Skagfirðingabók - 01.01.1970, Page 143
SALA HÓLASTÓLSJARÐA
skrifar í Heimdall 1884 um Pétur Havsteen amtmann, segir, að fað-
ir hans, Jakob Havsteen, faktor í Hofsósi, hafi keypt Höfða .. þegar
Hólajarðir voru seldar 1803 .. ."18 Þótt Gísli fari þarna áravillt um
söluna, má vel vera, að faktorinn hafi keypt Höfða, enda er í höfuð-
bókunum eftir 1806 aðeins talað um Bæ.
2. Vatn
Dýrl. 20 hundr., lsk. 1 hundr., kúg. 1., sem sr. Árni Snorrason í Felli
keypti á 11 rd. 16 sk., en jörðina keypti Guðmundur Jónsson, bóndi á
Lambanesi í Fljótum 1787—1799, á 184 rd. Var hann hjá Guð-
mundi syni sínum, er bjó á Lambanesi 1797—1805. Fullnaðargreiðsla
1805, 184 rd.
3. Ljótsstaðir
Dýrl. 30 hundr., lsk. 1 hundr. 60 áln., kúg. 1, og það keypti Jón
Jónsson á Víðivöllum, síðar prestur á Miklabæ, á 13 rd. 40 sk. Jörð-
ina keypti Arngrimur Eyjólfsson, bóndi þar, (líklega d. 1813, 85 ára), á
150 rd. Fyrsta greiðsla 1807, 33 rd. 48 sk., lokagreiðsla 1810, 93 rd. 40
sk.
4. Á
Dýrl. 30 hundr., lsk. 1 hundr., kúg. 2, sem Jón á Víðivöllum keypti
á 29 rd., en jörðina keypti á 161 rd. Sigurður Jónsson, bóndi á Hofi
1804—1805, en síðan á Á til 1823. Fyrsta greiðsla 1805, 54 rd., loka-
greiðsla 1817, 187 rd. 48 sk. nafnverðs.
5. Grundarland
Dýrl. 10 hundr., lsk. 40 áln., kúg. 1, og það keypti Sigurður Brands-
son, bóndi á Grundarlandi 1796—1805, á 6 rd. 16 sk., en jörðina á
52 rd. Hann seldi hana því næst Gísla Gíslasyni, líklega bónda á
Húsabakka í Seyluhreppi, sem greiddi kaupverðið 1805, 52 rd. Fyrir
141