Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2009, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2009, Qupperneq 29
hafi haft áhrif á kommúnistann Hall- dór Laxness meðan sagan um Þórð í Kálfakoti var að brjótast í honum og hafi haft áhrif á hina endanlegu mynd af Bjarti í Sumarhúsum. En þetta er nú bara reyndar bara mín kenning, og ekki sérlega ígrund- uð. Halldór var vissulega byrjaður að hugsa um Þórð í Kálfakoti löngu áður en málefni kúlakka komust í hámæli. Hitt er aftur á móti víst að í mín eyru fór Halldór hinum verstu orðum um Bjart í Sumarhúsum, kallaði hann „þurs“ og „afglapa“ og ég man ekki hvað. Allavega endaði það ekki allt í hinu niðurskrifaða viðtali, hreinlega af því ég kunni ekki við að birta svo eindregna fordæmingu hins roskna höfundar á sögupersónu sinni. Þótt ég sé hér að skemmta mér við „name-dropping“, þá er þetta við- tal mitt við Halldór síður en svo eina dæmið þar sem höfundurinn lýsti hreinlega andúð sinni á sögupersón- unni Bjarti í Sumarhúsum. Og það er alveg ástæðulaust að efast um að það var svo sannarlega hvorki lof né prís í garð hins íslenska heiðabónda sem vakti fyrir Halldóri þegar hann skrif- aði bókina. Þvert á móti. En þvílíkur snillingur var Halldór að stíl og svo fullur af samúð með persónum sín- um (þegar út í verkið sjálft var kom- ið) að einhvern veginn varð sú níð- stöng sem hann hugðist reisa Bjarti í Sjálfstæðu fólki að dýrðaróði til hans í margra augum. Frelsisþrá bóndans í sumarhúsum? Þar á meðal mínum, lengi vel. Eins og ég drap á áðan, þá þurfti ég að lesa Sjálfstætt fólk mörgum sinnum áður en ég áttaði mig á því hvern mann Bjartur í Sumarhúsum hafði í raun að geyma. Ég trúði því, eins og Ögmund- ur, Einar Már, Þorgrímur Einar og margir fleiri, að Bjartur væri fyrst og fremst tákngervingur frelsisþrárinnar. Þótt hann væri kannski svolítið þver- móðskufullur á stundum, þá bæri honum lof og prís fyrir óaflátanlega hvöt hans til að standa á eigin fótum, öðrum óháður, já, hann var eiginlega sjálfstæðishetja Íslands. Svo rann það skyndilega upp fyr- ir mér við fjórða eða fimmta lestur á bókinni að ég hafði látið stílsnilldina sem umlykur bóndann í Sumarhús- um blinda mér gjörsamlega sýn. Bjartur var ekki svolítið gallaður en þó góður og ærlegur kall inn við beinið. Nei, hann er eitthvert versta skrímslið í samanlögðum íslenskum bókmenntum. Lítum á feril Bjarts. Hann var vinnumaður á Rauðsmýri í 17 ár og það er gjarnan tekið til marks um frelsisþrána sem bjó í brjósti hans að öll þau ár hafi hann unnið sleitulaust að því að brjóta af sér bönd kúgar- anna og öðlast sjálfstæði. Gott og vel, en það kemur skýrt fram í bókinni að það var alls ekki dugnaður Bjarts og elja þessi 17 ár sem gerði honum að lokum kleift að hefja að lokum eigin atvinnurekstur. Nei, hann var keyptur til þess af húsbændum sínum. Í staðinn tók hann að sér konu sem hann elsk- aði ekki og sem elskaði ekki hann. Og sem bar undir belti barn ann- ars manns. Með þessum ógeðfellda kaupskap hófst atvinnurekstur Bjarts í Sumarhúsum. Þannig kom hann fótunum undir „frelsi“ sitt. Vék aldrei góðu að neinum Og þótt konan, sem hann „tók að sér“ hefði þannig gert honum kleift að opna sína eigin sjoppu – nei, afsakið, stofna eigið býli – þá fór því fjarri að hann sýndi henni þakklæti og skiln- ing í raunum hennar. Aldeilis ekki. Hann fór svívirðilega með þá konu, virti hana einskis og bar að lokum fulla ábyrgð á hræðilegum dauðdaga vesalings konunnar. Og ekki lærði Bjartur sína lexíu. Hann náði sér í aðra konu sem hann virti engu meira en hina fyrri, sama þó hún þrælaði látlaust í fyrirtæki