Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2013, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2013, Blaðsíða 52
Þ rátt fyrir að vera aðeins fjögurra og fimma ára þá eru þau nú þegar orðin þekkt fyrir tískustíl stinn. Þau Aila Wang og Alonso Mateo þekkjast ekki en eiga það sameiginlegt að vera bæði dýrk- uð og dáð af þúsundum um allan heim sem keppast við að dásama tískustíl þeirra. Gagnrýnisraddir heyrast líka en þær eru mun lág- værari en óp aðdáendanna sem skipta þúsundum. „Að mestu leyti hann sjálfur“ Alonso Mateo er fimm ára og lofað- ur fyrir flottan fatastíl. Móðir hans, stílistinn Luisa Fernanda, byrjaði að setja myndir af syninum inn á Instagram fyrir nokkrum mánuðum og Alonso eignaðist á skömmum tíma þúsundir fylgjenda á síðunni. Nú eru til nokkrar Instagram-síð- ur með myndum af honum, sem og Facebook-aðdáendasíðum auk annarra síða á internetinu. Á mynd- unum er hann gjarnan klæddur í dýran merkjaklæðnað eins og Tom Ford, Dior og Gucci. Sé nafn hans slegið inn í leitar- vélar má lesa fjölmargar færslur á tískubloggum þar sem skrifað er um tískustíl hans og flestir kepp- ast bloggararnir við að dásama fal- legan stíl hans. En hann fær ekki bara lof heldur líka gagnrýni. Fjöl- margir hafa gagnrýnt foreldra hans fyrir að setja barnið í þessa stöðu en móðir hans hefur vísað þeim ásök- unum á bug og segir hann sjálf- an vilja þetta. „Ég hjálpa honum stundum að raða saman fötunum svo að þau virki saman en að mestu leyti er þetta hann sjálfur,“ sagði hún í samtali við bloggsíðuna The Cut. Gagnrýnd af dýraverndunarsamtökum Annað frægt tískubarn sem mikið hefur verið fjallað um undanfarið er Aila Wang. Sú er fjögurra ára og er frænka fatahönnuðarins fræga Al- exanders Wang. Frændi leggur mik- ið upp úr að barnið sé í flottum föt- um og hannar því á hana föt fyrir viðburði. Sú litla hefur vakið mikla athygli fyrir klæðaburð sinn og virð- ist eiga marga aðdáendur sem lofa stíl hennar. Hún hefur þó varla mikið vit á stílnum sjálf vegna ungs aldurs og veit líklega ekki af því hversu fræg hún er orðin. Mörgum finnst um og of að setja slíka pressu á ungt barn en sitt sýnist hverjum. Aila hef- ur meðal annars verið gagnrýnd af dýraverndunarsamtökum þar sem hún hefur klæðst feldi opinber- lega. Líklega veit Aila litla lítið um dýravernd en virðist samt sem áður kunna ágætlega við sig í sviðsljósinu – enn sem komið er. Fylgst með þeim Fleiri fræg „tískubörn“ eru með- al annars Suri Cruise, dóttir Tom Cruise og Katie Holmes, og Harper, dóttir Davids og Victoriu Beckham. Þegar þær sjást opinberlega með for- eldrum sínum er jafnan mikið gert úr klæðaburði þeirra og hafa erlend- ir miðlar oft fjallað um fötin þeirra. Sumum finnst bara eðlilegt að spáð sé í tísku barna eins og tísku fullorðinna. Aðrir segja óeðlilegt að setja slíka pressu á börn sem hafi í mörgum tilvikum lítið um það að segja hverju þau vilji klæðast. n 52 Fólk 11.