Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014 ✝ Georg ÞórSteindórsson fæddist í Reykjavík 28. júlí 1972. Hann lést af slysförum 26. desember 2013. Hann var sonur Önnu Marie Georgsdóttur, f. í Reykjavík 28. júlí 1954 og Steindórs Steinþórssonar, f. í Reykjavík 20. júlí 1950. Foreldrar Önnu Marie eru Georg Jósefsson, f. 3. október 1928, d. 31.12. 1994 og Steinlaug Sigurjónsdóttir, f. 21. desember 1935. Foreldrar Steindórs voru Steinþór Eiríksson, f. 8. október 1904, d. 4. mars 1994 og Guð- ríður Steindórsdóttir, f. 12. október 1916, d. 26. ágúst 2001. Barn Georgs Þórs og fyrrver- andi sambýliskonu, Katrínar Georg Þór ólst upp með for- eldrum sínum fyrstu árin að Reynimel 24, í sama húsi og æskuheimili föður hans var. Síð- an lá leiðin í Seljahverfið þar sem fjölskyldan hreiðraði um sig stuttu eftir að Margrét Lind, systir hans, kom í heiminn. Georg Þór var fyrsta námsárið í Melaskóla og síðan í Seljaskóla. Um tíma var hann á samningi í málaraiðn og í námi við Iðnskól- anum í Reykjavík. Georg hóf snemma að vinna við hin ýmsu störf, m.a. hjá Ís- taki í byggingarvinnu og um tíma var hann til sjós. En segja má að alla sína starfsævi hafi Georg Þór unnið við húsamálun, bæði hjá öðrum og sem sjálf- stætt starfandi. Hann átti m.a. öfluga jeppa sem hann fór á fjöl- margar ferðirnar á fjöll með vinum sínum og var félagi í 4x4 klúbbnum. Þá áttu mótorhjól hug hans enda eignaðist hann fjölmörg hjól. Útför Georgs Þórs fer fram í Vídalínskirkju í Garðabæ í dag, 9. janúar 2014, og hefst athöfnin kl. 15. Guðjónsdóttur, f. 24. september 1974, Tinna, f. 11. desember 1993. Þau slitu sam- vistum. Systir Georgs er Margrét Lind Steindórs- dóttir, f. 16. maí 1979, gift Björgvini Guðjónssyni, f. 29. janúar 1975. Börn Margrétar og Björgvins eru Bjarki Freyr, f. 4. ágúst 2003 og Breki Þór, f. 24. október 2012. Í sambúð með Sig- rúnu Hörpu Grétarsdóttur, f. 5. mars 1975, þau slitu samvistum. Í sambúð með Bergþóru Ólafs- dóttur, f. 29. september 1984, þau slitu samvistum og síðast í nýlegu sambandi við Sigrúnu Þorvaldsdóttur, f. 10 október 1974. Þú ert besti faðir sem ég hefði nokkurn tímann getað óskað mér. Ég hef alltaf verið svo stolt af þér. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og tilbúinn til að hlusta á mig, ég gat talað við þig um allt, eins og besta vin. Þú verður alltaf í hjarta mínu. Ég mun aldrei gleyma góðu minningunum okkar saman. Þegar ég var lítil þá varstu mín stóra fyrirmynd, ég vildi vera al- veg eins og þú, hlusta á sömu tónlist, verða húsamálari. Við vorum líka mjög lík. Hef alltaf verið svo mikil pab- bastelpa, hlustaði meira á þig heldur en nokkurn annan. Ef einhver sagði annað þá hugsaði ég bara: „Nei, pabbi segir að það sé ekki rétt.“ Þegar ég varð eldri, þá hlust- aði ég ennþá á þig, vildi ennþá verða húsamálari, uppáhalds- hljómsveitirnar mínar voru þínar uppáhaldshljómsveitir. Vildi eignast eins bíla og þú, þú varst mikið fyrir flotta bíla. Ég hafði mikinn áhuga á að vita flestallt um bíla bara svo ég gæti verið nánari þér, átt meira sameigin- legt. Þó þú sért farinn þá muntu samt alltaf vera hjá mér. Hjálpa mér í gegnum framtíðina. Okkar uppáhaldshátíð voru áramótin og ég hefði viljað að þú hefðir getað notið þín þessi áramót, varst allt- af með svo mikla sýningu fyrir fjölskylduna. Þetta var þinn dag- ur. Ég man ekki eftir neinum áramótum þar sem ég var ekki við hliðina á þér horfandi á flug- eldana saman og að skemmta okkur. Við eltum allar flugelda- sýningar með bros á vör, bentum á stóru flugeldana og hrópuðum „VÁ!!!