Þjóðmál - 01.06.2009, Blaðsíða 37
Þjóðmál SUmAR 2009 35
ur á hvert þorsk ígildiskíló . árleg endur nýj-
unar fjár fest ing er að meðaltali 13 krónur
á þorsk ígildi en fer lækkandi á tímabilinu
úr 16 krónum og endar í 10 krónum . Það
sem eftir stendur á að duga til að standa
skil á lánum, greiða arð eða ráðast í nýfjár-
festingar eða að meðaltali 16 krónur á
hvert þorskígildi . Það er nú allt og sumt .
Hverjum manni ætti að vera ljóst, út frá
tölu um raunverulega stöðu fyrirtækjanna,
að afgangurinn er ekki mikill og í engu
samræmi við þá umræðu sem á sér stað í
þjóðfélaginu .
Víkjum þá að fyrningarleiðinni og út-
reikningum mínum á áhrifum hennar (sjá
töflu 3 efst á þessari síðu) . Ég gef mér að
5% framlegðarinnar hverfi á hverju ári, fyrst
5%, svo 10%, þá 15% og svo koll af kolli .
Kostnaður útgerðar af fyrstu 5% er þannig
reiknaður 2 krónur á þorskígildiskíló, 5
krónur á hvert þorskígildiskíló árið 2002 og
aftur 5 krónur á hvert þorskígildiskíló árið
2003 og þannig koll af kolli og endar í 14
krónum á hvert þorskígildiskíló þegar 5%
fyrning hefur staðið yfir í 7 ár og alls hafa
verið fyrnd 35% allra heimilda úrgerðanna .
ár leg fyrning fylgir því afkomu hvers árs
þótt það sé ekki sérstaklega líkleg niður staða
þar sem væntanlega á að leigja heimild irnar
út til nokkurra ára . En þegar til lengri tíma
litið myndi það auðvitað gerast . Af yfirlit-
inu er þá augljóst að ekki eru margar krónur
eftir til að mæta afborgunum lána . Það ætti
því að vera hverjum manni augljóst að út-
gerð in lendir fljótlega í greiðsluþroti að
gefinni þessari forsendu .
Ef við lítum svo í framhaldinu á fisk-
vinnsluna skilar hún ekki mörgum krón-
um upp í kostnaðinn sem lendir á út-
gerð inni vegna fyrningarinnar . Að meðal-
tali skilar vinnslan 7 krónum á hvert
þorskígildi til afborgana lána, greiðslu
arðs eða ný fjár festinga . Þar er því ekki
feitan gölt að flá .
_________________
_________________
tAFlA 3
Kennitölur fiskvinnslu
á þorskígildi 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 Meðaltal
Veltufé frá fiskvinnslu
á þorskígildi 45 23 13 16 14 23 9 20
Fjárfesting fikvinnslu
afskriftir - fjárfesting 16 17 12 12 12 9 10 13
Greiðslugeta fiskvinnslu
á hvert þorskígildi 29 7 1 4 2 12 0
tAFlA 4
Kennitölur greinarinnar
á þorskígildi 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 Meðaltal
Nettóskuldir á þorskígildi 290 265 214 253 313 370 370 296
Frjálst fjárflæði án skatt-
lagningar (fyrningar) 42 33 13 9 13 36 23 24
Ár sem tekur að greiða upp
nettóskuldir 7 8 16 27 24 10 16 15