Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014 ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Hve margar eru kirkjutröpp- urnar? Þetta er býsna algeng spurn- ing en fáir vita eða muna svarið. Nú veit hins vegar allur bærinn, eða því sem næst, að tröppurnar góðu upp að helsta kennileiti bæjarins eru ekki lengur upphitaðar.    Margir hafa brugðist ókvæða við á netinu og málið er rætt á kaffistof- um og í saumaklúbbum – líklega. Einhverjir óttast beinbrot. Bæj- arstjórinn segir fólk þó ekki þurfa að hafa áhyggjur því tryggt verði að áfram verði hægt að ganga upp og niður tröppurnar án vandkvæða. Þær voru þó býsna erfiðar yfirferðar í byrjun vikunnar og flughálar.    „Við fjárhagsáætlunarvinnu árs- ins 2014 var samþykkt að draga úr kostnaði við að bræða snjóinn og klakann af tröppunum. Kirkjutröpp- urnar verða mokaðar og hálku- varðar af starfsmönnum Fram- kvæmdamiðstöðvar þegar þess gerist þörf. Snjóbræðslukerfið verð- ur líka notað en í minna mæli en ver- ið hefur,“ segir Eiríkur Björn Björg- vinsson bæjarstjóri við Morgunblaðið.    Kostnaður við snjóbræðslu- kerfið í kirkjutröppunum hefur aukist verulega undanfarin ár, var orðinn fimm milljónir á ári, en bæj- aryfirvöld reikna með að spara þrjár milljónir króna með þessari aðgerð.    Ástæða hækkunarinnar er raun- ar sú að mælir sem notast var við fram á mitt ár 2012 sýndi notkun sem margfalda þurfti með 100, en það var ekki gert! Þetta þarf ekki að gera við nýjan mæli. „Notkunin er því sú sama en gjaldtakan frá árinu 2002 miðuð við ranga mælieiningu. Reikningarnir voru því aðeins 10% af notkun frá árinu 2002 og fram á mitt ár 2012,“ segir Eiríkur Björn bæjarstjóri. Oddur Helgi Halldórsson bæj- arfulltrúi L-listans og formaður framkvæmdaráðs, kveðst telja snjó- mokstur og hálkuvarnir á götum og gangstígum Akureyrar mjög góðan. „Árlegur kostnaður hefur verið um 70-100 milljónir. Að sjálfsögðu væri best að geta haldið kirkjutröppunum auðum allan ársins hring, en þegar kostnaðurinn við það er orðið 5-8% af heildarútgjöldum til snjómokst- urs og hálkuvarna í bæjarfélaginu, þá er eðlilegt að leitað sé annarra leiða,“ segir Oddur Helgi við Morg- unblaðið.    Nemendur í 1. bekk unnu í vik- unni að verkefni þar sem markmiðið var að hafa jákvæð áhrif á sam- félagið. Þrír þeirra brugðust við fréttum vikunnar; Björn Kristinn Jónsson, Steinar Einar Sigmunds- son og Tumi Hrannar-Pálmason, tóku sig til á þriðjudaginn og aðstoð- uðu tvo starfsmenn bæjarins við að berja klaka af kirkjutröpunum og moka í burtu.    Englar alheimsins, mögnuð sýn- ing Þjóðleikhússins, verður sýnd í Hofi á föstudag og laugardag. Sann- arlega hvalreki á fjörur bæjarbúa.    Annað spennandi verk, Jeppi á Fjalli úr Borgarleikhúsinu, verður sýnt í Hofi í byrjun febrúar en þar er Ingvar E. Sigurðsson í aðal- hlutverki.    Sjálft Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson verður frumsýnt hjá LA í gamla Samkomuhúsinu um aðra helgi. Það er auðvitað stór- merkilegt; verk eftir þennan nafn- togaða heiðursborgara Akureyrar, ekki síst sett upp vegna þess að 50 ár eru liðin frá andláti skáldsins. Þá eru 40 ára í vetur frá því LA varð at- vinnuleikhús.    Meira af Davíð: Nýtt, spennandi hljóðverk um hann, Söngur hrafnanna eftir Árna Kristjánsson, verður frumflutt í Davíðshúsi 1. mars en þann dag verða 50 ár frá því skáldið lést. Það er enginn annar en Ólafur Darri Ólafsson sem fer með hlutverk Davíðs. Hannes Óli Ágústs- son leikur Pál Ísólfsson og Hilmir Jensson túlkar Árna Kristjánsson. Leikstjóri er Viðar Eggertsson og þetta verður svo páskaverk Út- varpsleikhússins.    Þeir sem vilja losa sig við jóla- tréð eiga þess kost að koma því að lóðamörkum og starfsmenn bæj- arins fjarlægja þau í dag og á morg- un. Þeir sem kjósa að láta tréð fegra húsið lengur geta andað rólega, því bæjarstarfsmenn verða aftur á ferð- inni í sömu erindagjörðum á mánu- dag og þriðjudag í næstu viku. Gám- ar verða svo við gámastöðvar hér og þar um bæinn.    