hans og bæri hon- um fjölda barna í leiðinni. Nei, hann vék aldrei góðu að þeirri konu, frekar en öðru fólki. Börnin sín fór hann skelfilega með, lagði á þau hendur og níddist á þeim á alla mögulega lund. Hrylling- urinn sem einkenndi samskipti hans við Ástu Sóllilju og drengina er eigin- lega óbærilegur, strax maður og svipt- ir hulu stílsnilldarinnar frá augunum. Bjartur í Sumarhúsum víkur aldrei góðu að nokkrum manni. Hann seg- ir aldrei neitt fallegt við nokkra sál. Hann leggur aldrei neinum lið né hjálpar neinum, nema hann telji sig geta haft eitthvert gagn af því. Kaflinn þegar hann þekur frá konu sem hafði ekki unnið sér annað til saka en reyna að gleðja hann með góðu kaffi sýnir á átakanlegan hátt hve vondur maður hann var. Sömuleiðis meðferðin á vesalings kúnni. Hann er ekki einu sinni góður við hundinn sinn. Hann hugsar aldrei um þarfir ann- arra en sjálfs sín. Allt skal lúta valda- þrá hans – því það má alveg eins líta á drifkraftinn í lífi hans sem valdafíkn eins og „frelsisþrá“. sVo Vondur og illa innrættur maður Einhver gæti hugsanlega sagt honum til afbötunar að líf hans sé svo erfitt, lífsbaráttan svo hörð, að hann hafi brynjað sig svona hressilega – enginn megi fá færi á hans innri manni. Það kann að vera rétt en þó eru ótal dæmi, bæði í bókmenntum og raunveruleik- anum, um fólk sem lifir erfiðu lífi en hefur þó hjartagæsku til að víkja stöku sinnum góðu að öðru fólki. Það gerir Bjartur aldrei. Í raun og veru er Bjartur svo vond- ur og illa innrættur maður að það er með mestu ólíkindum að menn skuli enn taka sér nafn hans í munn í jákvæðum tón – og vilja líkja sér við hann líkt og ágætir menn eins og Þor- grímur Einar gera. Í rökfræði er stundum sagt að það sé til marks um rökþrot ef menn fara að líkja andstæðingum sínum við Adolf Hitler. Þar með skjóti menn svo ærlega yfir markið að það sé ekki hægt að taka neitt mark á þeim eftir það, því enginn geti verið jafnslæmur og Adolf Hitler. Ég ætla nú ekki að lenda í þessari gildru, með því að líkja þeim sérstak- lega saman, Bjarti í Sumarhúsum og Adolfi Hitler. En mér finnst eiginlega að þeir sem vilja brúka Bjart til stuðn- ings sínum sjónarmiðum í pólitík eða lífinu almennt, þeir séu á hálum ís. Með því að líkja sér eða skoðunum sínum við þennan „afglapa“ og „þurs“ eins og skapari hans komst meira að segja sjálfur að orði. eru útrásarVíkingarnir bjartur? Og þá er meira að segja alveg horft framhjá því að allur atvinnurekstur Bjarts var gjörsamlega mislukkaður. Ef líkja á Bjarti við eitthvað í samtíma vorum, þá væru það kannski einna helst – þó ótrúlegt megi virðast – út- rásarvíkingarnir. Þeir vildu líka um- fram allt vera sjálfstæðir og upphaf og endir sumra útrásarvíkinga var engu félegri en hjá Bjarti í Sumarhúsum. Hann gat lengi vel varla séð fyrir sér og sínum, þrátt fyrir að keypt hafi ver- ið undir hann kot, en þegar hann hóf allt í einu útrás með húsbyggingunni misráðnu, þá fór allt út um þúfur. Heimsstyrjöldinni var kennt um, rétt eins og útrásarvíkingar nútím- ans kenna heimskreppunni um sín- ar ófarir. Og Bjartur hrökklaðist aftur á nýtt örreitis kot. Við skulum ekki fara þangað með honum. Það er vond vist nálægt Bjarti í Sumarhúsum. helgarblað 14. ágúst 2009 föstudagur 29 SKRÍMSLIÐ Í SUMARHÚSUM jón sigurðsson Enginn veit hvernig Jón forseti hefði kosið í Icesave-málinu. halldór laxness Nóbelsskáldið vildi svara fegraðri mynd Knuts Hamsun af smábónda með kúgaranum Bjarti í Sumarhúsum. Kammakarlo Barnaföt Bæjarlind 12 Kópavogi s.554-5410 www.kammakarlo.is ÚTSALAN í fullum gangi!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.