Þjóðmál - 01.06.2009, Blaðsíða 8
6 Þjóðmál SUmAR 2009
Af vettvangi stjórnmálanna
_____________
björn bjarnason
ESb-krógi ríkisstjórnarinnar
og Sjálfstæðisflokkurinn
Íalþingiskosningunum 25 . apríl 2009 lauk valdaskeiði Sjálfstæðisflokksins,
sem hófst með myndun fyrsta ráðuneytis
Davíðs Oddssonar 30 . apríl 1991 . Þessi
18 ár urðu viðburðarík í sögu þjóðar-
innar . Hagvöxtur og velmegun varð
meiri en áður hafði þekkst . áherslur við
efnahagsstjórn og í atvinnumálum breyttust .
Með aðild að samevrópskum markaði fyrir
frjálsa fjármagnsflutninga og síðan með
einkavæðingu ríkisbanka varð fjármálastarf-
semi þungamiðja hins mikla vaxtarskeiðs .
Þegar litið er til baka eftir hrun íslenska
fjármálakerfisins á fyrstu dögum hinnar
alþjóðlegu banka- og fjármálakreppu,
blasir við, að við stjórn íslenskra banka og
fjármálastofnana sáust menn ekki fyrir . Af
stjórnmálaflokkum var skuldinni vegna
hrunsins á Íslandi skellt þyngst á Sjálf-
stæð is flokkinn . Hér var á þessum stað í
vorhefti Þjóðmála rakinn aðdragandi þess,
að ríkisstjórn Geirs H . Haarde sprakk og
til varð 1 . febrúar 2009 minnihlutastjórn
Samfylkingar og vinstri-grænna með
stuðningi Framsóknarflokksins .
Minnihlutastjórnin varð aðgerðalítil á
þingi, þar var einkum deilt um stjórnlaga-
breytingar og hafði Sjálfstæðisflokkurinn
betur í þeim slag . Þá var ríkisstjórninni
sérstakt kappsmál að koma Davíð Oddssyni
úr embætti seðlabankastjóra og var það gert
með lagabreytingu en norskur maður settur
til bráðabirgða í staðinn . Sætti það gagnrýni
og var talið á svig við stjórnarskrá lýðveldisins,
þar sem mælt er fyrir um, að embættismenn
skuli vera íslenskir ríkisborgarar .
Í aðdraganda kosninganna, um sömu
helgi í lok mars, skiptu Sjálfstæðisflokkur
og Samfylking um formenn . bæði Geir
H . Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
drógu sig í hlé vegna veikinda .
Rúmum tveimur vikum fyrir kosningar
urðu miklar umræður um stóra fjárstyrki
umdeildra fyrirtækja til stjórnmálaflokka
undir lok árs 2006, það er í þann
mund sem ný lög um fjárstuðning til
stjórnmálaflokkanna voru að taka gildi, lög,
sem banna slíkar styrkveitingar . Varð þetta
mál Sjálfstæðisflokknum mjög erfitt og ekki
til að auka traust til hans meðal kjósenda .