Brand malin@mbl.is B jarni var í góðri vinnu með fín laun en hann sagði starfi sínu lausu til þess að geta gert það sem hann raun- verulega langaði. Það var að skrifa sögur fyrir börn. „Mig langaði til að fylgja þessum draumi eftir því mér finnst gaman að gera skapandi hluti og að búa eitthvað til alveg frá grunni. Hann stofnaði fyritækið Ort- hus árið 2012 og hefur gefið út níu bækur sem komnar eru á netið og aðgengilegar í appformi. „Ég flutti úr miðbæ Reykja- víkur á Selfoss og kláraði bæk- urnar þar því það er ódýrara að búa þar,“ útskýrir Bjarni sem á sama tíma kenndi crossfit í Sport- stöðinni á Selfossi. „Ég bjó bara í bílskúrnum hjá systur minni og kenndi crossfit í frítímanum,“ seg- ir Bjarni. Fleiri bætast í hópinn Bjarni fékk gott fólk til liðs við sig á þessum tímapunkti. Rit- höfundurinn Helgi Már fór að skrifa með Bjarna og voru þeir sammála um að beina þyrfti sjón- um að menningarupprunanum. „Við ákváðum að taka þá Þór og Loka og gera þá að litlum krökkum þannig að í sögunni eru þeir svona sex til sjö ára. Þetta er byggt á norrænni goðafræði en er ekki alveg eftir bókinni,“ segir Bjarni og segist sleppa því sem er gróft og ekki við hæfi barna. „Fenris og Slepnir eru þarna en sagan af því hvernig þeir urðu til er kannski ekki barnvæn,“ seg- ir hann. Þeir tóku að skrifa af fullum krafti og í miðjum klíðum bættist teiknarinn Karítas Gunnarsdóttir í hópinn og þar með lifnuðu sögu- persónurnar við. Engir milljónamæringar Bjarni segir að markmiðin með útgáfunni séu skýr. „Við vit- um að við erum ekkert að fara að verða milljónamæringar á þessu. Við vitum líka að það er allt of lít- ið til af öppum fyrir krakka á ís- lensku, til að hjálpa þeim að lesa, skrifa og reikna. Ég held að það sé mjög mikilvægt að framleiða efni á íslensku því þetta er hverf- andi tungumál og enskan er að taka svolítið yfir. Það sama á við um menningu okkar. Við eigum of- boðslega fallega og skemmtilega menningu og mér finnst mikilvægt að börn fái að tengjast þeirri menningu á meðan þau eru að æfa sig að lesa og kynnast þá þessum skemmtilega heimi,“ segir Bjarni. Að leggja hönd á plóg Þó svo að Bjarni hafi flust til bæjarins góða, Selfoss, og notað tímann vel er hann aftur fluttur til Flutti á Selfoss til að skrifa barnabækur Bjarni Einarsson er einn þremenninganna sem standa að útgáfu barnabóka á vefnum undir merkjum Orthus. Bækurnar eru aðgengilegar gegnum Android eða iTunes og eru þremenningarnir sannfærðir um að íslensk börn þurfi að þekkja menningararfleifðina. Því þótti þeim vel við hæfi að skrifa bók um Þór og Loka og fleiri úr norrænu goðafræðinni. Í sögunum eru goðin börn, eins og lesendurnir. Tríóið Fólkið að baki sögunum: Bjarni, Karítas og Helgi Már. Röddin Ari Eldjárn ljær persónum sögunnar um þá Loka og Þór rödd sína. Íbúar Reykjanesbæjar geta nú látið í ljós skoðanir sínar og komið til- lögum á framfæri í gegnum nýja vefgátt sem formlega verður tekin í gagnið í dag. Íbúavefurinn hefur slóðina rnb.i- buavefur.is en qr-kóði vefsins er hér að neðan fyrir þá sem líta vilja á vefinn í snjallsíma. Vettvangur hugmynda Facebooksíðan Reykjanesbær – Gerum góðan bæ betri, er sá vett- vangur þar sem fólk hefur getað komið með ábendingar eða tillögur. Þar má glöggt greina af skrifum íbúa að Íbúavefurinn er kærkomin viðbót við þá þjónustu sem bærinn hefur upp á að bjóða. Nú þegar má sjá hugmyndir og óskir íbúa um skautasvell í bæinn, tillögur að snyrtilegri ásýnd garða og fleira í þeim dúr. Á vefnum gefst íbúum kostur á að „leggja inn“ hugmyndir um ýmis mál tengd samfélaginu og ef aðrir íbúar sýna hugmyndinni áhuga eru líkur á að hugmyndin komi til fram- kvæmda. Í rauninni geta íbúar gef- ið hugmyndum einkunn. Ekki beintengt stjórnsýslunni Vefurinn er ekki í beinni teng- ingu við stjórnsýslu bæjarins held- ur er meginmarkmiðið með honum að skapa umræðugrundvöll þar sem íbúar geta skipst á skoðunum. Sá sem hefur umsjón með vefn- um sér til þess að ábendingarnar berist réttum aðilum innan stjórn- kerfisins Sambærilegar tilraunir með íbúa- vefi hafa verið gerðar í Rangárþingi eystra og í Reykjavík. Hlutum kippt í lag Annar vefur fer í loftið í dag, samhliða íbúavefnum en það er svokallaður ábendingavefur um um- bætur í umhverfismálum. Af Fa- cebooksíðu bæjarins að dæma hafa íbúar gjarnan komið með ábend- ingar um það sem betur mætti fara en með síðunni ætti að vera hægt að koma ábendingum áleiðis með skilvirkari hætti en á samfélags- miðlinum. Þegar skrifuð er ábending um umhverfisbætur getur viðkomandi merkt staðsetningu þess sem kippa þarf í lag inn á kort og berast skilaboðin beint til Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanesbæjar sem vinnur úr ábendingunni. Slóðin á ábendingavefinn er map.is/dvergur/clients/ath_rnb. „Mitt Reykjanes“ Alls eru vefsíðurnar fjórar sem eru samtengdar bænum á mismun- andi hátt. Íbúar geta farið inn á það sem nefnist „mitt Reykjanes“ en þar er haldið utan um upplýs- ingar hvers og eins um fast- eignagjöld, umönnunargreiðslur og þess háttar. Á sama stað getur íbúi sent formlegt erindi til stjórnsýsl- unnar. Fjórði vefurinn er sjálf heimasíða Reykjanesbæjar sem er almennur upplýsingavefur. Vefsíðan www.rnb.ibuavefur.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Reykjanesbær Nýr íbúavefur verður tekinn í notkun í dag. Íbúar Reykjanesbæjar til áhrifa Til að lesa Skannaðu kóðann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.