Skírnir - 01.01.1956, Blaðsíða 208
206
Jón Þórarinsson og Árni Kristjánsson
Skímir
Ný för um
V estur-Evrópu.
sína með sér í þá för, sem nú var ákveðin.
En þungt mun gamla manninum hafa verið
um hjarta við brottför þeirra:
„ . . . Eftir að þið voruð á brott, átti ég erfitt með að
ganga upp stigann. Ég reyndi að harka af mér og gera ekki
skilnað okkar sárari en efni stóðu til, en gleymdi að biðja
syni mínum blessunar. Ég gekk að glugganum og sendi
hana í huganum á eftir ykkur, en sá ykkur aldrei aka
út um borgarhliðin, og hefi líklega orðið of seinn, því að
ég hafði setið á stól og verið alveg utan við mig. Nannerl
grét svo sáran, að ég átti örðugt með að hugga hana.
Hún kvartaði yfir verkjum í höfði og maga og háttaði að
lokum með Bimberl okkar, hundinn, í fanginu."1)
Þau mæðginin héldu fyrst til Munchen, og
en. þagan s]írjfar Wolfgang föður sínum:
„ . . . Seeau greifi2) gekk hjá, heilsaði mér kumpánalega
og sagði: „Komið þér sælir, kæri Mozart“. Þegar kjör-
furstinn kom að mér, sagði ég við hann: „Yðar tign,
leyfið mér að varpa mér fyrir fætur yðar og bjóða yður
þjónustu mína.“ „Jæja, svo þér eruð alfarnir frá Salz-
burg?“ „Já, yðar tign, alfarinn." „Hvemig var það, urðu
einhver orðaskipti með ykkur erkibiskupinum?“ „Engan
veginn, yðar tign; ég bað einungis um fararleyfi, en var
synjað; því átti ég einskis annars úrkosti en að fara, enda
hafði ég lengi haft það í huga; Salzburg er ekki réttur
staður fyrir mig.“ „Já, rétt er nú það. Drottinn minn
dýri, þér eruð ungur maður. En faðir yðar er enn í Salz-
hurg?“ „Já, yðar tign, hann varpar sér einnig fyrir fæt-
ur yðar. Ég hefi þrisvar verið á Italíu, hefi samið 3 óper-
ur, er félagi í Akademíunni í Bologna, varð að undir-
gangast próf, sem reyndist mörgum meisturum svo erfitt,
að þeir urðu að strita í sveita síns andlitis fjórar eða
fimm klukkustundir við það, sem ég vann á einni. Þetta
er til marks um, að ég er fær um að starfa við hvaða
hirð, sem er. Það er hins vegar einasta ósk mín, að ég
1) Salzburg 25. sept. 1777.
2) Yfirumsjónarmaður hirðsöngleikahússins í Miinchen.