Lögmannablaðið - 01.12.2006, Síða 11

Lögmannablaðið - 01.12.2006, Síða 11
LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2006 >  Lögmannfélag Íslands og Dómarafélag Íslands efndu til málþings á Þingvöllum föstu- daginn 13. október þar sem fjallað var um auðlindarétt og auðlindanýtingu. Málþingið bar upp á heppilegum tíma þar sem stjórnskipuð auðlindanefnd hafði nýlokið við að kynna nið- urstöður sínar. Inntak auðlindaréttar Kristín Haraldsdóttir, aðstoðarmaður dómara við EFTA dómstólinn, reið á vaðið með erindi þar sem hún fjallaði um inntak auðlindaréttur bæði í alþjóðlegu samhengi og innan íslenska fræðikerfis lögfræðinnar. Hún tak- markaði umfjöllun sína við náttúru- auðlindir og vísaði til hefðbundinnar skilgreiningar samkvæmt íslenskum rétti, þ.e. nýtanleg náttúrugæði sem lúta opinberum nýtingarreglum. Í máli Kristínar kom fram að auðlindaréttur snerti mörg réttarsvið, meðal annars eignarétt (s.s. eignaraðild, eignarform og eignaupptöku auðlinda), leit, rann- sóknir og nýtingu svo og eftirlit með nýtingu og viðurlög. Réttarsviðið væri náskylt umhverfisrétti enda þótt regl- urnar væru sértækari og nálgunin ólík. Eigandastefna einkenndi auðlindarétt á Íslandi en þróunin hin síðari ár hefði verið sú að hið opinbera hefur feng- ið aukið vægi við stjórnun nýtingar- innar. Þekktar og nýtanlegar auðlindir Karl Axelsson, hrl. og lektor við laga- deild Háskóla Íslands, fjallaði um þekktar og nýtanlegar auðlindir á íslensku forráðasvæði í erindi sínu, þar á meðal um skilgreiningar á jarðefn- um, jarðhita og grunnvatni í 2. mgr. auðlindalaga, nr. 57/1998, og nýtingu þeirra. Í máli hans kom fram að heim- ildin til hagnýtingar auðlinda skv. 3. gr. laganna fylgir hinum hefðbundna nýtingarétti eignaréttar og verði því ekki takmörkuð án bóta. Hann sagði að vatnaskil hefðu orðið með nýjum auðlindalögum varðandi áratuga óvissu um staðfræðileg takmörk eigna- réttarins en þar kemur fram að eigna- réttur eiganda nái til auðlinda undir og Málþing um auðlindarétt og auðlindanýtingu Þrátt fyrir mikið framboð funda var málþingið afar vel sótt. Á annað hundrað manns komu á Þingvelli og hlustuðu á fyrirlesara.

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.