Skírnir - 01.01.1956, Blaðsíða 67
Skirnir
Hugleiðingar um merkingar orða
65
Þorvaldur Árnason og Jón Bergsteinsson — annar aðallega
sem talnndi, liinn einkum sem heyrandi. Þorvaldur notar í
samtalinu algengt orð, þ. e. hljóS, sem hann ætlast til, að
Jón skilji á ákveðinn hátt, þ. e. tengi við ákveðna merkingu,
sem vísi til tiltekins hlutar eða rnerkingarmiSs. Jón tengir
orðið að vísu tiltekinni merkingu, en hyggur, að það vísi til
annars hlutar eða merkingarmiðs en Þorvaldur ætlast til. Sam-
talið fer fram við tilteknar aSstæSur, sem ætla mætti að stuðl-
uðu að réttum skilningi. Svipað þessu gerist á hverjum degi.
Sagan er ósköp hversdagsleg. Það voru afleiðingar hennar,
sem gerðu það að verkum, að hún komst á prent og varð-
veittist frá gleymsku.
Við skulum nú reyna að gera okkur grein fyrir venjulegri
talstarfsemi með hliðsjón af þessari tvítugu sögu úr Morg-
unblaðinu. Helztu atriðin, sem leiða þarf hugann að, eru
þessi: talandi, heyrandi, orS, merking, merkingarmiS og aS-
stœSur. öll þessi atriði koma við sögu þá, sem rakin var.
II
Ég vík fyrst að persónum sögunnar, talanda og heyranda.
Sameiginlega mætti nefna þessa aðilja málnotendur eða not-
endur máls. Sú ásökun hefir oft verið borin þeim á hrýn, sem
skrifað hafa um mál eða almenn málvísindi, að þeir hafi að-
eins miðað við talanda, en ekki heyranda í skilgreiningum
sínum og kenningum. Allt um það liggur í augum uppi, að
talstarfsemin er fólgin í samleik að minnsta kosti tveggja að-
ilja — þess, sem gefur frá sér tiltekin málhljóð — ef miðað
er við talmál — og þess, sem skynjar og túlkar eða reynir
að túlka þessi hljóð. Það er einnig greinilegt, að sama persón-
an hlýtur á víxl að leika hlutverk talanda eða heyranda.
Málið er félagslegt fyrirbæri. Það er tæki eða öllu heldur
táknakerfi, sem gerir mönnum kleift að stofna til andlegs
sambands sín í milli. Talstarfseminni svipar til útvarpsins
að því leyti, að hvort tveggja er nauðsynlegt: senditæki og
viðtæki. Talandinn er senditækið, heyrandinn er viðtækið.
Eins og fram var tekið, er málið tákna- eða merkjakerfi. Er
því rétt að gera sér nokkra grein fyrir því, hvað átt er við
5