“ Hver flugeldur minnir mig á þig, þú varst með besta útsýnið þessi áramót og þau sem eiga eftir að koma. Ég elska þig og bíð eftir þeim degi þegar við hittumst aftur. Tinna Georgsdóttir. Elsku hjartans Georg minn. Það er erfitt að trúa því að þú sért horfinn frá okkur svona ungur og það verður tómlegt að fá þig ekki í heimsókn lengur, þú sem varst svo duglegur að skjót- ast til mín, alltaf hress og faðmur þinn traustur og hlýr. Það var aldrei nein lognmolla í kringum þig, algjör sólargeisli, elsku vin- urinn minn, svo lífsglaður og skemmtilegur. Alltaf stutt í glens og smitandi hlátur. Það verður aldrei hægt að fylla það skarð í fjölskyldunni. Við áttum ógleymanlega ferð þegar við fórum til Danmerkur, þar sem fjölskyldan leigði sum- arbústað til að halda upp á fer- tugsafmælið þitt þar sem við vor- um tíu saman og skemmtum okkur vel. Þú varst mjög góður málari, bæði vandvirkur og öruggur. Sérlega góður faðir og hugsaðir vel um dóttur þína, sem dáði þig, enda hefur hún misst mikið, bæði góðan vin og föður. Það er átakanlegt fyrir for- eldra þína að missa sinn einka- son, sem þau voru svo stolt af. Guð gefi þeim styrk. En enginn veit hvenær kallið kemur. Systir þín og hennar fjölskylda sem býr í Danmörku eiga um sárt að binda og synir þeirra löðuðust að þér og sjá á eftir góðum frænda. Þú varst góður bróðir, mágur og félagi. Ég bið Guð að varðveita þig, elsku vinurinn minn, og þakka þér yndislegar og ógleymanlegar ánægjustundir sem við áttum saman, þar til við hittumst á ný. Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, hvert andartak er tafðir þú hjá mér. (Halldór Kiljan Laxness) Þín elskandi amma, Steinlaug Sigurjónsdóttir. Elsku hjartans Goggi minn, hver hefði getað trúað því að ég væri að kveðja þig í síðasta sinn þegar þú kvaddir mig með fal- legum orðum og kysstir mig bless. Ég er svo þakklát í hjarta mínu fyrir allan þann tíma sem við áttum saman. Við vorum búin að þekkjast í 15 ár og búin að búa saman í tæpt ár, þessir tímar eru mér svo dýrmætir. Ég gat talað við þig um mín dýpstu leyndarmál og þú hvorki dæmdir mig né gagnrýndir. Þú sagðir mér líka þín dýpstu leyndarmál sem enginn vissi af. Ég geymi það í hjarta mínu, þar til við hitt- umst á ný. Það var alltaf stutt í grínið hjá þér enda ofboðslega skemmtileg- ur með yndislegt bros sem bræddi mann alla leið, enda ekki skrítið að lagið okkar Ég ætla að brosa með Ný danskri sé lagið okkar. Við grínuðumst mikið og gerðum gott úr öllu saman. Takk fyrir að hafa trú á mér og hjálpa mér að komast á þann stað sem ég er á. Ég er að byrja í námi þar sem þú sagðir að mínir hæfileikar væru og þar væri framinn minn. Þú dáðist oft að því hvað ég væri búin að föndra mikið og gera heimilið okkar fal- legt. Þú áttir stóran þátt í því, fallegi málarinn minn. Dagur Smári spyr og spyr um þig og ég reyni eftir bestu getu að svara honum, hann var orðinn mjög hændur að þér og saknar þín ofboðslega. Elsku hjartans Tinna mín, þú veist að dyrnar eru alltaf opnar hjá mér og ég er bara eitt símtal í burtu. Ég sendi mínar innileg- ustu samúðarkveðjur á sorgar- stund. Góður