Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014 Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Þegar á heildina er litið er ekki hægt að segja að útlitið sé bjart fyrir lunda og sandsíli við Vest- mannaeyjar. Ef ekki kemur eitt- hvað algjörlega óvænt upp á, má leiða líkur að því að varpárangur lunda í Vestmannaeyjum fari ekki að lagast fyrr en stofn sandsílis við eyjarnar hefur braggast. Líkur á því að það gerist hratt virðast því miður ekki miklar.“ Þannig eru lokaorð ritrýndrar greinar í nýjasta hefti Náttúru- fræðingsins. Heiti hennar er Við- komubrestur lunda og sandsílis við Vestmannaeyjar. Höfundar eru Kristján Lilliendahl, Erpur S. Hansen, Valur Bogason, Marinó Sigursteinsson, Margrét L. Magn- úsdóttir, Páll M. Jónsson, Hálfdán H. Helgason, Gísli J. Óskarsson, Pálmi F. Óskarsson og Óskar J. Sigurðsson. Í greininni er fjallað um rann- sóknir á þróun mála varðandi lund- ann og sandsílið í Vestmannaeyj- um allt frá sumrinu 2005. Þá bárust fregnir af því að varp sjó- fugla víða um land hefði misfarist. Einkum virtist varp kríu á sunn- anverðu landinu og varp lunda í Vestmannaeyjum hafa orðið illa úti. Jafnframt virtist sandsílastofn- inn hafa beðið hnekki þetta sumar. Árið eftir byrjuðu sandsílarann- sóknir og árið 2007 hófust rann- sóknir á afkomu lunda við Eyjar. Orsökin er ekki ljós Fram kemur að varp lundans hafi gengið misjafnlega illa síðan og varpárangur verið slakur þegar horft er til fjölda þeirra lundapysja sem komust á legg. „Afar lítið hef- ur verið af ungfugli við eyjarnar, sem venjulega er uppistaðan í veiði á lunda. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að lund- ar við Vestmannaeyjar séu háðir aðgengi að sandsíli til að varp tak- ist,“ segir í inngangi. Þar kemur einnig fram að und- anfarin ár hafi ýmist verið of lítið af sandsíli við Vestmannaeyjar eða það hafi verið of langt frá lunda- varpinu. Þá er stofn sandsílisins þar í mikilli lægð miðað við nokkur önnur svæði við landið. Aukning í sandsílastofninum við Eyjar hefur verið nánast engin og nýliðun verið lítil. Árið 2007 er undantekning en þá komst upp stór árgangur sand- sílis. Ekki er ljóst hvað olli hruni sandsílastofnsins við Vestmanna- eyjar. Talið er að orsakirnar geti verið aukin samkeppni um fæðu, aukið afrán og breytingar í um- hverfinu. Þá segir í greininni að við Vest- mannaeyjar virðist vanta aðrar fæðutegundir fyrir lunda sem geti komið í stað sandsílisins. Gera má ráð fyrir að varp lunda í Eyjum gangi illa á meðan stofn sandsílis er lítill. Engin teikn eru um að ástandið lagist í bráð. Dökkt útlit fyrir lunda og sandsíli  Sandsílarannsókn hófst árið 2006 og rannsókn á afkomu lundans við Vestmannaeyjar árið 2007  Greint er frá rannsóknunum í nýrri grein í Náttúrufræðingnum  Engin teikn um betra ástand Morgunblaðið/Eggert Lundar Fuglarnir hafa undanfarin ár átt erfitt með að afla fæðu fyrir sig og lundapysjurnar. Sandsílið hefur brugð- ist og lundarnir ekki haft neitt æti. Það veldur því að þeir afrækja varpið og lundapysjurnar drepast. Lundi og sandsíli » Uppistaðan í sumarfæðu sex stærstu sjófuglastofnanna er sandsíli sunnanlands en fyr- ir norðan er það loðna. » Ábúðarhlutfall lunda í Vest- mannaeyjum var lægst sum- arið 2011, um 23% lundaholna voru þá í ábúð. » Sumarið 2011 afrækti lund- inn öll eggin og sumarið 2010 drápust allar pysjur. