Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2000, Blaðsíða 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 26. október 2000
Landa-
KIRKJA
- hjartanlega velkomin!
Fimmtudagur 26. október
Kl. 10 - 11.30. Foreldramorgunn.
Samvemstund foreldra með
ungum bömum sínum. Stutt helgi-
stund í kirkjunni og spjall.
Kl. 17.30 - 18.30. TTT - kirkjustarf
10-12 árakrakka.
Föstudagur 27. október
Kl. 15.00. Æskulýðsfélagar Landa-
kirkju safnast saman í afgreiðslu
Herjólfs til brottfarar á æskulýðs-
mót í Hlíðardalsskóla.
Laugardagur 28. október
Kl. 11.30. Æfing hjá Litlum læri-
sveinum í Safnaðarheimilinu, eldri
og yngri hópur saman.
Sunnudagur 29. október, sið-
bótardagurinn
Kl. 11.00. Bamaguðsþjónusta.
Sunnudagaskóli með spjalli, sögu,
leik og lofgjörð.
Kl. 14.00. Messa með altaris-
göngu. Yfirskriftin er „Borgin mín,
Eyjar 2010“ í tilefni siðbótar-
dagsins. Kaffisopi og spjall á eftir í
Safnaðarheimilinu.
Kl. 20.30. Æskulýðsfundur fellur
niður vegna hópferðar á æsku-
lýðsmót f Hlíðardalsskóla.
Mánudagur 30. október
Kl. 20.00. Vinnufundur Kvenfé-
lags Landakirkju vegna jóla-
bazars.
Þriðjudagur 31. október
Kl. 16.30. KKK Krakka-
Klúbburinn Kirkjuprakkarar hóp-
ast utan um Hrefnu og aðstoðar-
fólkið hennar.
Miðvikudagur 1. nóvember
Kl. 12.00. Kyrrðar- og bænastund í
20 mín.
Kl. 20 - 22.00. Opið hús fyrir ung-
linga 8., 9. og 10. bekkjar.
Fimmtudagur 2. nóvember
Kl. 10.00 Foreldramorgunn. Krist-
ín Sigurðardóttir kynnir ungbama-
nudd. Samvemstund foreldra með
ungum bömum sínum.
Kl. 17.30. TTT - kirkjustarf 10-12
ára krakka, sem em hressir í meira
lagi.
Hvítasunnu-
KIRKJAN
Fimmtudagurinn
Kl. 20.30 Biblíulestur
Laugardagur
Kl. 20.30 Bænasamkoma - um-
sjón Lilja Óskarsd.
Sunnudagur
Kl. 15.00 Vakningarsamkoma -
Þriðjudagur
Kl. 17.30 Krakkakirkjan
Verið hjartanlega velkomin að
leita Drottins meðan hann er að
finna!
Hvítasunnukirkjan
Allir hjartanlega velkomnir
Aðventkirkjan
Laugardagur 26. október
Kl. 10.00 Biblíurannsókn.
Kl. 11.00 Guðsþjónusta, gestur helgar-
innar Eric Guðmundsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
Biblían talar
sími
481-1585
nln. ^iiui IIIIBII.
j| - - líj! Illllllll IIIIIIPL
iá 4iiii
JÓHANNI. Guðmundsson, eða Diddi á fluginu, eins og flestir kalla hann, lét um síðustu mánaðamót af störfum sem flugvallarstjóri. Diddi
hefur tengst flugi í Vestmannaeyjum í rúma þrjá áratugi og síðast starfaði hann sem flugvallarstjóri. Af tilefni þessara tímamóta efndu
fyrrum samstarfsmenn Didda og Flugmálastjórn til samsætis þar sem honum voru þökkuð vel unnin störf. Diddi var leystur út með gjöfum
frá flugmálastjórn, bæjarstjórn Vestmannaeyja, OLÍS og einkaflugmönnum í Vestmannaeyjum. Á myndinni eru Jón Baldvin Pálsson
aðstoðardeildarstjóri flugvallarsviðs hjá Flugmálastjórn, Ingibergur Einarsson núverandi flugvallarstjóri, Diddi, Guðjón Hjðörleifsson
bæjarstjóri, Bjarni Sighvatsson hugsanlegur arftaki Ingibergs, Haukur Hauksson yfirmaður flugvallarsviðs hjá Flugmálastjórn, Bjarni
Halldórsson flugumferðarstjóri og Hildur Hauksdóttir flugumferðarstjóri.
