Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2009, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2009, Síða 16
Ögmundur Jónasson, heilbrigðis- ráðherra og einn helsti forystumað- ur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, er einn af arkitektum rík- isstjórnar VG og Samfylkingarinn- ar. Hann teflir mannréttindum gegn eignatjóni af völdum bankahrunsins og telur þau vera undirstöðu velferð- arstjórnmálanna. Sumir telja að þjóðþinginu beri bók- staflega skylda til þess að setja fyrir- vara við þungar skuldbindingar telji það að þær sligi efnahagslífið og að innviðir efnahagslífsins bogni undan þunganum og ógni öryggi þjóðarinn- ar. Fylgir þú þessari röksemd? Þetta er hárrétt og hverju orði sannara. Og ég held að ekkert ann- að þjóðþing í heiminum geti gert at- hugasemdir við slíka fyrirvara. Þegar Bretar og Hollendingar, sérstaklega Bretar, eru með fordæmingar í okkar garð ættu þeir að ganga varlega um sali. Þeir töldu að neyðarlögin sem sett voru hefðu mismunað mönn- um í þágu íslenskra þegna. Það kann að vera. En hvað gerðu þeir sjálf- ir með hryðjuverkalögunum þegar þeir frystu eigur íslensks banka, stór- sködduðu efnahag þjóðarinnar og fjármálastofnana sem þeir bókstaf- lega felldu. Þetta afsakar ekki mann- skapinn sem er valdur að ógæfu okk- ar. En ég er að benda á að Bretar hafa ekki hreinan skjöld. Hvert samfélag reynir að verja sína innviði. Svo er það annað, og ég endur- tek að við eigum að standa við okk- ar skuldbindingar. Allir eru nú upp- teknir af eignarréttinum af því að einstaklingar, stofnanir og sjóðir eru að tapa innistæðum sínum eftir að hafa leitað uppi hærri vexti en buð- ust annars staðar. Þetta er slæmt rétt eins og annað tjón sem menn verða fyrir. En það eru til annars konar rétt- indi. Við köllum þau mannréttindi. Það er réttur öryrkjans og láglauna- mannsins og réttur mannsins sem þarf að leggjast inn á krabbameins- deild Landspítalans eða liggja þar í nýrnavél. Þegar við förum að meta réttindin, eignarréttindin annars vegar og mannréttindin hins vegar vaknar spurningin um það hvar við stöndum í pólitíska litrófinu. Hvaða hagsmuni ætlum við að verja? Ætl- um við að setja í forgang rétt eigna- mannsins sem er að missa eigur sín- ar eða hins sem er að gera kröfu til þess að njóta mannréttinda. Þessu þurfum við öllu að tefla saman. Þjóð sem lendir í þrengingum og verður fjárvana, hún forgangsraðar. Ég vil forgangsraða undir fánanum sem þessi ríkisstjórn hóf að húni um vel- ferðarsamfélagið. Fellur ríkisstjórnin ef Icesave fer ekki í gegn um þingið? Ég held að allir geri sér grein fyr- ir því að hrár Icesave-samningurinn fer ekki í gegn um þingið. Það er al- veg deginum ljósara. Það eru ýmsir sem vilja fella samninginn. Ég segi fyrir sjálfan mig að ég hefði helst vilj- að fá þennan samning út úr sögunni. Ég geri mér jafnframt grein fyrir því að það gæti mistúlkast sem svo að við vildum ekki gangast við skuld- bindingum okkar, sem aftur gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir okkur. Og þá leita ég að öðrum kostum. Eru til einhverjir millileikir þar sem við tök- um upp viðræður við þessi ríki? Það er vert að skoða. Nú er á vinnslu- borðinu hvort hægt sé að finna fyr- irvara sem eru ásættanlegir fyrir Aþ- ingi. Ég vonast til þess að um þetta geti orðið víðtæk sátt. Átökin innan VG Tekst þú á við Steingrím J. Sigfússon um völd og áhrif innan VG? Margir velta því fyrir sér hvort framganga þín í Icesave beri þessu vitni? Þetta er af og frá. Ég neita því ekki að ágreiningurinn reynir mjög á okk- ur báða og félaga okkar. Þetta mega hins vegar ekki verða átök um per- sónur en því miður er alltaf tilhneig- ing til að persónugera málefnalegan ágreining. Þeir sem þekkja til sam- bands okkar Steingríms J. Sigfús- sonar vita hins vegar miklu betur. Við höfum verið samherjar og vin- ir í áralangri baráttu þótt við höfum ekki alltaf verið sammála um alla 16 föstudagur 14. ágúst 2009 helgarblað Jóhann hauksson blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Þurfum Hreina sa visku „Ég neita því ekki að ágreiningurinn reynir mjög á okkur báða og félaga okkar... Þeir sem þekkja til sambands okkar Steingríms J. Sig- fússonar vita hins veg- ar miklu betur.“ Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra teflir djarft til þess að draga úr nauðung Icesave-samninganna. Hann gengur fram fyrir skjöldu og telur að breið samstaða á Alþingi um fyrirvara við samninginn sé mest um verð. Þvert á viðtekin viðhorf telur Ögmundur að með því að fara eins langt gegn Icesave-samningnum og frekast er unnt megi bjarga stjórnarsamstarfinu. Í samtali við Jóhann hauksson útskýrir Ögmundur það sjónarmið baráttumannsins að þjóð með góða samvisku nái betri samningum. að nálgast hið rétta „Þetta snýst ekki um að vantreysta einum eða neinum. Ég vil að Ísland geti staðið við skuldbindingar sínar en ég vil líka vera sannfærður um að við séum að gera rétt.“ myndir BraGi Jósefsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.