Guð styrki þig og leiði. Elsku Goggi minn, það er stórt gat í hjarta mínu en minn- ingarnar munu ávallt lifa í hjarta mér. Takk fyrir allt, elsku ástin mín. Ég ætla að brosa brosa til þín því allt verður betra er þú brosir til mín. Sælan hún hríslast, hríslast um mig þegar ég sé þig og ég brosi til þín eigum við eitthvað annað en hvort annað sem skiptir máli á örlagabáli við eigum hvort annað, eigum hvort annað að. Ég ætla að brosa brosa til þín því allt verður betra er þú brosir til mín við eigum hvort annað, eigum hvort annað að. Þín elskandi að eilífu, Sigrún Þorvaldsdóttir. Hjarta mitt er brostið. Ég mun aldrei gleyma því símtali sem breytti öllu á einu andartaki, aðfaranótt annars dags jóla, mamma var í símanum grátandi: „Hann er dáinn, Georg er dá- inn.“ Tíminn eftir þetta samtal hef- ur verið sá erfiðasti í mínu lífi, dofinn, tómleikinn, sem umlykur hjarta mitt er óyfirstíganlegur, hjarta mitt er brostið og mun aldrei gróa að fullu aftur, því brotin fóru með þér þegar þú yf- irgafst þennan heim. Eina huggun mín er sú að ég veit að þú munt varðveita þessi brot mín, þú munt varðveita þau sem dýrmætar stjörnur á himni, því þessi brot eru ég og þú, blóð- band okkar, kærleikur okkar, æska okkar og allar þær ynd- islegu minningar sem ég á um okkur saman. Ég mun ávallt geta horft upp til stjörnubjarts himins með gleði og söknuð í hjarta vitandi það að þú munt fylgjast með mér, litlu systur þinni, og gefa mér styrk í minni lífsgöngu sem eftir er. Og ég mun áfram horfa upp til þín, elsku bróðir, einungis með öðrum hætti nú, með endalausu þakklæti fyrir að hafa átt þig að þó að klippt hafi verið á streng okkar allt of fljótt. Englar eins og þú: Þú tekur þig svo vel út hvar sem þú ert. Ótrúlega dýrmætt eintak, sólin sem yljar og umhverfið vermir. Þú gæðir tilveruna gleði með gefandi nærveru og færir bros á brá svo það birtir til í sálinni. Sólin sem bræðir hjörtun. Í mannhafinu er gott að vita af englum eins og þér. Því að þú ert sólin mín sem aldrei dregur fyrir. (Sigurbjörn Þorkelsson) Margrét Lind Steindórsdóttir. Ég trúi því varla að bróður- sonur minn, Georg Þór, sé horf- inn okkur úr þessari jarðvist. Mér finnst svo stutt síðan hann var trítlandi um á Reyni- melnum, búandi í ömmu og afa húsi fyrstu árin. Líflegur gutti, bjartur yfirlitum, ævinlega svo fallega klæddur í fatnað sem móðir hans saumaði og prjónaði af svo miklum myndarskap. Við minnumst samverustunda með stórfjölskyldunni, við leik og störf í sumarhúsi foreldra minna í Hveragerði, stórhátíða og þorrablótanna okkar. Brosið þitt breiða og hlýja, hressileikinn sem einkenndi þig, allt eru þetta dýrmætar perlur í sjóði minninganna. Ég bið algóðan guð að styrkja Tinnu, foreldra þína, Margréti einkasystur þína og fjölskyldu hennar, ömmu Steinu og annað náið venslafólk í sorg þeirra. Lífið hefur hendur kaldar, hjartaljúfur minn. Allir bera sorg í sefa, sárin blæða inn. Tárin fall heit í hljóði, heimur ei þau sér. Sofna vinur, svefnljóð meðan syng ég yfir þér Þreyttir hvílast, þögla nóttin þaggar dagsins kvein. Felur brátt í faðmi sínum fagureygðan svein. Eins og hljóður engill friðar yfir jörðu fer. Sof þú væran, vinur, ég skal vaka yfir þér. (Kristján frá Djúpalæk) Sveinbjörg Steinþórsdóttir. Elsku Georg, þú varst besti frændi í heimi. Þú skildir mig alltaf, öll