Jón á Bægisá - 01.12.2010, Page 35

Jón á Bægisá - 01.12.2010, Page 35
Inngangur að málfrœði kastilískrar tungu landar mínir eyða nú tíma sínum í, þá ákvað ég umfram allt að draga úr ósamræmi okkar kastilísku tungu, til þess að það sem nú er og mun verða ritað á henni geti verið samhljóma og varað um ókomna tíð eins og við sjáum að grísk og latnesk tunga hafa náð að verða, því þar sem þær eru tungumál listanna eru þær enn í samræmi og hafa staðist tímans tönn. Ef við gerum ekki það sama fyrir okkar tungu og gert hefur verið fyrir hinar hafa annálaritarar ykkar og sagnfræðingar ritað að ósekju og eigi falið ódauðleikanum minningar um ykkar lofsverðu gjörðir og því freistum við þess að tjá á kastilísku allt hið framandi og ókunnuga, sem annars myndi einungis varðveitast í fáein ár. Þá væri aðeins um tvo möguleika að ræða: að minningar um hetjudáðir ykkar hverfi með tungumálinu eða að þær flakki um fjarlæg lönd þar sem þær hafa ekki sitt eigið hús til að búa í, en að slíku húsi myndi ég vilja leggja fyrsta hornsteininn og gera fyrir tungu okkar það sem Zenodótos gerði fyrir þá grísku og Krates fyrir þá latnesku. Þrátt fyrir að þeir yrðu síðar í skugga þeirra sem á eftir rituðu, þá nutu þeir sinnar frægðar og hún mun verða okkar sem erum upphafsmenn þessa fyrsta verks. Það skrifuðum við á heppilegasta tímanum sem ekki hefur komið fyrr en nú, þegar tungumál okkar er á hátindi sínum og við getum nú aðeins óttast hnignun þess í stað áframhaldandi vaxtar. Snúum okkur nú að því sem ekki er síður mikilvægt fyrir menn þá er tala vort tungumál og vilja læra latneska málfræði. Eftir að þeir hefðu lært listir kastilískrar tungu, sem myndi eigi reynast þeim erfitt því hún hvílir á þeirri tungu er þeir þekkja þegar vel; þegar þeir þýddu yfir á latínu yrði þeim ekkert það erfitt að það gæti ekki orðið þeim auðveldara umfram allt með aðkomu þessarar Arte de la Gramática sem yðar háttborna drottning fól mér að semja, með því að bera saman línu fyrir línu hið rómanska mál og lau'nuna. Með því að kenna á þann hátt væri ekki lengur fátítt að kunna latneska málfræði þar sem ekki tæki nema nokkra daga í stað mánaða að nema hana, og miklu betur en hún hefur numist á mörgum árum fram að þessu. Þriðji ávinningurinn af þessari vinnu minni gæti verið sá er hlaust er ég var í Salamanca að sýna yðar hátign þetta verk og þér spurðuð mig hvaða gagn mætti hljóta af því og hinn virðingarverði biskup af Avila varð fyrri til svars og svaraði svo fyrir mig að eftir að yðar hátign beygði undir lög sín margar þjóðir villimanna og þjóðir framandi tungna sem með ósigri sínum þyrftu að læra þau lög er sigurvegarinn beygir þann sigraða undir, og með þeim tungumál okkar, þá gætu þær lært það á þann hátt sem við höfum nú yfir að ráða er við lærum latneska málfræði til að læra latínuna. Það er með réttu að ekki einungis óvinum trúar okkar ber nauðsyn til að kunna kastilíska tungu heldur einnig Böskum, Navarróum, Frökkum, Itölum og öllum þeim sem hafa eitthvert samneyti eða viðskipti við Spán. Þannig geta þeir, sem af nauðsyn læra tungumál okkar en koma ekki sem börn að á fÐayáiá— Ég kann að þýða; það kunnið þið ekki. 33
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.