Þjóðmál - 01.06.2009, Blaðsíða 66
64 Þjóðmál SUmAR 2009
Við komum hér saman í dag til að minnast þess, að 60 ár eru liðin frá því
að Atlantshafsbandalagið var stofnað . Þess-
ara merku tímamóta er minnst á verðugan
hátt víða um lönd, enda fullt tilefni til
miðað við árangursríkt starf bandalagsins .
Ég vil þakka Samtökum um vestræna
sam vinnu og Varðbergi fyrir að standa að
því að efna til þessarar athafnar . Félögin
hafa sameinað innan vébanda sinna áhuga-
menn og stjórnmálamenn, sem hafa í
áranna rás og allt frá því að Ísland gerðist
stofnaðili bandalagsins, staðið vörð um
þennan hornstein utanríkisstefnu Íslands .
Verður það starf allt seint fullþakkað .
Hér í þessum orðum er ætlun mín að
bregða ljósi á nokkra atburði í sögu nAtO
og aðildar Íslands að bandalaginu . Vissu lega
er af mörgu að taka, því að saga samstarfs
aðildarþjóða Atlantshafsbandalagsins er
í raun einn merkasti og bjartasti kaflinn í
heims sögunni frá lokum síðari heims styrj-
ald ar innar .
Markmið bandalagsins var að sameina
krafta frjálsra lýðræðisríkja í andstöðu
við heimsvaldastefnu kommúnista, sem
var mótuð í Moskvu og hrundið í fram-
kvæmd með vígbúnaði Sovétríkjanna og
pólitískri íhlutun um heim allan . Atlants-
hafsbandalagið hafði fyrir tuttugu árum
fullan sigur í þessari baráttu .
Aðildarríki bandalagsins töldu hins veg ar
nauðsynlegt að halda sameiginlegri varð-
stöðu sinni áfram, þrátt fyrir hinn frið-
samlega sigur . á undanförnum tveimur
ára tugum hefur Atlantshafsbandalagið
tekið stakkaskiptum . bandalagsríkjum
hefur fjölgað með þátttöku þjóða, sem áður
lutu einræði kommúnista, og nAtO lætur
að sér kveða í hernaðarátökum og nægir að
nefna Afganistan því til staðfestingar .
á tímum kalda stríðsins hefði aldrei
kom ið til álita við val á framkvæmdastjóra
nAtO að láta niðurstöðu ríkisstjórna
að ildar þjóð anna ráðast af afstöðu
Kremlverja . nú berast hins vegar fréttir um,
að Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra
Dan merkur, eigi undir högg að sækja sem
hugsan legur framkvæmdastjóri vegna
andstöðu ríkisstjórna múslima .
björn bjarnason
60 ár – Ísland í nAtO
Erindi flutt á hátíðarfundi Samtaka um
vestræna samvinnu og Varðbergs 4 . apríl 2009