Lögmannablaðið - 01.12.2006, Page 27
LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2006 > 27
Samskipti lögmanna
félaga og stærri lög
mannsstofa
Fyrsta mál á dagskrá fundarins snéri
að samskiptum lögmannafélaganna og
stærri lögmannsstofa. Fulltrúar tveggja
af stærri lögmannsstofum Noregs höfðu
framsögu um málefnið og fjölluðu um
hvernig hagsmunir stærri stofa færu
saman við hagsmuni lögmannafélag-
anna og hverjir væru helstu núnings-
fletir í samskiptum þeirra. Fram kom
að um 40% félagsmanna norska lög-
mannafélagsins koma frá stærstu stof-
unum þar í landi auk þess sem þessar
sömu stofur standa undir meirihluta
nýliðunar í lögmannastéttinni. Mat
framsögumanna var að í framtíð-
inni ætti þessi þróun eftir að eiga sér
stað í enn ríkari mæli en nú og þá á
kostnað smærri og meðalstórra stofa.
Stærri lögmannsstofurnar væru einnig
drifkraftur þróunar innan lögmanna-
stéttarinnar, m.a. vegna útrásar þeirra
og alþjóðlegrar þjónustu, tækiþróun-
ar og sérfræðiþekkingar. Til þess að
tryggja að þessar stóru stofur og lög-
mannafélögin væru samstíga í fram-
tíðinni, yrðu félögin að setja sig betur
inn í samkeppnisstöðu stóru stofanna
og þá í því samhengi að um væri að
ræða samkeppni í alþjóðlegu umhverfi
en ekki einungis á innanlandsmark-
aði eins og raunin væri með starfsemi
smærri lögmannsstofa. Skoða yrði það
regluverk sem snéri að lögmannastétt-
inni í alþjóðlegu samhengi og félögin
þyrftu að búa sig undir að vera mál-
svarar stofanna á þeim forsendum.
Þetta ætti m.a. við um aukna mögu-
leika á takmörkun ábyrgðar lögmanna
í ljósi viðameiri og áhættusamari hags-
munagæslu sem fylgdu stærri verkefn-
um. Lögmannafélögin yrðu einnig að
þróast í þá átt að stuðla að framþróun
réttarins og réttaröryggis gagnvart
stjórnvöldum í nafni fyrirtækja en ekki
bara einstaklinga eins og verið hefur.
Einnig að vera opinber málsvari stærri
stofa utanlands ekki síður en innan-
lands. Lögmannafélögin og stóru stof-
urnar yrðu að marka sér stefnu um það
hvernig hægt sé að mæta þeim ólíku
þörfum og kröfum sem fylgja rekstri
stærri stofa á alþjóðlegum samkeppn-
ismarkaði.
Aga og eftirlitshlutverk
lögmannafélaga
Annað viðfangsefni fundarins snéri að
aga- og eftirlitshlutverki lögmanna-
félaganna gagnvart lögmönnum.
Fundarmenn voru sammála um að
markmiðið væri að viðhalda kerfi sem
m.a. væri gagnsætt, hlutlaust og skil-
virkt. Nokkur áherslumunur var hins
vegar milli félaganna varðandi það
hvernig hægt væri að ná þessum mark-
miðum, t.d. hvað varðar gagnsæi, m.a.
út frá því hvort birta ætti nöfn hlut-
aðeigandi lögmanna í öllum tilvikum í
niðurstöðu úrskurðar- eða aganefnda,
aðeins í alvarlegustu málunum eða
hvort gilda ætti alger nafnleynd. Þessi
áherslumunur endurspeglast í mis-
munandi framkvæmd félaganna þar
sem allar framangreindar útfærslur á
birtingu úrskurða eru til staðar. Hins
vegar voru fulltrúar félaganna sam-
mála um að mikilvægt væri að tryggja
skilvirkni úrskurðar- og aganefnda og
tryggja hraða og markvissa málsmeð-
ferð.
Þjónusta lögmanna
félaga
Þriðja málefnið sem tekið var fyrir
á þessum fundi varðaði þjónustu
lögmannafélaganna við neytendur eða
væntanlega kaupendur lögmannsþjón-
ustu. Þar var m.a. rætt um möguleika
internetsins við upplýsingagjöf, lög-
fræðilega ráðgjöf og til að auka aðgengi
almennings að lögmönnum. Norrænu
lögmannafélögin hafa reyndar á
undanförnum árum unnið markvisst
að því að auka upplýsingar um lög-
fræði á netinu og tryggja betra aðgengi
almennings að lögmönnum. Norska
Forsætisfundur norrænu
lögmannafélaganna
Árlega hittast formenn, varaformenn og framkvæmdastjórar allra norrænu lögmanna-
félaganna á sérstökum fundi, svokölluðum forsætisfundi, til að ræða sameiginleg hagsmuna-
mál félaganna og það sem hæst ber í málefnum lögmanna hverju sinni. Fundur norrænu
lögmannafélaganna fór að þessu sinni fram í Osló í Noregi dagana 20. – 21. okóber sl.
Á dagskrá fundarins voru þrjú megin viðfangsefni auk þess sem lagðar voru fram og ræddar
upplýsingaskýrslur um helstu viðfangsefni sérhvers félags undanfarið ár.