Skírnir - 01.01.1956, Blaðsíða 95
Skírnir Um merkingu matsorða og hlutverk siðfræðinga 93
finningar, séu góð. Þetta veitir okkur þó ekki óyggjandi vissu
um, að orðið merki sérstakan eiginleika, sem sé ólíkur öllum
öðrum eiginleikum.
III. Hvernig vitum við, livað er gott?
Að dómi Moores eru gildisdómar þá annaðhvort sannir eða
ekki, sannir, ef það, sem dæmt er, hefur eiginleikann, sem
orðið „góður“ merkir, ósannir, ef svo er ekki. En með hvaða
skilviti skynjum við eiginleikann? Við sjáum liti með aug-
unum, en gott virðist ekki skynjað á sama hátt. Ef við vilj-
um ganga úr skugga um, að einhver hlutur sé raunverulega
rauður, kunnum við aðferðir til að skera úr um það. Mönnum
getur sýnzt ýmislegt rautt, sem er í raun og veru grænt, því
að til eru litblindir menn, og rauð, óvenjuleg birta gæti villt
okkur sýn. tlöfum við líka aðferðir til að skera úr um, hvort
hlutir séu raunverulega góðir, ef ágreiningur er milli manna?
Moore telur, að við sjáum, ef við erum nógu aðgætin, eig-
inleikann, sem átt er við með orðinu „góður“. Við virðumst
hafa einhvern hæfileika til að skynja þennan eiginleika. Ef
tveir menn deila um gildi einhvers, hlýtur annar hvor þeirra
að hafa rangt fyrir sér. Nú er aðeins tvennt mögulegt, ef
skoðun Moores er rétt: 1) Annan deiluaðilann skortir hæfi-
leikann til að sjá gildið, eða 2) annar hvor fer vísvitandi með
ósannindi. Hið síðara er áreiðanlega ekki alltaf sönn lýsing
á deilu um gildi. Við teljum menn oft heila í trú sinni, þótt
við séum þeim ósammála um gildi einhvers. Ef fyrri skoðunin
er rétt, er erfitt að skera úr því, hvor hafi rétt fyrir sér. Báðir
deiluaðilar eru jafnlíklegir til að þrjózkast við að viðurkenna,
að þeir séu blindir eða þjáist af skynvillu. Ég skal nú reyna
að gera nokkra grein fyrir því, hvers vegna erfitt er fyrir
Moore að gefa viðunandi lýsingu á því, hvers eðlis deilur
um gildi eru.
Réttlætanlegt er að telja Moore fylgjanda innsæisstefnunn-
ar (intuitionism), vegna þess að hann telur eftirfarandi stað-
hæfingar sannar: 1) Gildi er eiginleiki, sem tilheyrir sum-
um hlutum. 2) Við öðlumst þekkingu á þessum eiginleika
með beinni innsýn. Moore virðist telja, að þekking okkar á