Þjóðmál - 01.09.2012, Qupperneq 69

Þjóðmál - 01.09.2012, Qupperneq 69
68 Þjóðmál haust 2012 hirt allan hagnað af brölti sínu, en ef tap yrði gátu þeir dembt því á aðra . Kjarninn í málflutningi Gunnlaugs er að kerfislegir þættir hafi skipt sköpum í þeirri atburðarás sem leiddi til bankahrunsins, að ríkið hafi með eiginlegri eða ætlaðri ábyrgð á bönkunum stuðlað að ábyrgðarleysi, að tengingin sem þarf að vera á milli athafna og ábyrgðar hafi verið rofin þannig mikill háski myndaðist . Hin undirliggjandi ríkisábyrgð er þannig meginástæða hrunsins, að mati Gunnlaugs, og lærdómurinn er sá að ríkið megi ekki ábyrgjast banka . Hann segir sams konar aftengingu ábyrgðar verða þegar ríkið eigi banka því að þá fari einnig hópur fólks með peninga annarra . Rangir hvatar eru þó vissulega ekki það eina sem líta verður til við greiningu á hruninu, heldur eigi hrein og bein mistök við stjórn bankanna eflaust einnig hlut að máli . Á bóluárunum í aðdraganda bankahruns- ins var lögð áhersla á að traust yrði að ríkja á bankakerfinu . Gunnlaugur heldur því hins vegar fram að slíkt andrúmsloft bjóði hættunni heim, þvert á móti sé mikilvægt að fólk sé tortryggið á banka og sé óhrætt við að vantreysta þeim sé tilefni til þess . Tortryggni viðskiptavina stuðlar að ábyrgari starfsemi banka og varfærnari ákvarðanatöku . Gunnlaugur sagði lausnina á vandanum ekki felast í að auka eftirlitsiðnað ríkisins, enda væri slíkt eftirlit annaðhvort of aumt eða of gerræðislegt . Best væri að auka aðhald eigenda fjármagnsins með því að afnema ríkisábyrgð . Þessu tengdu áréttaði hann mikilvægi þess að berjast gegn því að ríkisvaldi sé beitt í þágu fyrirtækja, það er að segja gegn þeirri stefnu sem nefnd er pilsfaldakapítalismi . Gunnlaugur benti á það á fundinum, rétt eins og hann gerir í Ábyrgðarkverinu, að boðskapurinn um ábyrgð eigi ekki aðeins við í fjármálum, heldur í lífinu öllu . Um er að ræða lífsspeki sem gildi á öllum sviðum mannlífsins . Undir lok ræðu sinnar ræddi Gunnlaug- ur um ýmis atriði sem hann brýndi fyrir frjálshyggjumönnum að hafa í huga í hug- myndabaráttunni . Hann benti á mikilvægi þess að boðskapurinn um frelsi og ábyrgð næði til fólks þegar það væri ungt, því að þá væri það gjarnan ekki komið með ýmsa hagsmuni, sem gætu hamlað því að það sé opið fyrir skynsömum hugmyndum . Gunnlaugur lagði áherslu á mikilvægi hugsjóna og staðhæfði að stefnufesta og hreinar hugmyndir væru mun meira hríf andi heldur en tækifærisstefna og mála miðlanir . Hann lofaði bandaríska þing- mann inn og frjálshyggjumanninn Ron Paul fyrir að vera vel að sér í hugmyndafræði og sagði það ástæðu þess að hann hafi ekki ráfað af leið eins og svo oft væri raunin með stjórn- málamenn . Gunnlaugur mærði einnig þá sem hafa þor, dug og hugsjónaanda til að berjast fyrir óvinsælum málum og gegn pólitískum rétttrúnaði . Hann hvatti frjáls hyggjumenn til að styðja hver annan í baráttunni, enda væri verkefnið krefjandi: „að gera hið nýja Ísland að landi persónu legrar ábyrgðar“, en ekki, eins og sumir virðast beita sér fyrir, „að landi valds, ofbeldis og óstjórnar“ . Jakob F . Ásgeirsson steig næstur upp í pontu . Hann flutti mikla eldræðu þar sem hann lagði áherslu á siðferði og gildi í stjórnmálum og atvinnulífinu . Eins og margir hægrimenn er Jakob blanda af frjáls- hyggjumanni og íhaldsmanni . Íhalds stefna hans er af sígildum toga sem á einmitt talsvert meira sameiginlegt með frjálshyggju en sú nýíhaldsstefna sem víða ræður ríkjum um þessar mundir . Jakob byrjaði ræðuna á því segja að við hrun bankanna hafi myndast eins konar banda lag vinstriafla og útrásarmanna um að klína sök á Sjálfstæðisflokkinn og ekki síst á Dav íð Oddsson . Vinstriöflin hafa stjórnað um ræðunni og fengið frítt spil að dreifa áróðri sínum . Sumir talsmenn Sjálfstæðis-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.