Skírnir - 01.01.1956, Blaðsíða 183
Skimir
Bein Páls biskups Jónssonar
181
var meðallíkamshæð Islendinga um 172 cm.1) Það má því
með velvilja segja, að hann hafi verið meðalmaður að hæð,
því að liðlega V4 hluti karla á hans tímum hefur verið lægri
en hann. Páll er sagður lítt fættur, þ. e. smáfættur, og kemur
það vel heim við lengdarmálin á völu og hælbeini, þvi að
aðeins 6—10 af hundraði samtíðarmanna hans voru með
þessi mál skemmri en Páll. Hvað átt sé við með vel limaður,
1) Þess skal getið til að girða fyrir misskilning, að likamshæðina hef
ég nú áætlað á annan veg en áður, og er hún þvi ekki sambærileg við
þær tölur, er ég hef til þessa hirt um liæð Islendinga til forna. Við fyrri
útreikninga á líkamshæðinni notaði ég formúlur Persons, en þær byggj-
ast á mælingum á likum franskra manna, þannig að fyrst var mæld lengd
líksins og síðan, eftir líkskurð, lengd löngu leggbeinanna og þá fundið,
hve mikill hluti hún var af heildarlengd liksins. Hér eru tvö vafaatriði,
sem áætla þarf fyrir, þegar finna skal líkamshæð í lifanda lífi af stærð skin-
ins beins, 1 fyrsta lagi munurinn á lengd líks og lifandi manns og i öðru lagi
munurinn á lengd nýs og skinins beins. í þeirri formúlu, sem ég nú nota
og er eftir Trotter og Gleser, er sneitt hjá þessum vafaatriðmn, auk þess
sem hún byggist á margfalt fleiri mælingum. Efniviðurinn er Bandaríkja-
menn, aðallega hermenn, er létust i siðustu heimsstyrjöld á Kyrrahafs-
vigstöðvunum. Þeir voru jarðsettir á eða nálægt vígstöðvunum, en nokkru
eftir styrjaldarlokin voru bein þessara föllnu hermanna flutt heim til
Bandaríkjanna og jörðuð þar að nýju. En áður en það var gert, voru bein-
in mæld og lengd þeirra borin saman við líkamshæð mannsins, er þau
voru úr, en eins og kunnugt er, eru allir hermenn mældir, þegar þeir
eru teknir í herinn. Otreikningurinn á hæðinni gefur svokallaða mestu
hæð, þ. e. a. s. líkamshæðina á því aldursskeiði, þegar hún er mest, eða
frá 25—30 ára aldurs. Eftir þrítugsaldur lækka menn að meðaltali um
0.06 cm á ári, og sú tala er notuð til leiðréttingar á likamshæð manna,
sem eru eldri en þritugir. Eftir eldri útreikningunum var meðalhæð Is-
lendinga fyrir siðaskiptin þessi: meðalhæð karla 168,8 cm og meðalhæð
kvenna 154,8 cm, en samkvæmt nýju aðferðinni verða samsvarandi tölur
172,1 og 159,2 cm, þ. e. a. s. að með henni hækkar meðaltal karla um
3,3 cm og kvenna um 4,4 cm. Þetta er mikill munur, en ég tel þó líklegt,
að siðari tölurnar séu sanni nær. 1 fyrsta lagi gefa þær hlutfall milli lík-
amshæðar kvenna og karla, sem er nær alveg það sama og mælingar á
nútíma-lslendingum sýna. 1 öðru lagi eru útlimahlutföll Islendinga mun
líkari útlimahlutföllum Bandaríkjamanna en Frakka. — Þegar reikna á út
likamshæð einstakra manna, verður meðalskekkjan auðvitað talsvert mikil
eða um 3 cm, þ. e. a.s. ef mesta hæð Páls biskups er tekin sem dæmi, 169
cm., þá eru líkurnar %, að hæð hans hafi legið milli 166 cm og 172 cm.