Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014 Dauðarokkssveitin Svartidauði heldur í tónleikaferðalag um Evr- ópu í mars. Hljómsveitin mun leika í níu löndum á jafnmörgum dögum og verða með í för hljómsveitirnar Mgla frá Póllandi og One Tail, One Head frá Noregi. Seinustu tón- leikar ferðarinnar fara fram á tón- listarhátíðinni Speyer Grey Mass í Þýskalandi en á henni leika m.a. hljómsveitirnar Archgoat frá Finn- landi, Ofermod frá Svíþjóð og Nightbringer frá Bandaríkjunum. Fyrstu tónleikar ferðarinnar verða haldnir 7. mars í Kraká í Pól- landi og er förinni heitið þaðan til Tékklands, Slóveníu, Ítalíu, Sviss, Englands og Belgíu en tilkynnt verður síðar hvar sveitin leikur 12. mars. Seinustu tónleikarnir verða haldnir 15. mars í Þýskalandi á fyrrnefndri hátíð. Svartidauði hef- ur leikið víða um Evrópu und- anfarið ár og einnig hér á landi, á Iceland Airwaves. Svartidauði sendi fyrstu breiðskífu sína frá sér fyrir ári, Flesh Cathedral. Hlaut hún lof gagnrýnenda og var of- arlega á árslistum margra erlendra tímarita árið 2012. Drungalegt Eins og sjá má eru liðsmenn Svartadauða vígalegir á sviði. Íslenskt dauðarokk í Evrópulöndum Franska leikstjórann Mic-hel Gondry ættu flestirað þekkja en hann hefurverið margverðlaunaður fyrir verk á borð við Eternal Sunshine of the Spotless Mind, The Science of Sleep og Human Nature. Auk þess hefur hann leik- stýrt fjölda tónlistarmyndbanda og meðal annars unnið náið með Björk. Í nýjustu kvikmynd sinni, Mood Indigo, varpar hann ansi súrrealísku ljósi, eins og honum einum er lagið, á ástir Chloés (Audrey Tautou) og Colins (Roma- in Duris). Sagan, sem gerist í Par- ís, segir frá því er parið góða þarf að takast á við illkynja blóm sem tekur sér bólfestu í lunga Chloés. Leikmyndin segir söguna Það er kannski engin furða að reynsluboltarnir Tautou og Duris stígi ekki feilspor í kvikmyndinni en leikur þeirra er einkar sann- færandi. Þau fá einnig góðan stuðning frá aukaleikurunum Gad Elmaleh og Omar Sy sem gerði einmitt garðinn frægan í kvik- myndinni The Intouchables. Þess má geta að áhorfið verður eflaust ánægjulegra ef áhorfandinn kann eitthvað fyrir sér í frönsku en stöku orðagrín sem þýðist illa ætti þó ekki að eyðileggja neitt fyrir neinum. Leikmynd sú sem Gondry nær að skapa segir ákveðna sögu sjálf og ljóst að andi þýska expressjón- ismans svífur yfir vötnum. Tilfinn- ingar þær sem í leikmyndinni búa eru í raun svo magnaðar að sagan kæmist hálfpartinn jafn vel til skila þó allar samræður væru klipptar út. Er sagan verður átak- anlegri verða litirnir daufari og umhverfið hrárra og að lokum er myndin orðin svarthvít og þrúg- andi. Tónlistin leikur einnig stórt hlutverk og styður leikmyndina vel. Að sama skapi er ekki hægt að kvarta yfir því hversu mikla at- hygli meistari Duke Ellington fær í myndinni. Brellur draga úr angurværð Það sem má hvað helst setja út á myndina er hversu mikið brellur Gondrys, sem eru frábærar út af fyrir sig, skyggja á annars átak- anlegan en fallegan söguþráðinn. Handrit kvikmyndarinnar er byggt á bókinni Froth on the Day- dream sem Frakkinn Boris Vian skrifaði árið 1947. Gondry hefur greinilega tekið sér það bessaleyfi að krukka í framvindu sögunnar með uppátækjum sínum. Tækni- brellurnar eru því í senn það skemmtilega við myndina og það sem dregur úr áhrifamætti henn- ar. Blómið sem vex í iðrum kon- unnar á greinilega að vera tákn- mynd krabbameins eða einhverskonar illkynja æxlis en áhorfandinn á í erfiðleikum með að meðtaka baráttuna sökum útúr- snúninga leikstjórans. Það mætti vera meira jafnvægi á framvindu og brellum myndarinnar eins og Gondry hefur sannað að hann er fær um að gera, meðal annars í kvikmyndinni Eternal Sunshine of the Spotless Mind. Það er hinsvegar jákvætt að láta áhorfandann hafa svolítið fyr- ir því að átta sig á því hvað sé að gerast í kvikmyndinni. Það er einnig ljóst að hvort sem áhorf- andinn áttar sig á framvindu sög- unnar eður ei þá getur hann ekki annað en heillast af frumleika leikstjórans. Ef viðkomandi getur síðan meðtekið aðeins brot þeirrar þjáningar sem sagan tjáir í raun þá ætti enginn að verða vonsvik- inn. Sannfærandi „Það er kannski engin furða að reynsluboltarnir Tautou og Duris stígi ekki feilspor í kvikmyndinni en leikur þeirra er einkar sannfærandi,“ segir gagnrýnandi m.a. um nýjasta verk Michel Gondry, Mood Indigo. Lungnaliljur og lofnarblóm Bíó Paradís Mood Indigo bbbbn Leikstjóri: Michel Gondry. Handrit: Michel Gondry og Luc Bossi. Aðalhlutverk: Audrey Tautou, Romain Duris, Gad Elmaleh og Omar Sy. Frakkland og Belgía, 2013. 90 mín. DAVÍÐ MÁR STEFÁNSSON KVIKMYNDIR Tvær sýningar verða opnaðar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag kl. 17, annars vegar sýning franska ljósmyndarans Vincents Malassis í Kubbinum og hins veg- ar sýning spænska ljósmyndarans Elo Vázquez í Skotinu. Malassis sýnir verkið „Petites Pauses“, landslagsmyndir og portrett af íbúum þorps í skóg- lendi Bretaníuhéraðs í Frakk- landi. „Hringsól hversdagsleikans og aðstæður persónanna ganga þvert á stellingarnar sem ljós- myndarinn hefur sett þær í. Myndirnar eru á mörkum heimild- arljósmyndunar og uppstilltra ljósmynda, í anda vestrænnar málaralistar,“ segir um verk Malassis í tilkynningu. Malassis býr og starfar sem ljósmyndari í Frakklandi og er einnig tónlistarmaður, semur m.a. tónlist fyrir leikhús. Vázquez opnar sýninguna „Be- hind“. „Öll skiljum við hluti eftir, og öll erum við skilin eftir. Hand- an við hið augljósa er hulinn heimur. Þessar ljósmyndir kveikja ljós og stökkva á bak við hluti í bæði tíma og rúmi. Elo Vázquez sýnir okkur það sem augu hennar hafa lært að sjá: það sem liggur undir, það sem hvílir fyrir aftan,“ segir um þá sýningu í tilkynningu. Vázques býr og starfar á Spáni og á Íslandi og hafa ljósmyndir hennar verið birtar í net- og prentmiðlum og sýndar á einka- og samsýningum. Þorpsbúar Ljósmynd eftir Malassis úr verkinu „Petites Pauses“. Vázquez og Mal- assis í Ljósmynda- safni Reykjavíkur Handverksbakarí fyrir sælkera LLSBAKARÍ Daglega er bakað bakkelsi sem fá bragðlaukana til að kætast. Hjá okkur er hægt að fá þetta gamla og góða og einnig eitthvað nýtt og spennandi. Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík s. 566 6145 | mosfellsbakari.is MOSFE

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.