Skírnir - 01.01.1956, Blaðsíða 165
Skírnir Islenzkur skólaskáldskapur 1846—1882 163
Kveðja til Matthíasar Jochumssonar, ort af hrifningu og
hlýju. Þýðingar Einars eru flestar (4) eftir Runeberg, 2 eftir
Heine og 1 eftir Wilhelm Hauff (1802—27).
1 upphafi 2. skólavetrar síns (26. nóv. 1876) las Einar „frá-
sögu“ eftir sig á Bandamannafélagsfundi. Sagan heitir Sig-
urður og Anna,1) en þau eru bóndasonur og prestsdóttir, sem
fella hugi saman. Feðrum þeirra er það á móti skapi vegna
óvináttu, sem með þeim hefur verið. Prestur samþykkir, að
þau eigist, er Sigurður bjargar honum frá drukknun, en á
brúðkaupsdaginn andast Anna af atburði. — Sagan er lipur-
lega og óvenju-fullorðinslega ritað af tæplega 17 ára unglingi.
Piltur og stúlka hefur verið helzta fyrirmynd Einars um gerð
sögunnar. Eitt efnisatriðið, björgun úr á, gæti verið að láni
úr sögunni Úr hversdagslífinu eftir séra Jón Þorleifsson.
Næstu sögu sína las Einar upp á Ingólfsfundi 10. nóv. 1878,
og heitir hún Þór'Sur.2) Þórður þessi er eyfirzkur stúdent,
sem er heitbundinn þingeyskri stúlku, en vegna ístöðuleysis
lendir hann í ástarævintýri í Reykjavík með trúlofaðri stúlku.
Unnusta hans fréttir þetta og slítur trúlofun þeirra, en hana
iðraði mjög skjótræðis síns, er Þórður lét lífið skömmu síðar
við að bjarga manni frá drukknun úr á. Páll og Þorsteinn3 4)
er miklu ómerkilegri en hinar fyrri sögurnar. Er það frásögn
af áflogum tveggja skólapilta um stúlku, sem þeim lízt vel á,
og vonbrigðum þeirra að síðustu, er hún trúlofast. Fjandinn
í vömbinnP) er ómerkileg gamanfrásögn um sýn drykkfellds
guðfræðings. Þótti honum sem kölski sjálfur stigi út úr vömb
sér til þess að mótmæla því, að hann sækti um prófessors-
embætti, sem honum lék hugur á. Varð það úr, að hann fór
að orðum djöfsa. Enn samdi Einar 2 sögur, sem báðar voru
prentaðar á skólaárum hans. Vorið 1880 var sagan Hvorn
eiðinn á ég a5 rjúfa?5) prentuð á Eskifirði á vegum Jóns Öl-
afssonar. IJér gætir í fyrsta skipti áhrifa raunsæisstefnunnar
1) Rit Bandamf. II (1876—77), Lbs. 3326, 4to, 121,—75. bls.
2) Aðalbók fél. Ingólfs I (1878—79), Lbs. 3335, 4to, 114.—140. dálkur.
3) Sama I, 442.—61. dálkur. Lesin á fundi 20. apríl 1879.
4) Sama II (1879—80), Lbs. 3336, 4to, 234.—39. dálkur.
5) Sama II, 276.—357. dálkur. Lesin á fundi 14. febrúar 1880.