orð sem ég sagði. Það var alltaf gaman hjá okkur og allri fjölskyldunni. Þú hafðir allt- af tíma fyrir mig og þá var skemmtilegt. Það var notalegt þegar þú komst í heimsókn til okkar. Þú sagðist stundum heita Gísli og við grínuðumst oft með það. Ég veit að þú ert hjá Guði núna sem passar þig vel. Þinn frændi, Bjarki Freyr. Það var harkalegt að vakna að morgni annars í jólum við þau tíðindi að frændi minn og vinur, Georg Þór, hefði látist þá um nóttina af slysförum. Við fráfall streyma minningarnar fram sem eru dýrmætar og munu fylgja mér. Við vorum nær jafnaldrar systkinasynirnir og ólumst upp í nánum samgangi fjölskyldunnar. Um tíma bjuggum við í sama hverfi og gengum í sama grunn- skóla. Það þarf varla að tíunda að skólaár okkar einkenndust af prakkarastrikum, par excellence. Flest, eðlilega, við litla hrifningu foreldra okkar og stundum skólayfirvalda í ofanálag. Margt var brallað, t.d. dúfna- rækt í stórhýsi miklu sem við reistum úr efnivið sem við átt- uðum okkur ekki á að væri ekki til frjálsrar notkunar en þá var efri hluti Seljahverfis í uppbygg- ingu. Það dæmdist á Gogga, eins og hann var ávallt kallaður, að sitja fyrir svörum þegar hús- byggjendur í nágrenninu komu til okkar og þóttust þekkja efni- viðinn sem dúfnahöllin var reist úr. Stóð þá ekki á svörum hjá mínum manni frekar en vana- lega. Áhugi hans á vélknúnum tækjum og tólum byrjaði snemma. Við vorum settir í ung- lingavinnuna í uppeldisskyni þegar við höfðum aldur til. Ham- ingjusamir á sláttuorfunum allt þar til aðrir fóru að sjá ofsjónum yfir þessum sérverkefnum okkar og báru fram kvörtun. Við teknir af orfunum og settir á strákústa, þar með lögðum við niður störf. Síðar tóku við hjá Gogga skelli- nöðrur, torfæruhjól, bílar og stór vélhjól. Allt sem kallaði fram hraða, kraft og aksjón átti hug hans. Tíminn milli jóla og nýárs var annatími hjá okkur frændunum, gerð púðurkerlinga og mikið sprengt. Ávallt var gamlárskvöld skemmtilegasta kvöld ársins hjá frænda mínum og ekki til sparað að gera það sem eftirminnileg- ast. Við völdum sömu starfsgrein og unnum mikið saman í máln- ingargeiranum. Það var ofsalega gaman að vinna með honum og þægilegt, mikið grín og léttleik- inn í fyrirrúmi. Við unnum sam- an eins og vel smurð vél þar sem allt gekk hratt og örugglega fyr- ir sig. Hann var góður fagmaður og duglegur, hann var einnig mjög lagtækur við smíðar. Á seinni árum höfðum við dag- legt samband atvinnu okkar vegna. Hans verður sárt saknað í daglegum kaffisopa og spjalli þar sem oft voru rifjaðar upp gamlar og góðar minningar. Það er sárt að sjá á eftir þér, Goggi minn, svona ungum, svo margt ógert eins og að fygjast með henni Tinnu þinni. Ég bið algóðan Guð að styrkja hana og styðja, foreldra þína, systur, fjöl- skyldu og aðra nákomna að- standendur. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Emil Orri Michelsen. Georg Þór Steindórsson Hér kveð ég afa minn sem var mér ofsalega kær. Þorvarður Þorvarðarson lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnu- daginn 29.12. 2013. Afi var búinn að búa á Eir og Eirborgum frá því að hann seldi Brekkugerði 19, árið 2012. Afi byggði sér og sinni fjölskyldu fal- legt heimili að Brekkugerði í Reykjavík þar sem hann bjó í 50 ár. Helsta áhugamálið hjá afa var frístundabúskapur. Hann keypti jörðina Hellu á Fellsströnd árið 1970 og stundaði þar frístun- dabúskap með 175 fjár á fóðrum og nokkra hesta. Afi var forstjóri Stjörnubíós á sínum tíma ásamt að vera í fast- Þorvarður Þorvarðarson ✝ Þorvarður Þor-varðarson fæddist 24.7. 