Jón á Bægisá - 01.12.2010, Side 104

Jón á Bægisá - 01.12.2010, Side 104
Marteinn Lúther —Anna Sigurbjörg Sigurðardóttir ekki eingöngu að fylgja og treysta á eðli tungumálanna þegar ég bætti „solum“ (einni saman) inn í Rómverjabréfið 3:28, heldur heimti ég og knúði þar með af alefli fram meiningu heilags Páls í textanum; því hann er þarna að fjalla um sjálfan kjarna kristinnar kenningar, nefnilega að við öðlumst réttlætingu í gegnum trúna á Krist óháð öllum lögmálsverkum; og hann sker öll verk svo hreinlega í brott að hann segir líka: lögmálsins (sem er auðvitað lögmál og orð Guðs) verk hjálpa okkur ekki til réttlæt- ingar; og nefnir sem dæmi Abraham, að hann hafi verið réttlættur svo al- gjörlega án verka, að ekki einu sinni hið æðsta verk sem nýlega hafði verið boðað af Guði að væri framar og ofar öllum öðrum lögmálum og verkum, nefnilega umskurðurinn, hafi hjálpað honum til réttlætingar, heldur væri hann án umskurðar og án allra verka réttlættur orðinn vegna trúarinnar, eins og hann segir í fjórða kafla:1 „Væri Abraham réttlættur vegna verka sinna gæti hann hrósað sér, en ekki fyrir Guði.“ Þegar maður sker öll verk svona algjörlega í brott — þá hlýtur tilgangurinn með því að vera að sýna fram á að trúin ein saman veiti réttlætingu, og sá sem vill ræða skýrt og beinskeytt um slíkan afskurð verkanna, hann verður að komast svo að orði: Trúin ein saman og ekki verkin réttlæta okkur. Innihaldið sjálft, auk eðlis tungumálsins, heimtar það. Já, ég veit þú segir: Þetta er gremjulegtxl' og fólk mun leggja þann skilning í þetta að því sé engin nauðsyn að framkvæma góð verk. Minn kæri, hvað skal segja? Er ekki miklu gremjulegra að heilagur Páll skuli ekki orða þetta svo: „af trúnni einni saman“, heldur úthella þessu mun ruddalegar, slá botninn úr tunnunni og segja: „án lögmálsverka”, og í öðr- um kafla Galatabréfsins:2 „ekki af lögmálsverkum“ og fleira í þessa veru annars staðar; því orðin „af trúnni einni saman' væri hægt að skýra, en orðin „án lögmálsverka“ eru svo ruddaleg, gremjuleg, hneykslanleg að engar skýringar koma þar til hjálpar. Hversu frekar gæti fólk lært af því að gera engin góð verk þá það heyrði predikað um verkin sjálf með svo einföldum, sterkum orðum: „ekkert verk, án verka, ekki vegna verkanna." Teljist það ekki gremjulegt að maður prediki „án verka, ekkert verk, ekki vegna verkanna", því ætti það þá vera gremjulegt að maður prediki „af trúnni einni saman“? Og það sem er ennþá gremjulegra: heilagur Páll útrýmir ekki einföldum, venjulegum verkum, heldur verkum lögmálsins sjálfs. Það gæti líklega einhver 1 Þýð.: Rómverjabréfið 4:2 — ÍB’07, NT bls. 191. „Ef hann varð réttlættur vegna verka sinna nrætti hann hrósa sér. Þó ekki fyrir Guði.“ 2 Þýð.: Bréf Páls til Galatamanna 2:16 — ÍB’o7, NT bls. 236: „En við vitum að maðurinn réttlætist ekki af lögmálsverkum heldur fyrir trú á Jesú Krist. Og við tókum trú á Krist Jesú til þess að við réttlættumst af trú á Krist en ekki af Iögmálsverkum. Enda réttlætist enginn lifandi maður af lögmálsverkum." 102 á Jföeecttóá' - Tímarit um þýðingar nr. 14 / 2010
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.