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Knattspyrnudeild Breiðabliks byrj- aði í haust að setja inn ákvæði í samninga við starfsmenn deildar- innar sem bannar þeim að veðja á leiki Breiðabliks eða Augnabliks sem tengist félaginu. Stefnan er að ákvæðinu verði smátt og smátt kom- ið inn í samninga allra starfsmanna deildarinnar. „Við þurfum að bregðast við um- heiminum eins og hann er að þróast og reyna að setja varnagla áður en barnið er dottið í brunninn. Við vit- um og höfum heyrt og séð erlendis að veðmál leikmanna og aðila sem tengjast liðum og hagræðing úrslita eru að verða meira og meira vanda- mál þar. Það var kveikjan að þessu,“ segir Borghildur Sigurðardóttir, formaður knattspyrnudeildarinnar. Aðgengi að veðmálasíðum og fjár- hættuspili á netinu hefur stóraukist á undanförnum árum. Borghildur segir að þetta hafi verið til umræðu hjá félaginu í nokkur ár, meðal ann- ars eftir að ungur maður sem þjálf- aði fyrir Breiðablik svipti sig lífi. Hann hafði staðið í fjárhættuspili, þó ekki sem tengdist knattspyrnu. „Þetta var drengur sem félagið mat mikils og þetta var nokkuð sem enginn gat trúað að gæti gerst. Þetta var búið að vera til umræðu um nokkurn tíma. Við gátum ekki bannað fjárhættuspil en þetta er okkar leið til að sýna fram á að þetta sé varasamt og óæskilegt,“ segir hún. Hægt að veðja á nánast allt Borghildur segist ekki hafa heyrt af því að það sé vandamál á Íslandi að leikmenn eða starfsmenn hag- ræði úrslitum eða veðji á eða gegn eigin liði. Það sé ekki kveikjan að því að setja slíkt ákvæði inn í samninga félagsins. Henni hafi þó virst að nú til dags sé hægt að veðja á nánast allt í leikjum. „Maður hefur séð menn á kvenna- leikjum og öðrum leikjum sem eru að senda upplýsingar eitthvað út í heim um hvernig gangur mála er í leikjum. Þetta er til dæmis í Pepsí- deild kvenna og ég held 1. deildinni líka. Þetta er komið út um allt,“ seg- ir Borghildur. Hún segist þó ekki geta dæmt um það hvort auðveldara sé að hagræða úrslitum í minni deildum eins og hér á landi. Bannað að veðja á leiki Breiðabliks  Knattspyrnu- deild beitir sér gegn fjárhættu- spili starfsmanna Morgunblaðið/Kristinn Efsta deild Borghildur hefur séð menn senda upplýsingar um gang leikja í efstu deild kvenna út í heim. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. Áskrift að Stöð 2 sport hefur hækk- að um 14,5% eða úr 6.900 krónum í 7.900 krónur. Aðrir þættir verð- skrár sjónvarpsstöðva hjá 365 miðl- um hækkuðu ekki um áramótin. Ari Edwald forstjóri 365 miðla leggur áherslu á að aðeins sé um verð- hækkun að ræða hjá þessari einu stöð. Áfram verði sama verð á svo- kölluðum „pökkum“ þar sem hægt er að fá fleiri en eina stöð á lægra heildarverði en ef um væri að ræða áskrift á hverri stöð fyrir sig. Sigrún L. Sigurjónsdóttir hjá sölu og áskriftarsviði bendir jafn- framt á að stöðin sé að bæta við sig miklu af efni og nefnir í því sam- hengi Wimbledon-mótið í tennis, Vetrarólympíuleikana í Sochi, Motorcross, NFL og Demants- mótaröðina í frjálsum íþróttum. Stöð 2 sport hækkar í verði um 14,5% 365 Stöð 2 sport hækkar í verði um 14,5% en verðskrá á pakkatilboðum er óbreytt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.