Iðjuþjálfinn - 01.06.1998, Side 26
AMPS
Matstæki í iðjuþjálfun
The Assessment of Motor and Process
Skills (AMPS) er staðlað matstæki fyrir
iðjuþjálfa. Það er ætlað til að meta færni
skjólstæðinga við eigin umsjá og heimilishald.
Matið tekur til 16 þátta er falla undir hreyfi-
færni (motor skills) og 20 þátta er falla undir
færni til úrlausnar (prosess skills). Prófið er
hentugt til að meta færniþætti hjá einstakling-
um frá 5 ára aldri, án tillits til sjúkdóms, fötl-
unar eða ástæðu röskunar á færni. Ekki er þó
ætlast til þess að AMPS sé notað með skjól-
stæðingum sem eru rúmliggjandi.
Við matið eru notuð algeng verk er tilheyra
daglegu lífi. Fylgst er með skjólstæðingi með-
an hann framkvæmir fyrirfram ákveðið verk
sem hann hefur sjálfur valið. Metnir eru færni-
þættir sem meðal annars varða líkamsstöðu,
hreyfingu, orku, skipulagningu og aðlögun að
umhverfi. Við notkun matisins kemur í ljós
hvaða færniþættir hafa áhrif á framkvæmd
verksins ef um röskun á færni er að ræða.
Þannig er hægt að fá upplýsingar um hvers
vegna skjólstæðingurinn á í erfiðleikum með
að inna verkið af hendi og einnig er hægt að
sjá fyrir hversu krefjandi verkefni hann ræður
við. Matið nýtist því vel við skipulagningu
íhlutunar og til að greina þörf skjólstæðings
fyrir aðstoð.
AMPS er matstæki sem í dag er notað af
iðjuþjálfum víða um heim. Hægt er að velja á
milli rúmlega 50 verka sem eru misjafnlega
krefjandi. Þetta eru verk eins og að smyrja
brauð, útbúa salat, búa um rúm og brjóta
saman þvott, svo dæmi séu nefnd. Matið hef-
ur sérstöðu að því leyti að skjólstæðingur
ákveður hvaða verk eru honum mikilvæg og
hann vill vinna. Það byggir á þeirri hug-
myndafræði að besta færnin næst við þau
verk sem einstaklingur hefur áhuga á og velur
sjálfur. Ekki þarf sérstakan útbúnað til að nota
AMPS og því auðvelt að framkvæma það
hvort sem á heimili skjólstæðings eða á iðju-
þjálfunardeild. Matstíminn er á bilinu 30-60
mínútur. Gefin eru stig fyrir alla færniþætti er
falla undir hreyfifærni og færni til úrlausnar
samkvæmt ákveðnu kerfi. Stigagjöfin er síðan
færð inn í staðlað tölvukerfi þar sem hægt er
að skoða frammistöðu skjólstæðings hvað
varðar þá færniþætti er prófaðir voru. Hver
iðjuþjálfi hefur „sitt eigið" tölvuskráningar-
kerfi þar sem fyrirgjöfin hefur verið metin og
aðlöguð að þeim sem gerir matið.
Fyrir þá sem fýsir í meiri upplýsingar um
sjálft matið bendi ég á bók G. Kielhofners: „A
Model of Human Occupation", kafla 12, bls.
234-237.
Inga Jónsdóttir, iöjuþjálfi.
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
—hitabakstrar
-Eru með fyllingu úr sérstaklega meðhöndluðum jarðleir.
- Framleiddir í þremur stærðum.
- Eru auðveldir að hita í vatni.
- Halda hitanum betur en áður hefur þekkst.
- Eru mjúkir og leggjast vel að líkamanum.
- Eru með yfirborð úr plasti og bleyta þvi ekki út frá sér.
Framleiddir úr Dalaleir af MEGIN ehf
sími 434 1312, Búðardal
Thermo
pac
26 IÐJUÞJÁLFINN 1/98