Frjálsar: Bikarkeppni FRI
Unsmenna-
félasið Óðinn
bikarmeistari
Bikurkcppni Frjálsíþróttasam-
bandsins var haldin í síðasta mán-
uði á Laugardalsvellinum.
Dræm þátttaka var á mótinu, en
ástæða þess er kannski, hversu seint
sumars mótið var haldið og sumir
bestu fjölþrautarrnennirnir ekki með.
Meðal annarra var Jón Arnar Magn-
ússon fjaiyi vegna undirbúnings
keppni á Ólympíuleikunum. Tveir
keppendur eru frá hverju félagi og
samanlagður árangur talinn. UMF
Óðinn sendi tvo keppendur í keppn-
ina, þá bræður Guðjón og Áma Öla
Ólafssyni, sem kepptu í tugþraut.
Konur keppa í sjöþraut en UMF
Óðinn sendi engan þáttakanda í
kvennakeppnina að þessu sinni. Að
sögn Guðjóns Ólafssonar gekk
félögum í Öðni mjög vel. „Af tíu
íþróttagreinum í tugþraut féllu sjö ný
Vestmannaeyjamet og fjöldi persónu-
legra meta, en við bræðumir höfum
ekki æft í öllum greinum og emm til
að mynda ekki þekktir hlauparar."
Guðjón sagði að margir hefðu fallið
úr tugþrautarkeppninni og mörgum
hafi gengið illa. „Meðal annars heltist
einn allra efnilegasti tugþrautarmaður
Islands úr keppni í spjótkasti, sem var
næstsíðasta grein, en það má ekki
bregða mikið út af, því þá getur
stigafjöldi hmnið í viðkomandi grein.
Keppandi hefur bara þrjár tilraunir í
langstökki, kúlu, kringlu og spjóti, en
það getur verið mjög erfitt að ná
toppárangri í öllum greinum."
Svo fór að lokum að Guðjón
Ólafsson varð bikarmeistari íslands
með 4819 stig, sem telst mjög við-
unandi árangur hjá manni sem æfir
ekki tugþraut. Ámi Óli Guðjonsson
varð í öðru sæti með 3094 stig. Þeir
hlutu bikara að launum og UMF
Óðinn því bikarmeistari í fjölþraut, en
það er stærsti tiltill féalgsins frá
upphafi.
Guðjón Ólafsson segir að Óðinn
hafi náð góðum árangri á þessu ári.
„Uppskeran hefur verið mjög góð og
reyndar sú besta frá stofnun félagsins.
Að undanskildum þeim mótum sem
Ámý Heiðarsdóttir náði á erlendri
grundu, en hún varð Norðurlanda- og
Evrópumeistari öldunga og silfurhafi
á HM öldunga '94 í þrístökki. Vest-
mannaeyiamet á þessu ári em nú orðin
yfir 50.“
Árangur Guðjóns í
bikarkeppninni:
100 m hlaup 13,35 sek.; langstökk
5,35 m; kúlukast 10,46 m; hástökk
1,74 m; 400 m hlaup 59,41 sek.; 110
m grindahl. 18,83 sek. sem er
Vestm.eyjamet; kringla 27,84 m;
stangarstökk 3,70 m; spjótkast 51,27
m; 1500 m hlaup 5,25,05 sek, sem er
yestm.eyjamet.
Árangur Árna Óla Guðjónssonar í
bikarkeppninni:
100 m hlaup 13,61 sek.; langstökk
5,34 m; kúlukast 10,60 m sem er
Vestm.eyjamet; hástökk 1,56 m; 400
m hlaup 65,74 sek.; 110 m grindahl.
