Skagfirðingabók - 01.01.1970, Page 109
SALA HÓLASTÓLSJARBA
okt. 1816.-1 Flugumýri varð ekki heldur sýslumannssetur eins og
Stephensen hafði lagt til. Ari fjórðungslæknir Arason hafði sótt um
leyfi til kaups á jörðinni með bréfi frá 15. sept. 180322 og fengið.
Varð Viðvík svo gerð að sýslumannssetri með konungsbréfi 8. maí
1805.23
Ekki hefur mér tekizt að afla nákvæmra upplýsinga um það, hven-
ær uppboðin fóru fram í öllum þingsóknum. Þó má gera sér mjög
sennilega grein fyrir, hvernig því var hagað. Þeir hafa byrjað í Rípur-
hreppi, en farið svo norður í Fljót og haldið þaðan inn með firði að
austan — þó með þeirri undantekningu, að uppboðið í Viðvík hefur
farið fram á undan því á Hofi, sbr. það, sem tekið er úr Sögu frá Skag-
firðingum hér að framan —, endað á Akrahreppi að austan og haldið
þaðan vestur í Lýtingsstaðahrepp og endað á Skefilsstaðahreppi. Það er
þrennt, sem styður þetta. í fyrsta lagi jarðabók sú, sem þeir gerðu. Sí-
vertsen ritar formála að henni, dags. í Reykjavík 10. júlí 1802. Af
honum er Ijóst, að þeir hafa gert jarðabókina um leið og þeir buðu
jarðirnar upp, en ekki að hún hafi verið gerð í annarri ferð fyrr á ár-
inu. Niðurröðunin í jarðabókinni er sú, sem lýst er hér á undan, nema
hvað Hofshreppur er á undan Hólahreppi. í öðru lagi er um að ræða
bréf, sem prestar rituðu þeim jarðamatsnefndarmönnum varðandi eign-
ir kirkna í þeirra umsjá og ýmis önnur mál, s. s. kvartanir o. fl.24
Þriðja atriðið þessu til stuðnings er, að aftast í bréfabók Stephensens og
Sívertsens er skrá yfir bréf, a. m. k. flest, sem þeim bárust í hendur, á
meðan á þessu ferðalagi stóð, og eru móttökudagar bréfanna skráðir.
Kemur þar í ljós, að þá ber stundum upp á sömu daga og bréfin eru
rituð, svo jafnvel má láta sér detta í hug, að þar sé um að ræða upp-
boðsdagana. Einkum er freistandi að álykta svo varðandi Fljót, Fells-
hrepp og Skefilsstaðahrepp. Ég mun nú hér á eftir rekja bréfaslóðina
nokkuð.
Ég minntist áður á, að formáli jarðabókarinnar hafi verið dagsettur
í Reykjavík 10. júlí. Eftir það halda þeir félagar norður í land, og 21.
júlí rita þeir á Víðivöllum bréf til hreppstjóra um þingboðslýsingu.25
Þremur dögum síðar halda þeir fyrsta uppboðið á Ríp. Það sést af
107