Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 9

Neytendablaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 9
í bílnum. Yfirleitt er um lengri leiðir að ræða, t.a.m. Reykjavík-Akureyri. Hugmyndin er þá að samferðamenn sameinist um kostnað sem hlýst af bílferðinni, eins og eldsneytiskostnað, en ekki er gert ráð fyrir að neinn hagnist sérstaklega. Þannig fær bíleigandinn upp í bensínkostnað og sá sem fær farið sparar á því að þurfa ekki að fara á eigin bíl, leigja bíl eða kaupa flug eða rútuferð. Svo verður hver og einn bara að eiga við sig hvort hann vill leyfa ókunnugu fólki að gista á heimili sínu eða ferðast í bílnum sínum. Það er hæpið að stórt hlutfall þeirra sem við hittum á lífsleiðinni séu raðmorðingjar eða þaðan af verra en vissulega er rétt að hafa ákveðinn vara á, t.d. með því að ganga úr skugga um að viðkom- andi sé sá sem hann segist vera. Á sófavinasíðunni er t.a.m. hægt að lesa umsagnir annarra notenda um við- komandi auk þess sem hægt er að „kynnast“ fólki betur á Facebook, Skype eða með öðrum samskiptamiðlum áður en komið er að því að hittast. Íbúðir og bílar til leigu Þegar deilihagkerfið ber á góma er nær alltaf minnst á síðuna Airbnb.com. Þar geta einstaklingar skráð hús sín, íbúðir eða bara einstök herbergi í íbúð sinni til leigu til ferðamanna. Nú eru tæplega 1.400 herbergi eða íbúðir auglýst til leigu í Reykjavík og er leiguverð þeirra ódýr- ustu 15 evrur á nóttu en dýrustu eignirnar leigjast út á ríflega 1.000 evrur. Þá er nokkuð um að sömu einstakl- ingar leigi út margar eignir á Airbnb. Flóra eigna á Airbnb er því afar fjölbreytt, í sumum tilvikum er um það að ræða að „gestgjafar“ vilja einfaldlega nýta betur ein- stök herbergi í eign sinni, og kynnast nýju fólki í leiðinni, eða leyfa öðrum að nýta eignina meðan þeir eru sjálfir í sumarleyfi, en í öðrum tilvikum getur verið um mun um- fangsmeiri og ópersónulegri viðskipti að ræða. Auk Airbnb, sem nú er einnig á íslensku, finnast fleiri sam- bæri legar síður, t.d. homeaway.com. Caritas.is er íslensk síða þar sem fólk getur leigt út fjölskyldubílinn. Í raun er um einkaleigu að ræða, þar sem einstaklingar leigja út bifreið sína með milligöngu leigumiðlunar. Af nokkuð öðrum toga eru svo alls kyns leigubílaþjónustur, en Uber, sem enn sem komið er starfar ekki hér á landi, er einna stærst þeirra. Hér á landi eru hins vegar einnig starfandi nokkurs konar leigubílaþjónustur, eins og t.a.m. Skutlarar, sem eru með fjölmennan hóp á Facebook, þar sem fólk auglýsir eftir fari á ákveðna staði og ökumenn láta vita hvar þeir verða á ferðinni. Þetta er allt deili Umræður um deilihagkerfið hafa sætt nokkurri gagnrýni og því verið haldið fram að fyrirtæki sem kenna sig við deilingu verðmæta hafi gjaldfellt hugtakið. Þannig sé „deiliþvottur“ í raun „grænþvottur“ nútímans, en þess er t.a.m. skemmst að minnast að mörg fyrirtæki stunduðu kolefnisjöfnun og bílar sem ganga fyrir hefðbundnu eldsneyti voru jafnvel markaðssettir sem „grænir“. Þannig sé nú komið fyrir „deilihagkerfinu“; t.d. sé Airbnb Starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar er nú starf- andi og mun fljótlega skila skýrslu um möguleika á hjólaleigukerfi og flýtibílaleigu. Vonir standa til að borgin geti fljótlega farið að starfrækja hjólaleigu- kerfi, eins og tíðkast víða erlendis, en enn á eftir að kostnaðargreina það verkefni. Að koma af stað ein- hvers konar bílaleigukerfi er þó flóknara en jafnframt gæti falist í því umtalsverður sparnaður fyrir borgina að draga úr bílaumferð – auk þess sem það fylgdi því mikill sparnaður fyrir neytendur sjálfa að draga úr einkaeign bifreiða. 9

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.