Iðjuþjálfinn - 01.06.1998, Side 20
Óhætt er að segja að vinnuvistfræðin hafi
sem vísindagrein verið í stöðugri þróun og nái
í dag til fjölmargra sviða. Þar með eru talin
hugfræði (cognitive science), gagnkvæm áhrif
manns og tölvu og gerð notendavænna tölvu-
forrita, hönnun vinnuskipulags og stjórnun.
Stofnun vinnuvistfræðifélags
Vorið 1996 hélt Faghópur sjúkrnþjálfara um
vinnuvernd námskeið, fyrir sjúkraþjálfara og
iðjuþjálfa er fjallaði um úttekt og mat á vinnu-
stað með tilliti til álags á hreyfi- og stoðkerfi. Á
námskeiðinu lögðu sjúkraþjálfarar til að haf-
inn yrði undirbúningur íslenskra samtaka um
vinnuvistfræði. Hugmyndin hlaut góðar und-
irtektir og voru tveir sjúkraþjálfarar og tveir
iðjuþjálfar skipaðir í nefnd til að undirbúa
stofnun þverfaglegra samtaka. Fyrsta við-
fangsefni nefndarinnar var að skilgreina hug-
takið vinnuvistfræði á íslensku. Var í þeirri
vinnu stuðst við skilgreiningar norrænu og
sænsku samtakanna. Haft var samband við
ýmsa faghópa sem nefndin taldi að gætu átt
erindi í þverfagleg samtök af þessum toga.
Tengiliðir faghópanna unnu með nefndinni að
frekari undirbúningi.
Félagið var stofnað þann 8. apríl 1997 og
hlaut nafnið Vinnuvistfræðifélag Islands,
skammstafað VINNÍS. Stofnendur voru 48
einstaklingar úr röðum heilbrigðis-, félagsvís-
inda- og tæknistétta auk sex fyrirtækja og fé-
laga. Á stofnfundi voru lög félagsins sam-
þykkt og fyrsta stjórn þess kosin. Núverandi
stjórn skipa, auk undirritaðrar þau Björk Páls-
dóttir iðjuþjálfi, Bjarni Ingvarsson sálfræðing-
ur, Heiða Elín Jóhannsdóttir innanhússarki-
tekt og Herdís Rafnsdóttir verkfræðingur.
VINNIS er mörkuð braut í lögum þess. Þar
segir:
Félagið fjallar um vinnuvistfræði. Viðfangsefrii
vinnuvistfræðinnar er samspil mannsins og þess
umhverfis sem hann lifir og starfar í. Umhverfi tekur
til aðstöðu, búnaðar, tækja, skipulags, samskipta og
fleiri þátta.
í fyrirrúmi eru þarfir, vellíðan og öryggi fólks.
Starfsemi
Félagið er áhugamannafélag og öllum opið
sem áhuga hafa á vinnuvistfræði. Því hefur
vaxið fiskur um hrygg og nú rúmu ári eftir
stofnun eru félagsmenn 68 talsins. Meðlimir
eru úr 11 faggreinum en einnig eiga nokkur
fagfélög, stofnanir og fyrirtæki aðild. Fyrir-
tækin eru fyrst og fremst styrktaraðilar, en
hafa jafnframt aðgang að öllum fundum og
fræðslu á vegum félagsins. Markmið félagsins
eru:
• að efla og kynna vinnuvistfræði á Islandi
• að stuðla að því að vinnuvistfræðileg þekk-
ing sé nýtt við nýhönnun og endurhönnun
húsnæðis og aðstöðu, við skipulag vinnu og
vinnuferla, við hönnun búnaðar, tækja og
ýmissa framleiðsluvara
Starf VINNÍS hefur á þessu fyrsta starfsári
verið afar blómlegt. Stjórn ákvað að á fyrsta
árinu yrði lögð áhersla á að byggja upp innra
starf félagsins, skapa tengsl milli félagsmanna
og koma af stað áhugahópum um ýmis mál-
efni vinnuvistfræðinnar. Síðastliðið sumar
gerði stjórnin könnun meðal félagsmanna um
áhugasvið þeirra. í haustbyrjun voru síðan
stofnaðir þverfaglegir áhugahópar um þau
málefni sem félagsmenn sjálfir kusu að taka til
umfjöllunar. Eftirfarandi hópar eru nú starf-
andi:
• Leshringur um vinnuvistfræði
• Kynningarhópur VINNÍS
• Áhættumat
• Inniloft
• Skólaumhverfi og skólahúsgögn
Á félagsfundi nú nýverið skýrðu hóparnir
frá starfi sínu og er greinilegt að hin þverfag-
lega nálgun viðfangsefnanna skapar nýjar
víddir og umræðu meðal þátttakenda sem
koma úr ólíkum faggreinum. Skömmu fyrir jól
kom fyrsta út Fréttablað VINNÍS. Ætlunin er að
það komi út þrisvar á ári. Fréttablaðið mun
flytja fréttir af starfsemi félagsins, birtar verða
stuttar greinar um áhugaverð málefni og bent
á tímarit, greinar og bækur. Einnig verður sagt
frá ráðstefnum og námskeiðum. Síðast en ekki
síst er fréttablaðið hugsað sem ritvöllur félags-
manna.
Framtíð
Stjórn VINNIS hefur skynjað lifandi áhuga fé-
lagsmanna á þessu fyrsta starfsári og er það
gleðiefni. Markmið félagsins eru skýr „Að gera
vinnuvistfræði að lifandi þekkingu í íslensku þjóð-
félagi sem höfð verður að leiðarljósi alls staðar þar
sem verið er að skapa manninum umhverfi, bæði á
vinnustað og heimili".
Leiðir til að vinna að settu marki geta verið