Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014 Þú færð GO walk skó í Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind | Intersport Lindum, Kópavogi | Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir, Hellisandi | Hafnarbúðin, Ísafirði Skóhúsið, Akureyri | Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum Lónið, Höfn í Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Skóbúðin, Keflavík Axel Ó, Vestmannaeyjum HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ Í GÓÐUMHÖNDUM Snjallt að kíkja á okkur á adal.is Við erummeð fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig! H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 3 -0 4 6 7 Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár Reykjavík Grjóthálsi 10 Sími 590 6940 Reykjavík Skeifunni 5 Sími 590 6930 Hafnarfjörður Hjallahrauni 4 (við Helluhraun) Sími 590 6900 Kópavogur Skemmuvegi 6 (bleik gata) Sími 590 6935 Reykjanesbær Holtsgötu 52 (við Njarðarbraut) Sími 590 6970 www.adalskodun.is og www.adal.is Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt. Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900 Kristján Johannessen khj@mbl.is Fólkið sem bjargað var út úr brenn- andi íbúðarhúsi í Keflavík í fyrra- kvöld slapp án teljandi meiðsla og var útskrifað af sjúkrahúsi að lokinni skoðun. „Við fáum tilkynningu um mikinn reyk við Mávabraut rétt fyrir klukk- an níu í gærkvöldi [fyrrakvöld] og förum á staðinn. Þegar ég kem þar að að framan mætir mér mikill svart- ur reykur út um útidyrnar. Ég kalla inn til þess að athuga hvort einhver sé inni í íbúðinni en fæ engin svör,“ segir Sigurður Skarphéðinsson, varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, en hann varð einn af þeim fyrstu til þess að mæta á vett- vang þegar eldur kom upp í húsinu. Sótsvart í framan Aðspurður kveðst Sigurður því næst hafa látið íbúa á efri hæð húss- ins vita að eldur væri laus á jarðhæð- inni en tvennt var í íbúðinni þegar eldurinn kom upp, hjón á miðjum aldri, og voru þau að sögn Sigurðar inni í svefnherbergi. Um svipað leyti og slökkviliðs- menn voru að undirbúa reykköfun braut nágranni rúðu í svefnherberg- isglugganum og hóf að aðstoða íbúa við að komast út. Lögreglumenn komu svo til aðstoðar skömmu síðar. Að sögn Sigurðar var fólkið sót- svart í framan og flutt á sjúkrahús til skoðunar. Það mun þó hafa sloppið án teljandi meiðsla og var útskrifað af sjúkrahúsi að lokinni skoðun. Gríðarlegur hiti Spurður hvort mikill eldur hafi verið í húsinu kveður Sigurður nei við: „Það var reyndar ekki mikill eld- ur en eldur hafði greinilega logað lengi því íbúðin var mjög illa farin.“ Bendir Sigurður á að svefnherberg- isdyrnar hafi verið lokaðar þegar eldurinn kom upp og kann það að hafa átt sinn þátt í að ekki fór verr þar sem reykur átti þá ekki jafn- greiða leið inn í herbergið til fólks- ins. Þótt eldur hafi ekki verið mikill segir Sigurður ljóst að mjög mikill hiti hafi verið inni í íbúðinni og höfðu rúður t.a.m. sprungið að innan. Verksummerki benda til að eldur hafi kviknað í sófasetti sem staðsett var í stofu íbúðarinnar. Nánari upp- lýsingar um upptök eldsins liggja hins vegar ekki fyrir að svo stöddu en lögreglan hóf rannsókn strax að loknu slökkvistarfi. Nágranni bjarg- aði fólki úr eldi  Íbúðin illa farin vegna hita og elds Guðni Einarsson gudni@mbl.is Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúp- verjahrepps leggur til að frestað verði að stækka friðland Þjórs- árvera þar til ákveðin atriði eru komin á hreint. „Meginhluti Þjórs- árvera er nú þegar friðland og ekki eru nein svæði í hættu þó svo að stækkun svæðisins frestist eitt- hvað,“ segir í tillögu sem var sam- þykkt einum rómi á fundi sveit- arstjórnarinnar sl. þriðjudag. Á fundinum var lagt fram bréf Umhverfisstofnunar frá 27. desem- ber 2013 varðandi breytingu á frið- lýsingarmörkum Þjórsárvera. Björgvin Skafti Bjarnason oddviti lagði fram bókun þess efnis að sveitarstjórnin teldi að ekki væri hægt að fjalla um breytingar á frið- landsmörkunum fyrr en fram hefðu komið tillögur verkefnisstjórnar um vernd og orkunýtingarmörk þess svæðis sem færi í verndarflokk. „Ekki eru gerðar athugasemdir við friðlýsingarskilmálana frá 21. júní 2013 að því gefnu að tryggt verði fjármagn til að fylgja þeim eftir sbr. viðauka þar um,“ segir í bók- uninni. Gunnar Örn Marteinsson sveitar- stjórnarmaður lagði einnig fram bókun. Í henni sagði m.a. að öll um- ræða undanfarinna ára um stækk- un friðlandsins í Þjórsárverum hefði snúist um Norðlingaölduveitu fremur en almenn verndarsjón- armið. Hann kvaðst telja nauðsyn- legt, áður en friðlandsmörk yrðu ákveðin eins og nú væri lagt til, að breyta lögum um rammaáætlun þannig að ljóst væri að stefnt væri að því að fara í veituframkvæmdir á svæðinu. Áður en slík ákvörðun væri tekin þyrfti að gera umhverf- ismat fyrir framkvæmdina og jafn- framt þyrfti að liggja fyrir hvaða áhrif hún hefði á rennsli Þjórsár. Ekki nóg að breyta strikum Björgvin Skafti oddviti sagði að sveitarstjórnin hefði verið búin að samþykkja friðlýsingarskilmálana sem átti að undirrita 21. júní 2013. Hún væri ekki tilbúin að fallast á umbeðnar breytingar á fyrirhug- uðum friðlandsmörkum án umræðu. „Það þarf að skoða fleira en bara að breyta strikum,“ sagði Björgvin Skafti. „Við erum ekki að segja að við séum á móti virkjunum. Við er- um bara á móti vinnubrögðunum.“ Hann sagði að breyta ætti frið- lýsingarskilmálunum sem sam- þykkja átti í júní í fyrra og að fást þyrftu nánari skýringar á þeim breytingum. Hreppsnefnd vill fresta breytingu friðlandsins Morgunblaðið/RAX Þjórsárver Sveitarstjórnir Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Ásahrepps fjalla um tillögu að breyttum mörkum fyrir- hugaðs friðlands í Þjórsárverum. Undirritun friðlýsingarskilmála hinn 21. júní 2013 var frestað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.