Ármann Pétur Ævarsson knatt- spyrnumaður var á dögunum út- nefndar Íþróttamaður Þórs 2013. Það var tilkynnt í árlegu hófi sem fé- lagið heldur rétt fyrir gamlársdag í félagsheimilinu Hamri. Næsta sunnudag verður haldið upp á afmæli KA í félagsheimilinu og hefst dagskráin kl. 14 og m.a. lýst kjöri íþróttamanns félagsins. Félag- ið varð 86 ára í gær.    Eiríkur Björn Björgvinsson bæj- arstjóri lýsti þeirri skoðun sinni í ný- ársávarpi á sjónvarpsstöðinni N4, að sameina ætti alla íbúa Eyjafjarðar í einu sveitarfélagi.    Eiríkur segir sveitarstjórnir þurfa að taka höndum saman, „leggjast á eitt og sameina krafta til að efla byggð á Eyjafjarðarsvæðinu. Það þýðir ekki að stinga höfðinu í sandinn. Til að auka slagkraft íbúa Eyjafjarðar þarf að sameina þá alla undir einum hatti, byggja upp enn blómlegri og vonandi bráðum 30 þúsund manna byggð sem hefur vigt og nokkurn þunga í hinu stóra sam- hengi.“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Kirkjutröppuverðir Jóhann Eyland og Magnús Ásgeirsson, starfsmenn Akureyrarbæjar. Til hægri er Björn Krist- inn Jónsson, einn menntskælinganna þriggja sem aðstoðuðu við að handmoka tröppurnar á þriðjudaginn. Englar, gullið hlið og kirkjutröppurnar Ólafur Darri Ólafsson Ingvar E. Sigurðsson Ármann Pétur Ævarsson Eiríkur Björn Björgvinsson Íslendingur, sem flúði til Íslands frá Bretlandi fyrir átta árum eftir að hafa verið ákærður fyrir árás á her- mann í Canterbury, var handtekinn á Heathrow-flugvelli í Lundúnum í síðustu viku. Hann kom fyrir dóm- ara í vikunni og hefur verið gert að hefja afplánun. Þetta kemur fram í vefmiðlinum Kent Online. Íslendingurinn flúði land árið 2005 eftir að hafa verið ákærður fyrir lík- amsárás í Howe-herstöðinni í Canterbury. Dæmdur í eins árs fangelsi Samkvæmt frétt Kent Online féll dómur í málinu ári síðar og var hann dæmdur í eins árs fangelsi að honum fjarstöddum. Var Íslendingnum gert að afplána í unglingafangelsi þar sem hann var einungis tvítugur að aldri er hann framdi brotið. Samkvæmt frétt Kent Online býr Íslendingurinn og starfar í Þýska- landi. Hann var handtekinn af breska útlendingaeftirlitinu í síðustu viku eftir að starfsmenn þess á flug- vellinum sáu að alþjóðleg hand- tökuskipun var í gildi á hendur hon- um. Verjandi Íslendingsins óskaði eft- ir því í vikunni að refsingin yfir hon- um yrði milduð en dómari féllst ekki á beiðnina og verður honum gert að afplána dóminn í almennu fangelsi. Verjandi Íslendingsins sagði að maðurinn hefði þurft að fara til Ís- lands til þess að sinna afa sínum þrátt fyrir að vita að hann hefði ekki átt að yfirgefa Bretland vegna ákær- unnar. Hann hefði dvalið fjögur ár á Íslandi áður en hann hóf störf hjá fyrirtækinu sem hann starfar nú hjá í Þýskalandi. Þrátt fyrir að hafa ferðast víða hafi hann aldrei verið stöðvaður við landamæraeftirlit og því hafi hann talið að hann hefði ekki verið dæmdur. Kom átta sinnum til Bretlands Á síðustu fjórum árum hafi Ís- lendingurinn komið átta sinnum til Bretlands, að sögn verjandans. Dómarinn sagði að hann ætti erfitt með að trúa því að hann hafi sloppið við handtöku við komuna til Bret- lands hingað til nema hann hafi ferðast um á öðru vegabréfi en sínu eigin. Samkvæmt dómsskjölum var Ís- lendingurinn dæmdur fyrir aðild að árás á hermann í mars 2005. Var hann einn þriggja sem réðust á her- manninn í herstöðinni, spörkuðu ítrekað í höfuð hans og líkama, sam- kvæmt ákærunni. guna@mbl.is Handtekinn fyrir árás á hermann  Flúði frá Bretlandi fyrir átta árum www.gilbert.is KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR FYRIR ÖLL TÆKIFÆRI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.