Skírnir - 01.01.1956, Blaðsíða 33
Skírnir
Huglægni og hlutlægni
31
Eða kafli, sem byrjar á þessari setningu: „Hin heimsfræga
sól kvöldsins átti aðeins þumlung eftir óhniginn". (II, 94).
Prímusinn hennar Sölku Völku „var tekinn að suða með ná-
kvæmlega sama hljóði og miklað er í einkennilegum kvæð-
um um fossa eftir þjóðkunn skáld“. (11,206). Athugasemdir
af þessu tæi virðast sýna, að skáldið hafi ekki skilyrðislaust
gefið sig á vald skáldskapnum, að hann haldi sér í hæfilegri
fjarlægð.
Þau dæmi, sem nú hafa verið nefnd, eru gamansöm leiftur,
sem sýna, hve höfundurinn getur virzt óháður því, sem hann
skapar. En ef þessar samlíkingar bera vitni um kidda og háð
(ironi), þá finnast þess önnur dæmi, að tilfinningahiti og
ákafi (patos) séu tjáð á huglægan hátt. Venjulegast er ef til
vill, að háð hans og ákafi séu samtvinnuð á áhrifaríkan hátt.
Á góðgerðaskemmtun á Öseyri heldur m. a. læknirinn í
plássinu ræðu:
Það hafði rikt talsverð ókyrrð í salnum meðan læknir
inn var að tala um hina svokölluðu Röntgens-geisla, því
enginn hafði áhuga fyrir slíku hér í plássinu, enda höfðu
menn fljótlega komizt á snoðir um, að hver og einn gæti
dáið rólegur rir sinni veiki á Óseyri við Axlarfjörð, án þess
útlit væri fyrir, að hann yrði ónáðaður með þessum yndis-
legu geislum í náinni framtíð. (1,224).
Menn höfðu komizt á snoðir um, segir í sögunni. Það læt-
ur sennilega í eyrum, að áheyrendunum hafi virzt þetta ekki
koma sér við. En hina háðslegu beiskju í orðavalinu verð-
ur að færa á reikning sögumanns. Og undan þessu kaldrana-
lega orðalagi gægist fram samúð hans með þessu fólki. Önn-
ur bitur athugasemd er einnig gerð í sambandi við góðgerða-
samkomuna, sem haldin var til styrktar ckkjum og bömum,
sem misst höfðu feður sína í sjóinn: „Nú var orðið langt síð-
an verulega fjörug og margbreytileg skemmtun hafði verið
haldin hér í kaupstaðnum, enda var tiltölulega sjaldgæft á
Óseyri, að menn færust í sjónum“. (1,220). Þetta er gaman-
semi, en beisk gamansemi. Litli bróðir Sölku Völku er tekinn
að hressast af sjúkdómum vetrarins og þjáningum í vorsólinni: