Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2009, Blaðsíða 6
6 föstudagur 14. ágúst 2009 fréttir
Sandkorn
n Félagarnir í Dark Harvest hafa
stundum verið kallaðir landslið
þungarokkara enda með eindæm-
um þétt og öflug hljómsveit þó
fámenn sé.
Nú stendur
til að hljóm-
sveitin fari í
hljóðver og
taki upp tvær
frekar en eina
plötu. Önnur
er þungarokks-
plata í þeirra
stíl og verður söngvari kynntur til
sögunnar áður en upptökur hefjast.
Hin platan gæti þó sætt öllu meiri
tíðindum því þar halda hljómsveit-
armenn inn á nýjar brautir og feta
slóðir blúsins. Sú plata verður þó
sennilega ekki gefin út undir nafni
Dark Harvest heldur gítarleikarans
Guðlaugs Falk.
n Þórir Hákonarson og samstarfs-
fólk hans hjá KSÍ þykja hafa klúðrað
málum hressilega í undanþágumál-
inu vegna markmannsvandræða
Hvatar. Atli Jónasson, varamark-
vörður KR,
fékk undan-
þágu til að leika
fyrir Hvöt í 2.
deild en und-
anþágan var
afturkölluð 45
mínútum fyrir
leik þegar upp-
götvaðist að
Atli hafði leikið einn leik með KR í
sumar. Þetta þykir sérstaklega vand-
ræðalegt vegna þess að á vef einum
hérlendum er haldið nákvæmlega
utan um hverjir hafa leikið með
hvaða liðum í öllum deildum, auk
upplýsinga um áminningar, félaga-
skipti og ýmislegt annað markvert.
Sá vefur er heimasíða KSÍ og því
hæg heimatökin að fá þetta á hreint.
n Gréta Sigurðardóttir, móðir
Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrr-
verandi forstjóra Kaupþings, rekur
gistiheimili á
Laufásvegi 1 í
Stykkishólmi
sem hún kall-
ar Bænir og
brauð. Móðir
Hreiðars varð
landsfræg fyrir
meira en tíu
árum þegar
hún var dæmd fyrir að hafa stolið
milljónum af sjóklæðagerðinni Max
en hún vann þar sem gjaldkeri. Síð-
an þeir atburðir gerðust í lífi Grétu
hefur hún orðið mjög trúuð, líkt og
nafnið á gistiheimilinu ber með sér.
Nú er spurning hvort Gréta verði
bænheyrð þegar hún biður fyrir syni
sínum, en hann er einn af hinum
grunuðu í rannsókn sérstaks sak-
sóknara á efnahagshruninu. Ólík-
legt er hins vegar að Gréta muni líka
biðja Guð um brauð fyrir Hreiðar
enda var hann skattakóngur Rekja-
víkur 2008 og án vafa sterkefnaður
enn þrátt fyrir kreppuna.
2 dálkar = 9,9 *10
Fyrir bústaðinn og heimilið
Rannsóknarnefnd Alþingis hefur
ekki rætt við Valgerði Sverrisdótt-
ur, fyrrverandi viðskiptaráðherra,
um einkavæðingu ríkisbankanna,
Landsbankans og Búnaðarbank-
ans, árið 2002. Valgerður var við-
skiptaráðherra þegar bankarnir
voru einkavæddir og hefur aðkoma
hennar að einkavæðingunni verið
gagnrýnd á síðustu árum.
Aðspurð hvort rannsóknar-
nefndin hafi verið í sambandi
við hana til að ræða við hana um
einkavæðingu bankanna eða söl-
una á VÍS segir Valgerður. „Nei...
ekkert slíkt.“ Rannsóknarnefndin
virðist því ekki enn hafa rætt við
helstu leikendurna í einkavæðingu
bankanna þrátt fyrir þá gagnrýni
sem sett hefur verið fram á hana á
síðustu árum.
