Þjóðmál - 01.09.2012, Side 75

Þjóðmál - 01.09.2012, Side 75
74 Þjóðmál haust 2012 Bókadómar _____________ „Forsetafrúin“ í nýju ljósi Margrét Gunnarsdóttir: Ingibjörg, Ugla og Sögufélag, Reykjavík 2011, 312 bls . Eftir Guðmund Magnússon Líklega hefur enginn Íslendingur, fyrr eða síðar, hlotið jafn mikla umfjöllun fræðimanna og Jón Sigurðsson forseti, leið- togi sjálfstæðisbaráttunnar á 19 . öld . Bækur og rit- gerðir sem skrifaðar hafa verið um líf hans og starf fylla ótal bindi . Í þessu ljósi má heita einkennilegt hve kona hans, Ingibjörg Einarsdóttir, „for seta frú- in“, hefur fram að þessu hlotið litla athygli sagn- fræð inga . Hún hefur verið afgreidd sem algjör auka- persóna í lífi Jóns, svo ekki sé minnst á hin alþekktu, hæðnisfullu ummæli um hana sem oft heyrast, „konan með skeifuna“, þar sem sveigt er að því að hún hafi verið óaðlaðandi, ljót, fráhrindandi, jafnvel tannlaus! Það er þess vegna fagnaðarefni að nú hefur verið ráðist í metnaðarfulla og vand- aða rannsókn á lífi Ingibjargar og hjóna- bandi hennar og Jóns Sigurðssonar og afraksturinn ratað á bók, Ingibjörgu eftir Margréti Gunnarsdóttur sagnfræðing . Beinar heimildir um ævi, störf og við- horf Ingibjargar, svo sem einkabréf, eru af skorn um skammti, og setur það verkinu vitaskuld miklar skorður . Bréfin sem fóru á milli hennar og Jóns Sigurðssonar árin sem hún sat í festum í Reykjavík, hann í Kaupmannahöfn, hafa t .d . ekki varð veist . Til að draga upp mynd af daglegu lífi hennar notar Margrét þess í stað marg- víslegar óbein ar heim ildir, svo sem heim ilis reikn ing- ana til að átta sig á neyslu þeirra hjóna og hús haldi . Álykt ar hún einnig út frá ýmsum upplýsingum sem fyrir hendi eru um hagi Kaup manna hafnarbúa um og upp úr miðri 19 . öld . Þá styðst hún við bréfasöfn, endur minningar og margs konar skjöl og frásagnir . Finnst mér Margréti takast vel að vinna úr þessum fjöl- skrúðugu heimildum . Ályktanir hennar eru yfir leitt varfærnislegar, hún fullyrðir ekki en leiðir sterk rök að niðurstöðum . Bókin er stútfull af margs konar skemmti-

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.