Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2000, Qupperneq 13
Fimmtudagur 26. október 2000
Fréttir
13
Ólafur Sigurðsson skrifar:
Trillukarlar og líkamsrækt
Hvað eiga
trillukarlar
sameiginlegt
með líkams-
ræktarfólki?
Svarið er
einfalt. Við
trillukarlar
iðkum að
hluta til lík-
amsrækt í
Skvísusundi
en aðrir í hinni sívaxandi líkams-
ræktarstöð Hressó.
Ekki er þama langt á milli, aðeins
þröng gata sem er mikilvæg þeim sem
um hana fara. Þegar við trillukarlar
komum af sjónum eftir líkams-
ræktarpuð á öldunni við undirspil
misblíðra vinda, tekur við annar þáttur
en hann er sá að flytja línubala, einmitt
í Skvísusundi þar sem við höfum
aðstöðu í beituskúrunum. Það getur
hinsvegar verið heilmikil list, svo ekki
sé talað um fæmi við að burðast með
þunga línubala meðfram bifreiðum
sem þama hefur verið lagt af líkams-
ræktariðkendum.
A meðan bærinn sefur og dúndur-
músíkin á Hressó er hljóðnuð í
Skvísusundi er í Skvísusundi nægjan-
legt pláss fyrir athafnasemi trillukarla.
Við trillukarlar höfum orðið vitni að
þeim stórhug sem grípur marga sem
iðka líkamsrækt, svo mjög að þeir
leggja bifreiðum þvers og kmss og
gefa sér varla tíma til að loka hurðum
eða líta á merkingar sem eru í raun
áberandi og glöggar og segja til um
hvar ekki má leggja bifreiðum.
Ég kem því hér með á framfæri að
líkamsræktarfólk leggi bifreiðum
sínum við t.d. Vörubflastöðina. Við
það vinnst að minnsta kosti tvennt, þar
má leggja og svo hitt að skokka
leiðina niður að Hressó og hita sig upp
fyrir átökin við tólin.
Olafur Sigurðsson.
Elías V. Jensson skrifar:
Mikill mismunur á lyfjaverði
Undanfarin
fjögur ár hef
ég þurft að
taka inn lyf
við of hárri
blóðfitu og
hef ég ávallt
keypt þau í
Apóteki
Vestmanna-
eyja.
Nú brá svo
við í maí sl.
að ég þurfti á
tvöföldum
skammti að halda þar sem ég var að
fara erlendis í nokkra mánuði. Fékk
ég lyfseðla samkvæmt því og ákvað
ég að leysa annan skammtinn út hér
heima en hinn á Lyfju í Reykjavík.
Þann 31. maí leysti ég út skammtinn
hér heima, sem var 98 töflur af
Menacor 40 mg. Lyfjaverðið var
16.786 krónur, hlutur Trygginga-
stofnunar 12.986 krónur og hlutur
sjúklings 3800 krónur.
Nokkmm dögum seinna, eða þann
6. júní náði ég svo í sama skammt í
Lyfju og þar var verðið sem hér segir:
Lyfjaverð 10.574 krónur, hlutur
Tryggingastofnunar 6774 krónur og
hlutur sjúklings 3800 krónur. Þar að
auki fékk ég 23,4% afslátt á hlut
sjúklings þannig að mín greiðsla var
2912 krónur. Þær tæpu 900 krónur
sem ég þarf að borga minna hjá Lyfju
duga örugglega fyrir sendingar-
kostnaði frá Reykjavík til Vest-
mannaeyja.
En það er kannski ekki aðalmálið
heldur mismunurinn á lyfjaverðinu
hjá Apóteki Vestmannaeyja og Lyfju
sem er 6212 krónur. Nú veit ég ekki
hvort innflytjendur á þessu lyfi em
einn eða fleiri. Ef aðeins er um einn
innflytjanda að ræða er þessi
mismunur óskiljanlegur og hlýtur frú
apótekari að gefa mér og öðmm
bæjarbúum viðhlítandi skýringar á
þessum verðmismun, ekki bara á
þessu tiltekna lyfi heldur á þeim mikla
verðmismun sem er á lyfjum hér í
Eyjum og t.d. hjá Lyfju í Reykjavík.
Elías V. Jensson,
Asavegi 33 Vestmannaeyjum.
i
i
gfuxHa vxurua jcvnaaun =
~ ftSflVEGI 33, V,_________=
kildarucra 10574=
Uuti trygginga -6774~
11. sjúklings 3800 =
Iftfslattur 23,4'/. -888=
riL GREIÐSLU
2912=
' < Elías Vigfús Jensson 9166 Ásavegi 33, Veslmannaeyjar
Skráá lyfjaverá 16786
§ Hlutur Tr.st -12986
Eu 1 * < Hlutur sjúklings 3800
'IZ
© c
ÖE
■s ;
Bókasafnið:
Alþjóða bangsadagurinn
hefst með bangsasögustund í dag
Árið 1998 stóð PR-hópur norrænna
bókasafna fyrir því að bókasöfn á
Norðurlöndunum héldu Alþjóða
bangsadaginn hátíðlegan í fyrsta sinn
á afmælisdegi Theodore (Teddy)
Roosevelt, fyrram forseta Banda-
ríkjanna, þann 27. október.
