Þjóðmál - 01.09.2012, Síða 66

Þjóðmál - 01.09.2012, Síða 66
 Þjóðmál haust 2012 65 SUS veitti frummælandanum á fundin-um, Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, frels is verðlaun Kjartans Gunnarssonar þann 30 . júní, enda hefur hann lengi verið einn af höfuðhugmyndafræðingum ís- lenskra hægrimanna og verið í fararbroddi í hug myndabaráttu þeirra . Hannes flutti skelegga ræðu, þar sem hann ræddi einkum þau fjögur dagskrárefni sem helst brenna á honum um þessar mundir . Fyrsta málið, sem Hannes vill að verði á dagskrá, hefur lengi verið honum hugleikið: skattar, velferð og tekjudreifing . Að mati hans er hagstætt skattaumhverfi lykilatriði til að stuðla að vinnusemi og verðmætasköpun . Skattar eru skilaboð til fólks um hvernig það eigi að hegða sér . Skattalækkun felur í sér fjölgun á tækifærum til að komast úr fátækt í bjargálnir . Hannes telur lága skatta ekki vera fyrir hina ríku heldur fyrir þá sem vilja verða ríkir . Hann tekur dæmi af hátekjuskatti, sem bitni ekki á ríku fólki, sem hafi heilan her af sérfræðingum í vinnu fyrir sig til að koma fjármunum í skattaskjól, heldur bitni iðulega á ungu og atorkusömu fólki, sem leggi hart að sér við að skapa verðmæti og búa í haginn fyrir sig og sína . Annað dagskrárefnið, sem Hannes vill að hægrimenn gefi gaum, er auðlindanýting og umhverfisvernd . Hann benti á að slík mál væru gjarnan ekki efst á baugi í kreppu, enda hugsaði fólk þá frekar um vinnu og verðmætasköpun, en að samt sem áður væri málaflokkurinn mikilvægur . Spurningar á borð við hvernig við getum afstýrt mengun, glímt við umhverfisspjöll og nýtt auðlindir náttúrunnar með skynsamlegum hætti, eru áríðandi . Að mati Hannesar er verðugt rannsóknarefni hvernig hægt sé að leysa slík mál með því að skilgreina eignarrétt, „því að umhverfisvernd krefst umhverfisverndara, einhverra sem gæta umhverfisins og hafa hag af því,“ sagði Hannes og bætti við að við stuðluðum „ekki að umhverfisvernd með fundahöldum og ályktunum“ einum saman . Í þessu sambandi tók hann dæmi af fiskistofnum og hvölum við Íslandsstrendur og fílum og nashyrningum á sléttum Afríku . Í báðum tilfellum skila eignarréttur og frjáls markaður mestum árangri í vernd og nýtingu . Hann hnykkti á þessu með ljóðrænum hætti með því að segja að lausnin fælist í „verði en ekki sverði, viðskiptum frekar en valdboði“ . Þriðja dagskrárefnið, sem Hannes leggur áherslu á, er nýsköpun og framtaksmenn, sem hann sagði vera driffjöðrina og hreyfi- aflið í kapítalismanum . Hann nefndi bæk- ur rússnesk-bandaríska rithöfundarins Ayn Rand í þess samhengi, að í þeim væru frum kvöðlar og athafnamenn hetjur en jafn aðar menn hins vegar afætur og skúrk ar . Al menna bókafélagið gaf í fyrra út eina bók eftir Rand í íslenskri þýðingu, Fountain head eða Upp sprettuna, og hyggst í haust gefa út aðra, Atlas Shrugged eða Undirstöðuna . Þriðja bókin, We the Living eða Kíra Argúnóva er síðan væntanleg í íslenskri þýðingu á næsta ári . Hannes fullyrti að heimskreppan væri ekki kapítalismanum að kenna, heldur miklu frekar ríkisafskiptum og fjármálatækni, sem menn réðu ekki við . „Þegar ríkið tekur ábyrgð á einhverju þá er afleiðingin ábyrgðar leysi,“ sagði hann og bætti við að F ramsögumenn voru fjóriraf atkvæða mestu hug mynda- fræðingum íslenskra frjáls hyggju- og íhaldsmanna á síðustu árum: Hannes H . Gissurarson, Gunnlaugur Jónsson, Jakob F . Ásgeirsson og Óli Björn Kárason .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.