Þjóðlíf - 01.09.1986, Blaðsíða 17

Þjóðlíf - 01.09.1986, Blaðsíða 17
 mm ujdnT 1 • j ,yy,’ ',VÁ\í‘v ''Át i/1 fyrir verkamanninn sem heildsalann og ráðherrann. Á árunum 1982-83 fór raunvirði nýbyggingarlána frá Húsnæðisstofn- un niður í tólf til 13 prósent af kostn- aði við staðalíbúð. Vegna hinna ónógu langtímalána neyddist fólk unnvörpum til að taka verðtryggð skammtímalán hjá bankakerfinu. Þúsundir fjölskyldna lentu af þessum sökum í fjárhagslegum vítahring sem ósjaldan endaði með eignamissi. Al- gengt er að fólk hafi tapað verð- mætum er svara til tveggja árslauna hjóna. Mælirinn fylltist svo að út úr flæddi á síðari hluta árs 1983. Hús- næðiskreppan var skollin á af fullum þunga. Sigtúnsfundurinn í ágúst 1983 hækkaði lánskjaravísi- talan um nær tíu prósent á einum mánuði. Launin í landinu höfðu hins vegar verið djúpfryst. Það var á þess- um punkti sem hinn frægi Sigtúns- fundur var haldinn, þann 24. ágúst 1983. Viðbrögð kerfisins við Sigtúns- fundinum voru afar ruglingsleg. Einu skýru viðbrögðin voru þau að reynt var að gera fundarboðendur tortrygg- ilega. Einnig var reynt að gera sem minnst úr vandanum; ríkisstjórnin hafði satt að segja verið önnum kafin við að ráða bót á vandanum upp á eigin spýtur og öll „upphlaup" myndu einungis spilla fyrir! Eftir rúmlega tveggja ára föndur ríkisstjórnar, Alþingis, húsnæðis- málastjórnar og Húsnæðisstofnunar við að stoppa í gatsiitið lánakerfi tóku „aðilar vinnumarkaðarins“ loks- ins af skarið. Árangurinn blasir nú við. Nýtt kerfi, sem gjörbreytir eldra fyrirkomulagi, tók gildi 1. sept- ember. Þridjungsmarkmiðið gleymt? Það vekur óneitanlega athygli þeg- ar húsnæðissamkomulag aðila vinnu- markaðarins er skoðað, að þar er ekki stafkrók að finna um það, að þriðjungur allra íbúðabygginga lands- manna skuli vera á félagslegum grundvelli. Slíkt markmið hefur þó verið meginkrafa verkalýðshreyfing- arinnar í húsnæðismálum í kjara- samningum allar götur frá árinu 1974. í tíð núverandi ríkisstjórnar hafa félagslegar byggingar verið á stöðugu undanhaldi. Á árinu 1983 fækkaði þannig byrjunum í félagslega kerfinu niður í 160, en höfðu komist upp í 300 árið 1982, og hafa verið í svipuðu horfi síðan. Hæst náðu félagslegu byggingarnar því að verða 15-20 pró- sent af öllum nýbyggingum en hafa fallið niður fyrir tíu prósent frá og á krossgötum ^_____________ ÞJÓÐLÍF 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.