1927 í Hafnarfirði. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Eir sunudaginn 29.12. 2013. Útför Þorvarðar fór fram frá Grens- áskirkju 7. janúar 2014. eignabraski sem hann sagði að væri sinn lífeyrissjóður og svo margt annað sem hann tók sér fyrir hendur. Afi var mikill dugnaðar- forkur og var alltaf að vinna öllum stundum. Öllum sín- um frítíma varði hann annað hvort á Hellu að sinna sín- um bússkap eða að dytta að þeim fasteignum sem hann var með í útleigu. Afi var sannkallaður þúsund- þjalasmiður það var sama hvort það var að taka upp vélina í jepp- anum, sjóða brotna öxla, múr- verk, skipta um þak á húsinu, pípulagnir, trésmíði, alltaf redd- aði afi málunum sjálfur og var tilbúinn að hjálpa öðrum þegar til hans var leitað. Það var ekki furða að ég sem strákur væri svo heillaður af þessum manni sem allt gat gert og varð hann fljótt mín fyrirmynd. Vissi ég ekkert skemmtilegra en að vera með afa að bardúsa eitthvað og er það ótal margt sem ég er búinn að læra af honum afa mínum í gegnum árin. Afi var mikill fjölskyldumaður og alltaf var okkur boðið með að taka þátt í hans áhugamálum hvort sem það var í sveitinni, veiði eða fara á landsleiki í fót- bolta. Sá mikli tími sem ég varði með afa sem barn varð til þess að við bundumst sterkum vináttu- böndum sem varði allt til hans síðasta dags. Það var mér mikið kappsmál að hafa Hellu áfram í fjölskyld- unni og kemur hún vonandi til með að vera það um ókomna framtíð. Ég vona að ég eigi eftir að geta átt jafn góðar minningar þaðan með mínum börnum og barnabörnum eins og ég hef átt með þér, afi. Það var alltaf gaman að koma í heimsókn til þín og ömmu og sakna ég þess mjög mikið að geta ekki litið inn í Brekkugerði 19. Ég er svo ótrú- lega þakklátur fyrir allar þær stundir sem við áttum saman og þær ótal góðu minningar sem ég á um þig, afi minn. Blessuð sé minning þín. Nú hefur það því miður gerst að vond frétt til manns berst Kær vinur er horfinn okkur frá því lífsklukkan hans hætti að slá Rita vil ég niður hvað hann var mér kær afi minn góði sem guð nú fær Hann gerði svo mikið, hann gerði svo margt og því miður get ég ekki nefnt það allt Að tala við hann var svo gaman á þeim stundum sem við eyddum sam- an Hann var svo góður, hann var svo klár æ, hvað þessi söknuður er svo sár En eitt er þó víst og það á við mig ekki síst að ég sakna hans svo mikið, ég sakna hans svo sárt hann var mér góður afi, það er klárt En alltaf í huga mínum verður hann afi minn góði sem ég ann í himnaríki fer hann nú þar verður hann glaður, það er mín trú Því þar getur hann vakað yfir okkur dag og nótt svo við getum sofið vært og rótt hann mun ávallt okkur vernda vináttu og hlýju mun hann okkur senda Elsku afi, guð mun þig geyma yfir okkur muntu sveima en eitt vil ég þó að þú vitir nú minn allra besti afi, það varst þú. (Katrín Ruth) Elvar. Með þessum fátæklegu orðum langar mig að minnast móðu- bróður míns, Þorvarðar Þorvarð- arsonar. Góð vinátta hefur alla tíð verið á milli okkar og hans fjöl- skyldu. Dúddi, eins og frændi var

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.