Þjóðmál - 01.09.2012, Síða 82

Þjóðmál - 01.09.2012, Síða 82
 Þjóðmál haust 2012 81 fleiri einföld líkön af mannlífinu verið notuð í fræðilegum tilgangi . Margir kannast við líkan bandaríska sálfræðingsins B . F . Skinner (1904–1990) af hinum skilyrta manni og á síðustu árum hefur líffræðilegt líkan Richards Dawkins (f . 1941) af manninum sem handbendi eigingjarnra erfðavísa fengið talsvert mikla athygli . Líkan Adams Smith af hagmenninu er um margt hliðstætt þessum líkönum sem ég eigna Hobbes, Skinner og Dawkins . Það er einföldun sem er sett fram í fræðilegum tilgangi og kann að gagnast til að varpa ljósi á einhverjar hliðar tilverunnar . Hvað sem þeirri gagnsemi líður enda menn í einsýni, öfgum og firrum ef þeir halda að svona líkön segi allt sem máli skiptir um mannlífið . Það má ef til vill skýra þetta með einfaldri líkingu . Ef ég reyni að átta mig á hegðun tveggja manna sem tefla skák þá geri ég ráð fyrir að þeir kunni leikinn og stefni að sigri en ég læt mig engu varða hvernig menn þeir eru að öðru leyti . Á þessum forsendum segi ég kannski að í næsta leik hljóti hvítur að reyna að valda biskupinn sinn . Með slíkri spá gef ég mér ekkert annað en að hann reyni að ná árangri í leiknum og ég þarf ekki neinar forsendur sem segja að maðurinn sem situr að tafli sé fyrst og fremst keppnismaður eða allt hans líf snúist um að máta andstæðinga sína . Sá sem reynir að átta sig á hvað keppnismaður gerir vinnur með sértekningu sem er einföldun á veruleikanum . Hann lítur á mann af holdi og blóði sem keppnismann og sleppir því að pæla í öðrum þáttum í tilveru hans . Á líkan hátt getur sá sem veltir fyrir sér einhverjum þáttum verslunar og viðskipta, t .d . fasteignasölu, komist nokkuð langt með því að gera ráð fyrir að fólk sé að jafnaði hagsýnt, hagi sér að meðaltali svipað hagmenni Adams Smith . Af þessi leiðir að sjálfsögðu ekki að fólk sé fyrst og fremst hagmenni . Líkanið af hagmenninu er líkan af einni hlið tilverunnar . Það er því ekki eins hrein og klár vitleysa og Einar Már gefur í skyn þar sem hann reynir að svara öfgum þeirra sem ekki sjá neinar aðrar hliðar mannlífsins en þá sem hagfræðin gerir grein fyrir . Mér sýnist hann eiginlega tefla fram gagnstæðum öfgum og neita því að hagfræðileg líkön segi nokkurn sannleika . Þarna hefur hann kannski smitast af aldarhættinum því það virðist í tísku að bregðast við öfgum með gagnstæðum öfgum, þótt meðalhóf sé besta svarið við hvorum tveggju . Hagmennið kom ekki fram sem fræðilegt líkan af hegðun fólks á markaði fyrr en í riti Adams Smith Um auðlegð þjóðanna . Samt hefur það verið vitað öldum saman að hagrænir hvatar orka á breytni fólks . Í einu af bréfum sínum til Atticusar (Epistulae ad Atticum, 1 .16) hefur rómverski spekingurinn Cicero (106 f . Kr .–43 f . Kr .) það eftir þeim sigursæla Filippusi II . Makedóníukonungi (382 f . Kr . –336 f . Kr .) að hægt sé að vinna hvaða virki sem er svo fremi asni klyfjaður gulli komist upp að því . Filippus þessi var annars faðir Alexanders mikla og ummæli hans hafa orðið að málsháttum í ýmsum tungumálum . Á ensku er til dæmis sagt „An ass loaded with gold climbs to the top of the castle“ og á íslensku að enginn borgar veggur sé svo hár að asni klyfjaður gullpeningum komist ekki yfir hann . Hugmyndin um að treysta megi fégirninni til að vinna sitt verk hvar sem margir menn eru saman komnir er forn og hún var ekki fundin upp af frjálshyggjumönnum . En þótt þessi hugsun sé forn er oftrú á fræðileg líkön ef til vill einkenni á módernisma fremur en eldri þankagangi . Slík oftrú getur verið varhugaverð eins og Einar Már bendir á . Mér virðist það besta og merkilegasta í bók hans vera hvernig hann varar okkur við að líta á hagmennið sem einu réttu myndina af mannlífinu og missa þar með sjónar á því hvað taumlaust óhóf, græðgi og eigingirni eru ljótir lestir . Ég held að það sé rétt hjá Einari
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.