–13. október 2013 Helgarblað S pjallþáttastjórn- andinn Jimmy Kimmel, sem tók við þætti Jay Leno eftir að hann settist helgan stein, hefur undanfarið átt í erjum við rappar- ann Kanye West. Síð- astliðnar vikur hafa herramennirnir skotið fast á hvorn annan en Kimmel tilkynnti í vik- unni að nú væri kom- ið gott. Kimmel sagði að til að miðla málum myndi hinn geðþekki sjónvarpssálfræðingur dr. Phil vera viðstadd- ur, en ekkert varð úr því. Kanye kom svo í þátt Kimmels á miðvikudaginn og náðu þeir sátt í málinu. Erjur þeirra má rekja til þess er Kimmel gerði grín að viðtali sem tekið var við Kanye á BBC. n Börn sem tísku- fyrirmyndir n Fimm ára með þúsundir fylgjenda á Instagram n Hafa átt í erjum síðastliðnar vikur topp 5 Stjörnur sem hafa farið í lýtaaðgerðir 1 Dolly Parton Hin goðsagna-kennda kántrýsöngkona Dolly Parton hefur farið í ófáar lýtaaðgerðir og trónir á toppnum enda ögraði hún þyngdarlögmálinu með silíkonfyllingum í brjóst. Brjóstin urðu vörumerki Dolly og hún hefur ekki látið þar við sitja og hefur líka látið gera ýmislegt við andlitið. 2 Joan Rivers Fast á hæla Dolly fylgir Joan Rivers sem hefur farið í svo margar andlitslyftingar og bótóx-sprautur að hún hefur ekki tölu á því sjálf. Út- lit hennar er orðið ónáttúrulegt og getur hún illa sýnt eðlileg svipbrigði. 3 Bristol Palin Dóttir Söruh Palin fór í óskiljanlega lýtaaðgerð. Bristol var gullfalleg ung stúlka og gædd fögrum æskuljóma. Hún lét laga kjálkann á sér eftir að móðir hennar varð fræg og nú hafa mæðgurnar áþekkan hökusvip. 4 Janice Dickinson Þessi fyrrverandi ofurfyr- irsæta og þáttastjórnandi fyrirsætuþátta hefur ekki látið sína náttúrulegu fegurð fleyta sér inn í ellina. Janice hefur verið sem óð á bekkjum lýtalækna Hollywood og er orðin ansi óálitleg. 5 Courtney Love Rokkarinn og ótemjan Courtney Love gerir það sem hún vill og hefur farið í fjölda lýtaaðgerða til að breyta útliti sínu. Hún lætur reglulega bæta í varir sínar og fer í andlitslyftingar og einhver ætti að segja henni að skipta um lýtalækni. Kærasta Jodie Foster Samkvæmt Huffington Post er leik- konan Jodie Foster komin með kærustu en sú er Alexandra Hedi- son. Sást til þeirra um síðustu helgi að fá sér morgunmat saman í Beverly Hills en það var í fyrsta sinn sem þær sjást saman á almanna- færi. Fyrir stuttu sagði heimildar- maður E! Online að Foster segðist vera ástfangin sem styður sögu- sagnirnar um samband þeirra. Hedison sem er 50 ára ljósmyndari lék í þáttunum L Word og er fyrr- verandi kærasta Ellen DeGeneres. Aila Aila Wang er aðeins fjögurra ára en nú þegar fylgjast mjög margir með því hverju hún klæðist. Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is Alonso Alonso er fimm ára en á samt fjöldann allan af aðdáendum sem fylgjast með því hverju hann er klæddur. NÝTT FRÁ DICK CEPEK Trail Country er fínmynstrað alhliða jeppadekk sem er rásfast og þægilegt í akstri innanbæjar, en býr einnig yfir frábærum aksturseiginleikum utan vega. Trail Country er frábært alhliða heilsársdekk fyrir flestar gerðir jeppa og jepplinga. Fun Country var sérstaklega hannað með það í huga að ná fram einstökum askturseiginleikum utanvega, auk þess að vera bæði hljóðlátt og endingargott við akstur innanbæjar. Fun Country er ætlað nútíma jeppum sem vilja komast lengra! Dekkið er fáanlegt í stærðum frá 32“ til 37“. Trail Country Fun Country Mud Country NÝT T! NÝT T! Kletthálsi 3 110 Reykjavík Sími 540 4900 arctictrucks.is 2013-09 DC nýtt - Bændablaðið 99x150mm.indd 1 25.9.2013 15:33:28 Kanye og Kimmel sættast Söguleg sátt Tónlistarmaðurinn og þáttastjórnandinn grófu stríðsöxina á fimmtudaginn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.