Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.2002, Blaðsíða 37

Ægir - 01.04.2002, Blaðsíða 37
37 L O Ð N U V E I Ð A R umræða sem maður heyrir stund- um að það sé veitt alltof mikið af loðnu. Ég býst við að erfitt sé að segja nákvæmlega til um hversu mikið sé óhætt af veiða úr stofn- inum. En ég tel að óhemju mikið af loðnu hafi hrygnt núna í mars, því stærsta loðnugangan sem fór fyrir Reykjanesið endaði um 20 mílum þar vestur af og bókstaf- lega hvarf. Ég held því að ástæðu- laust sé að óttast að við höfum drepið alla loðnuna í vetur, þrátt fyrir að aflinn hafi verið mikill og góður. Við á Guðmundi Ólafi höfum verið töluvert í sumarveið- um á loðnu, t.d. norður og norð- austur af Langanesi, út af Vest- fjörðum og sömuleiðis á Kol- beinseyjarsvæðinu. Á þessum svæðum sjáum við aldrei þorsk í kringum loðnuna, eins og við gætum búist við miðað við þá vitneskju að þorskurinn þrífist að töluverðu leyti á loðnunni. Í vet- ur veiddum við loðnu í flotvörpu við aðalþorskveiðislóð fyrir Aust- urlandi. Við drógum flotvörpuna frá 15 föðmum og alveg niður á 140 faðma og urðum á þessum slóðum aldrei varir við þorsk. Við hefðum meira að segja ekki getað veitt okkur þorsk í matinn. Ég hef enga skýringu á því hvernig á þessu stendur. Ef þorskinn vantar mikið æti, þá held ég að hann sé varla svo vitlaus að hann reyni ekki að halda sig þar sem það er. Þegar ég var að byrja á loðnunni í kringum 1984 var haustloðnu- veiðin mikil út á Kögurgrunni og norður af Horni, á venjulegri tog- slóð. Besta loðnuaflann fengum við að degi til þegar bolfiskurinn hafði hópast undir loðnuna og lyft henni hreinlega upp. Þetta höfum við ekki séð gerast til fjölda ára. Með öðrum orðum virðist vera hverfandi lítið um þorsk þar sem við erum að veiða úr loðnutorfunum. Á loðnuslóð eru kannski ein fimmtán skip að draga á eftir sér flotvörpur með þéttriðnum pokum og vitanlega ættum við að fá einhvern þorsk í vörpurnar, en það gerist bara ekki. Ég minnist þess að hér á árum áður vorum við á fiskitrolli á gamla bátnum okkar að hausti til, meðal annars á mikilli loðnuslóð út á Strandagrunni og vestur á Hala og Kögurgrunni. Á Strandagrunni var oft óhemju af þorski og þar var aðalætið hans greinilega rækja, en ekki loðna. Ég tel því að menn geti verið al- veg rólegir með það að þrátt fyrir góða loðnuveiði erum við örugg- lega ekki að drepa ætið frá þorsk- inum.„ Eins og að reka fé til réttar Lýsingar Marons á stórauknum fjölda hvala á loðnumiðunum kemur heim og saman við lýsing- ar fjölmargra annarra loðnusjó- manna. „Það er í raun undravert hversu mikil loðna er í sjónum miðað við það hvalastóð sem er alveg gjör- samlega að kaffæra okkur. Allir þessir hvalir þurfa óhemju að éta, um það þarf ekki deila. Það er engin spurning að hvölum hefur fjölgað geysilega á undanförnum árum. Þegar ég var að byrja á loðnunni tók maður sveig ef mað- ur sá hval, en núna er oft engu líkara en maður sé að reka fé til réttar. Hvalirnir fylgja loðnunni eftir og þeir eru greinilega líka í samkeppni við loðnuna um ljós- og rauðátu. Í mínum huga er það með hreinum ólíkindum að menn skuli sitja kófsveittir yfir því hvort flotinn megi veiða 10-20 þúsund tonnum meira eða minna af bolfiski og 100 þúsund tonn- unum meira eða minna af loðnu, á sama tíma og hvalirnir eru að éta við nefið á okkur allt að tveimur milljónum tonna af fiski. Þegar líður að kosningum vakna alltaf einhverjir þingmenn upp og leggja til að við förum að veiða hval, þó svo að fyrir liggi skýr vilji Alþingis um það. Um leið og búið er að telja upp úr kjör- kössunum er kannski í mesta lagi einn þingmaður af Akranesi sem heldur þessari umræðu gangandi. Aðrir hafa snarlega gleymt henni. Við höldum að við getum lifað af því að fylla hverja Flugleiðaþot- una af annarri af túristum og sýnt þeim hvali. Þetta er auðvitað al- Maron Björnsson, skipstjóri á Guðmundi Ólafi ÓF. „Ef þorskinn vantar mikið æti, þá held ég að hann sé varla svo vitlaus að hann reyni ekki að halda sig þar sem það er.„

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.