21,51 sek; kringla ógilt; stangarstökk
2,80 m; spjótkast 46,11 m; 1500 m
hlaup ógilt.
SÁLARHORNIÐ
Íris Guðmundsdóttir skrifar
s
Ahugi
„Hinn raunverulegi leyndardómur við
velgengni er brennandi áhugi - eldmóður“
Walter Crysler
Sannur áhugi, sá sem ólgar upp
frá innri uppsprettum er andlegs
eðlis. Orðið áhugi á ensku, „enthus-
iasm“ er komið af tveim grískum
orðum „en“ og „theos“ sem þýðir
fylltur af anda Guðs.
Einhvers staðar las ég að ein af
orsökum þunglyndis (fyrir utan
efnafræðilegu hliðina) sé áhugaleysi,
að fólki, sem einhverra hluta vegna
missir móðinn, lífsviljann, áhugann,
sé hættara við þunglyndi en öðrum.
Þetta er vel þekkt þar sem sorgin og
langvarandi streita hafa bankað upp
á.
Það versta sem ég veit er eirðar-
leysi, þetta óþolandi tómarúm sem
fyllir alla vitundina og er svo
sársaukafullt. Við keppumst við að
fylla upp í tómarúmið með alls
konar áhugamálum og athöfnum.
Það getur skipt sköpum hvert við
sækjum þann þrótt, með hverju við
fyllum tómarúmið, og hvort það vari
áfram. Rifjum upp söguna í Biblí-
unni af konunni við brunninn.
Vatnið sem Kristur bauð henni
var lífsins vatn sem var óþrjótandi.
„Þann sem drekkur af þessu vatni
mun aldrei þyrsta framar," sagði
hann við konuna sem vissulega var
orðin langþreytt og áhugalaus. Hún
hafði læðst út að brunninum þegar
enginn sá til, því skömmin yfir lífi
hennar var mikil. Hún hafði reynt að
fylla upp í tómarúmið í lífi sínu, en
sótti í uppsprettu sem var ekki góð,
og skaðaði einungis hana sjálfa sem
og aðra. Og ekki hafði sú uppspretta
varað. Hún hafði verið í sam-
böndum við marga menn, kvænta
og ókvænta, sem fylltu líf hennar
eingöngu af sorg og drógu úr henni
allan lífskraft. Vatnið sem Kristur
talaði um við hana. var ekki það sem
við sækjum í kranann, heldur andi
hans!
Konan fylltist af svo miklum eld-
móði við orð Krists að hún hljóp inn
í bæinn og sagði öllum sem á vegi
hennar urðu hvað Jesús hafði sagt
við hana. Sú sama og hafði læðst út
um hádegið þegar aðrir héldu sig
innandyra vegna hitans, hafði lagt á
sig að bera vatn úr brunninum í
mesta hitanum, svo mikill var ótti
hennar við fólkið og augngotur þess.
Nú hljóp hún um frjáls, og fyllt af
eldmóði. Tómarúmið hafði verið
fyllt. Það skrítna gerðist, að fólkið
sem áður dæmdi hana hneykslaðist
ekki á henni heldur trúði orðum
hennar, það er mikill sannfæringar-
kraftur í orðum áhugasamrar
manneskju, og það sem meira er,
þau þyrsti eftir sama „vatni“ og
buðu Krist velkominn! Einangrun
konunnar, niðurlæging og vafasamt
lífemi hefur án efa endað þann dag!
Við gleymum stundum, söngnum
í hjarta okkar, sem einu sinni gladdi
okkur, sem fyllti okkur eldmóði, og
var drifkraftur lífs okkar. Þegar það
gerist leita ég til æðri máttar, því
hann man sönginn í hjarta mínu, og
syngur hann fyrir mig þegar ég man
hann ekki lengur, eða með öðrum
orðum, fyllir mig nýjum þrótti,
nýjum áhuga!