Bangsavinir völdu afmælisdag
Roosevelts vegna þess að fýrsti
„Teddy“ bjöminn var nefnilega
nefndur eftir honum. Var það vegna
atviks sem átti sér stað þegar hann var
á bjamdýraveiðum. Þá átti hann að
hafa vorkennt vamarlausum litlum
bjamarhúni svo að hann sleppti
honum.
Á bangsadaginn gleðjast í hjarta
sínu allir bóka- og bangsavinir og
halda upp á hann með ýmsu uppi-
standi. I tilefni dagsins ætlum við á
Bókasafninu að setja upp bangsa-
sýningu og hafa bangsasögustund 26.
október. Bangsasýningin stendur uppi
dagana 26. til 28. október og á
sýningunni verða til sýnis bangsar á
öllum aldri og af öllum gerðum og
stærðum í eigu ýmissa velunnarra
safnsins.
PR-hópur norrænna bókasafna
hefur látið hanna og framleiða bóka-
safnsbangsa sem verður til sölu á
safninu á kr. 1.000.
Við bjóðum alla bangsavini velkomna
í heimsókn og það em sektarlausir
dagar 26.-28. október. Einnig má
benda á áhugaverða heimasíðu á
íslensku: http://www.isa
íjordur.is/boka safn/bangsar
Með bangsakveðju
Bókaverðir á Bókasajhi
Vestmannaeyja
Frá Heródesi til Pílatusar?
Tvö þeirra hraunlistaverka, sem unnin voru í fyrra í
listaátakinu Hraun og menn, hafa verið á nokkrum
hrakhólum eftir að bæði menningarmálanefnd og
skipulags og bygginganefnd höfnuðu staðsetningu
þeirra í vesturhlíðum Eldfells.
Skipulagsnefnd hafnaði staðsetningunni fyrir rúmu ári,
þann 10. september 1999 og vísaði málinu til menningar-
málanefndar. Fyrir skömmu barst skipulagsnefnd erindi
frá menningarmálanefnd þar sem óskað er eftir tillögu
skipulagsnefndar um staðsetningu hstaverkanna. Á fundi
skipulagsnefndar í síðusm viku var erindinu aftur vísað til
menningarmálanefndar sem skuli fmna áðurgreindum
listaverkum stað. Oneitanlega minna þessar tilvísanir
milli nefnda nokkuð á það þegar einstaklingi nokkmm
var, fyrir hartnær 2000 ámm, vísað milli tveggja
embættismanna sem hvomgur vildi kveða upp úrskurð í
máli hans.
Kæru
Vestmannaeyingar
Þann 1. nóvember verða
eigendaskipti hjá Axel Ó.
Við þökkum innilega öllum þeim sem hafa
verslað við okkur á liðnum áratugum og
vonum að nýir eigendur njóti þeirrar
tryggóar sem við höfum notið. Vonum við
að þið í auknum mæli verslið við Axel Ó
og munið að versla í heimabyggð, því það
er hagur bæjarfélagsins.
Um leið minnum við á ógreidda reikninga.
Með hrærðum huga hverfum við, eftir
nær 42 ár, úr skóbúðinni, sem er elsta
skóverslun landsins.
Við þökkum ykkur viðskiptin, óskum
nýjum eigendum velfarnaðar og vonum
að með þessu heiðarlega og trausta fólki
gangi verslunarreksturinn sem allra best.
Guð blessi ykkur öll.
Dadda og Axel Ó.
vantar fólk
Unglingadeild IB V
Við auglýsum eftir fólki til starfa,
margt spennandi að gerast.
Þeir sem hafa áhuga á uppbyggingu
unglingastarfs hjá félaginu hafi
samband við
Magnús í síma 481-2060
Veitingarekstur
Veitingastaðurinn í Þórshamri er
til leigu. Staðurinn er tilbúinn til
rekstrar með innbúi og tækjum.
Mánmi
Upplýsingar gefur Eyjólfur í síma 865-2460
Tilboðsmálning frá
Hörpu með 10% gljáa
4 ltr.
10 lítrar
1990 krónur
3990 krónur
BRIMNES:
Kiwanisfélagar!
600. fundurinn í kvöld kl. 19.30.
Léttar uppákomur