Skírnir - 01.01.1956, Blaðsíða 101
Skírnir
Um merkingu matsorða og hlutverk siðfræðinga
99
að segja, að merking þeirra felist í þessu einu. Athugun á
notkun orðsins „góður“ leiðir þetta í ljós.
VII. Um mælikvarSa gildis og merkingu orSsins „góSur“.
Ef við segjum við mann, sem ekkert veit um sláttumennsku,
að Bjöm sé góður sláttumaður, gæti hann spurt: „Hvað átt
þú við?“ Við gætum þá svarað með því að benda á, að Bjöm
slái stærri reit en aðrir geta slegið á jafnlöngum tíma, skilji
ekki eftir toppa, ljárinn bíti betur hjá honum en almennt ger-
ist. Nú er freistandi að halda því fram, að „góður“ merki í
þessu sambandi „hefur alla eiginleikana, sem eru mælikvarði
þess, að einhver geti talizt góður sláttumaður11. Ef svo væri,
mundi merking orðsins breytast algjörlega eftir umræðuefn-
inu. Gott epli hefur eiginleika ólíka þeim, sem gera sláttu-
manninn góðan, og góður ökuþór hefur enn aðra eiginleika.
Að vissu leyti er réttlætanlegt að segja, að orðið „góður“
breyti þannig um merkingu, en auðvelt er að sjá, að merking
orðsins og mælikvarði gildis eru ekki eitt og hið sama. Við
notum orðið „góður“ til þess að mæla með eða hæla hlutum,
en það gætum við ekki gert, ef orðið merkti einungis „hefur
eiginleikana x, y, og z“. Það er einmitt þessi merking mats-
orða, sem gerir okkur mögulegt að nota þau til uppeldis og
kennslu, en er við hættum að nota þau til að hvetja og letja,
hætta þau í raun og veru að vera gildishugtök, matsorð. Lýs-
ingarmátt hafa þessi orð vegna þess, að menn eru yfirleitt
sammála um, hvernig meta skuli hlutina. Ef við vitum um
hníf, að hann sé góður, getum við dregið af því þá ályktun,
að hann bíti vel, því að menn kalla hnífa yfirleitt ekki góða,
nema þeir biti vel eða séu úr góðu bitjámi. Þessi ályktun
getur þó verið röng, því að í sumum aðstæðum viljum við
heldur bitlausan en beittan hnif. Ef ég er að kenna manni
að hrýna, gæti ég valið úr mörgum hnífum þann bitlausasta
og sagt: „Þessi er góður“. Við sjáum þó, að þessi setning er
einnig hér notuð til þess að leiðbeina um val, því að nem-
andinn veit nú, að rétt er að velja bitlitla hnífa, ef hann vill
æfa sig að brýna .