Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 18

Neytendablaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 18
NEYTENDAsTArf Er í ALLrA þÁgu 10-11 a4 arion banki atlantsolía Bananar Borgun Bosch-búðin Bónus Byko Creditinfo Eimskip Ferðaskrifstofa Íslands Flugfélag Íslands Hagkaup Húsasmiðjan iceland icelandair innnes Ísfugl Íslandsbanki Íslandspóstur kaskó krónan Landsbankinn MP Banki Myllan n1 nathan & Olsen nettó Olís Ora Orkan Ormsson ÓB Póstdreifing rúmfatalagerinn samkaup-strax samkaup-Úrval samskip samsung setrið securitas síminn skeljungur sláturfélag suðurlands smith & norland suzuki bílar sölufélag garðyrkjumanna tryggingamiðstöðin valitor vátryggingafélag Íslands víðir vífilfell vínbúðin vodafone vörður tryggingar WOW air NEYTENDABLAÐIÐ // JÚNÍ 2015 // í rEYkmEkkI Eitt hefur lengi truflað undirritaða sem reglulegan leik- húsgest. Það er tóbaksreykurinn sem fylgir alltof mörg- um sýningum. Ekki það að áhorfendur séu að stelast til að reykja (þá yrði nú eitthvað sagt) heldur púa leikar- arnir yfir mannskapinn. Sumir sýningarsalir eru það litlir að tóbaksreykurinn veldur óþægindum og föt og hár lykta „vel“ og lengi eftir sýningu. Eftir tvær sýningar í röð þar sem undirrituð kom heim angandi af tóbakslykt, þ.e. sýninguna Hystery og Konan við 1000°, var mælirinn fullur. Ég trúði því jafnvel að í nafni listarinnar væru reykingar á sviði undanþegnar lögum um tóbaksvarnir. Gremjublandin fyrirspurn til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur leiddi þó í ljós að leik- húsunum er ekki heimilt að bjóða gestum uppá tóbaks- reyk í kaupbæti. Í svari heilbrigðisfulltrúa segir að markmið laga nr. 6/2002 um tóbaksvarnir séu m.a. að vernda fólk fyrir áhrifum tóbaksreyks og að virða skuli rétt hvers manns til að þurfa ekki að anda að sér lofti sem er mengað tóbaksreyk af völdum annarra. Í 1. mgr. 9. gr. kemur fram að tóbaksreykingar eru óheimilar í þjónusturýmum stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka og skv. 10. mgr. 2. gr. um skilgreiningu þjónusturýmis er ótvírætt að sýn- ingar salir í leikhúsum falla þar undir og engar heimildir eru í lögunum til að veita undanþágu frá umræddu reyk- ingarbanni. Niðurstaða heilbrigðiseftirlitsins er því sú að leikarar hafa ekki heimild til að reykja á sviði þrátt fyrir að reykingar séu skrifaðar inn í leiktexta eða leikstjóri fari fram á að reykt sé á sviðinu til þess að þjóna listrænum tilgangi og skapa með því trúverðuga ímynd. Ég hef fulla trú á því að áhorfendur geti lifað sig inn í leik rit þó að ekki sé um raunverulegar sígarettur að ræða þannig að við sem viljum útrýma þessum hvimleiða sið úr leikhúsi ættum að vera dugleg að kvarta til leikhús- anna þegar púað er yfir okkur tóbaksreyk í listrænum tilgangi. ÞH LEIkhÚsgEsTIr í rEYkmEkkI 18

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.