Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2009, Síða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2009, Síða 41
helgarblað 14. ágúst 2009 föstudagur 41 Smáauglýsingasíminn er 515 5550 smaar@dv.is VERNDAÐU EINKALÍFIÐ Á FACEBOOK 8. EKKI AUgLýsA EINKALÍFIÐ Í þessu ráði er líka farin sama leið og í ráði 2 nema þú klikkar á Fréttaveita og veggur (News Feed and Wall) til tilbreytingar. Þar inni er flipi sem heitir Aðgerðir innan Facebook (Actions Within Facebook) sem er ansi góður flipi. Þar getur þú valið hvaða aðgerðir sem þú framkvæmir eru sýnilegar vinum þínum þegar þeir skrá sig inn á Facebook. Sumu vill maður nefnilega bara halda fyrir sig. Til dæmis alls kyns virkni í hinum ýmsu stefnumóta- þjónustum sem finnast á Facebook - algjör óþarfi að afi og amma geti séð þá sem þú ert skotin/n í fyrr en þú býður þeim heim í kaffi. 9. AUgLýsINgABANN Á Facebook er hægt að vera aðdáandi alls milli himins og jarðar - allt frá hreins lofts og nudds til þekktra tónlistarmanna og fínna veitingastaða. Þegar þú vafrar á Facebook eru oft auglýsingar hægra megin þar sem ýmsar vörur og þjónusta eru kynnt. Þá sérðu stundum að vinir þínir eru aðdáendur þessarar þjónustu. Ef þú ferð sömu leið og í ráði 8 nema klikkar á flipann Facebook auglýsingar (Facebook Ads) getur þú valið hvort þú viljir taka þátt í slíkum auglýsingum og láta vini þína vita að þú nýtir þér þjónustuna eða vöruna sem verið er að auglýsa. 10. PAssAÐU þIg Á FyRIRtæKjUNUm Þegar þú segir já við að taka skemmtilegt próf samþykkir þú svokallaða viðbót, application á ensku. Þannig gefur þú fyrirtæki sjálfkrafa leyfi til að sjá upplýsingar um þig og vini þína. Þetta geturðu svo sannarlega takmarkað enda óvíst hversu æskilegt það er að eitthvert fyrirtæki í Kína eða Noregi fari að nýta sér upplýs- ingar um þig, kannski í rannsóknar- eða auglýsingaskyni, og græði á þér án þess að þú vitir það. Veldu valmöguleikann Stillingar fyrir viðbætur (Application settings) í bláu Facebook-stikunni efst á síðunni. Þar færðu yfirlit yfir allar viðbætur sem þú hefur samþykkt og getur breytt aðgangi fyrirtækja að upplýsingunum þínum eða einfaldlega eytt viðbótinni sem þú notar væntanlega afar sjaldan. Þannig getur þú samþykkt viðbót, tekið skemmtilegt próf, fengið niðurstöðurnar og birt á síðunni þinni og eytt síðan viðbótinni. Velkomin í Hólaskóg Skemmtilegar skoðunarferðir á götuskráðum fjórhjólum um náttúruperlur Þjórsárdals og nágrennis, jafnt sumar sem vetur. Sími: 661-2503 eða 661-2504 www.icesafari.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.