Þjóðmál - 01.09.2012, Page 56

Þjóðmál - 01.09.2012, Page 56
 Þjóðmál haust 2012 55 hefur vaxið gríðarlega síðastliðin 20 ár og stefnir í enn meiri hæðir . Nýjasta þróunin í heyskapartækni er þreföld sláttuvél með heildarskára upp undir 10 m á breidd . Slægjan er söxuð og henni síðan skóflað upp á risavagn og sett upp í stæðu, sem þjöppuð er og síðan fergt yfir . Með þessu losna bændur við mikinn kostnað af plasti utan um rúllur og losna líka við baggabindivélar og erfiða meðhöndlun bagga . Heyannir færast nú meir á hendur verktaka, sem hafa fjárfest í þessum dýra búnaði, og bændur geta í staðinn einbeitt sér að búskapnum sjálfum, þ .e . rekstri búanna og fjárfestingum með lengri nýtingartíma en heyvinnutæki í eigu einstakra búa . Landbúnaðurinn á einnig mikla mögu leika í ylrækt með nýtingu jarðvarma og raf orku, t .d . framleiðslu grænmetis, sem er viður kennd úrvalsvara hérlendis, en þá þurfa yfir völd að gera það að stefnu sinni, að orku fyrir tækin séu þjónustufyrirtæki fyrir orkunot endur, en orkunotendur ekki fórnar dýr gróða sjónar- miða skamm sýnna og þröngsýnna orkuselj- enda . Hér þarf að verða við horfs breyting hjá íslenzka orku geiranum, þannig að hann taki að líta á sig sem stoðgrein og þjón ustuaðila við gjaldeyris skapandi og gjalde yrissparandi atvinnu greinar í landinu í stað óraun hæfra drauma um skjótfenginn gróða, t .d . með útflutn ingi á raforku um sæstreng . Vegna fákeppnismarkaðar er opinber stefnu mörkun fyrir orkugeirann af hálfu Alþingis réttlætanleg . Fái landbúnaður að njóta sanngjarnra kaupa á forgangsorku og afgangsorku, sem skili aðilum orkugeirans — vinnslu, flutn ingi, dreifingu og sölu — eðlilegum arði m .v . áhættu fjárfestingar, þá verður ís lenzki landbúnaðurinn innan tíðar al- þjóð lega samkeppnishæfur . Þess ber þó að geta, að við ramman reip er að draga, því að landbúnaður Evrópulandanna er yfirleitt niðurg reiddur . Það má ímynda sér, að íslenzkur land- búnaður, að fiskeldi meðtöldu, geti árið 2020 flutt út hágæðavörur, þ . á m . til fjöl- mennra ríkja með vaxandi kaupgetu, fyrir allt að 200 milljarða kr . að núvirði, ef allt gengur að óskum . Ferðaþjónusta hefur vaxið hröðum skrefum, enda býr hún við mikið frelsi, og er von á um 600 .000 erlendum ferðamönnum til Íslands árið 2012 . Árið 2020 gæti þessi fjöldi verið farinn að nálgast eina milljón . Er orðið tímabært, að ferðaþjónustan fari í umhverfismat, þ .e . álagsþol helztu ferðamannastaðanna verði metið, og jafnframt, hvort óbeinar tak markanir með sölu aðgengis séu rétta svarið . Icelandair mun hafa viðrað áætlun um flutning á tveimur milljónum farþega til landsins að Íslendingum meðtöldum árið 2020, en gjalda ber varhug við ferðamanna fjölda, sem augljóslega ógnar náttúru landsins . Yfirvöld verða nú þegar að taka höndum saman við ferðaþjónustuna um verndun viðkvæmrar náttúru Íslands, S tóriðjan í landinu hefur verið frá upphafi og er enn stjórnmálalegt bitbein á milli frelsisunnandi framfaraafla og haftasækinna afturhaldsafla . E .t .v . stafar þetta af því, að eigendur stóriðjufyrirtækjanna eru öflug hlutafélög án ríkisaðildar og flest með bækistöðvar vestan hafs . Afturhaldsöflin hafa löngum haft horn í síðu „auðvaldsins“, þó að þessi félög þess hafi fallið mjög vel að íslenzkum aðstæðum .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.