Einkavæðingin skoðuð
í skýrslunni
Rannsóknarnefndin hefur boðað
það að hún muni rannsaka íslenska
efnahagshrunið allt aftur til einka-
væðingar ríkisbankanna tveggja
árið 2002 og binda margir vonir við
að nefndin muni varpa nýju ljósi á
einkavæðinguna. Rót íslenska efna-
hagshrunsins er talin liggja í einka-
væðingu Landsbankans og Bún-
aðarbankans og byggist það mat á
því að bankarnir hafi verið seldir
til aðila, Björgólfsfeðga og S-hóps-
ins, sem höfðu litla þekkingu og
reynslu af bankarekstri. Þessi stað-
reynd er meðal annars talin útskýra
af hverju bönkunum var stjórnað
á eins glæfralegan og áhættusæk-
inn hátt og raun bar vitni. Skýrsla
nefndarinnar um íslenska banka-
hrunið á að vera tilbúin í síðasta
lagi 1. nóvember næstkomandi.
Þrátt fyrir að nefndin hafi boð-
að að hún muni taka einkavæð-
inguna fyrir hefur hún, hingað til
að minnsta kosti, ekki séð tilefni
til að leita til Valgerðar eftir upp-
lýsingum um hennar aðkomu að
einkavæðingunni og hvernig að
henni var staðið. Gera má ráð fyrir
að hið sama eigi við um aðra lykil-
menn í einkavæðingunni, svo sem
eins og Davíð Oddsson, Halldór Ás-
grímsson og Geir H. Haarde, sem
og meðlimi einkavæðingarnefnd-
ar eins og Ólaf Davíðsson og Jón
Sveinsson.
Skýrslutökum ekki lokið
Sigríður Benediktsdótt-
ir, meðlimur rannsóknar-
nefndar Alþingis, segir að
skýrslutökurnar í rannsókn-
inni á íslenska efnahagshrun-
inu séu í fullum gangi. „Skýrslu-
tökur eru enn í fullum gangi
og það er engan veginn komin
nein tæmandi mynd á þær. Ég
held að við séum ekki einu sinni
hálfnuð í skýrslutökunum. En við
erum að vinna alveg á fullu þessa
dagana,“ segir Sigríður.
Aðspurð hvort rann-
sóknarnefndin muni
kalla til sín einstaka
ráðherra, sem voru
í ríkisstjórn þeg-
ar bankanir voru
einkavæddir,
segir Sigríður að Páll Hreinsson,
formaður nefndarinnar, hafi gefið
það út að íslenska efnahagshrun-
ið verði skoðað allt aftur að einka-
væðingu bankanna. „Eins og fram
hefur komið hjá Páli ætlum við að
rannsaka aftur til einkavæðingar.
Þar af leiðandi munum við tala við
þá sem máli skipta í einkavæðing-
unni,“ segir Sigríður.
Ástæðan fyrir því að margir bíða
spenntir eftir skýrslu rannsóknar-
nefndarinnar og umfjölluninni um
einkavæðinguna er sú að athug-
un Ríkisendurskoðunar á einka-
væðingunni á sínum tíma þótti
ekki mjög ítarleg eða gagnrýnin og
er vonast eftir því að nefndin taki
öðruvísi og fastar á einkavæð-
ingunni til að grafast fyrir
um hvernig að henni
var staðið.
Rannsóknarnefnd Alþingis hefur ekki rætt við Valgerði Sverrisdóttur um einkavæð-
ingu bankanna. Nefndin hefur boðað að hún muni rannsaka bankahrunið aftur til
einkavæðingar bankanna. Valgerður var viðskiptaráðherra þegar bankarnir voru
einkavæddir.
EKKI ENN BÚIÐ AÐ
RÆÐA VIÐ VALGERÐI
IngI F. VIlhjálmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Ég held að við séum
ekki einu sinni hálfnuð
í skýrslutökunum.“
Ekki spurð út í einkavæðinguna
Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi
viðskiptaráðherra, hefur ekki verið
spurð út í einkavæðingu ríkisbank-
anna af rannsóknarnefnd Alþingis.
Einkavæðingin skoðuð Rannsóknarnefnd Alþingis
hefur gefið það út að hún muni skoða einkavæðingu
bankanna í rannsókn sinni, samt hefur ekki enn verið rætt
við Valgerði Sverrisdóttur vegna þessa en skýrslutökunum
er ekki lokið. Páll Hreinsson er formaður nefndarinnar.